Fréttablaðið - 07.07.2016, Blaðsíða 14
Lægra gengi sterlingspunds mun
endurspeglast í lægra verði breskra
vara á Íslandi. Fataverð gæti lækkað
um allt að tíu prósent.
Gengi sterlingspunds gagnvart
íslenskri krónu mældist 159,59 í
gær og hefur ekki verið lægra í rúm
sjö ár, eða síðan í mars 2009. Frá
því að úrslit Brexit-kosninganna
um áframhaldandi viðveru Breta í
ESB lágu fyrir hefur gengi pundsins
gagnvart íslenskri krónu lækkað um
11,4 prósent, úr 180,13 í 159,59. Á
síðastliðnu ári hefur gengið lækkað
um 23 prósent.
Elísabet Inga Marteinsdóttir,
rekstrarstjóri Dorothy Perkins,
Topshop, Warehouse og Karen
Millen, sem allt eru breskar versl-
anir, segir að þessi lækkun á gengi
pundsins muni klárlega endur-
speglast í vöruverðinu á Íslandi.
„Við erum mjög ánægð með þetta að
geta lækkað vöruverðið hjá okkur,“
segir Elísabet.
Svava Johansen, eigandi NTC,
segist einnig sjá fram á lækkanir.
„Við sjáum alveg klárlega fram á
lækkun. Við erum að taka inn ný
bresk merki núna, meðal annars
Paul Smith, og sjáum fram á um tíu
prósenta lækkun. Við erum mjög
spennt að geta lækkað bresku vör-
urnar og höfum einmitt verið að
auka innkaup þaðan. Evran hefur
líka lækkað um þrjú eða fjögur pró-
sent. Það sem við tókum inn í apríl
Íslensku flugfélögin hafa aukið umsvif
sín töluvert á árinu. Fréttablaðið/Vilhelm
Íslensku flugfélögin WOW air og
Icelandair hafa flutt rúmlega tvær
milljónir farþega í millilandaflugi
á fyrri helmingi ársins 2016, sem er
34,4 prósenta aukning miðað við
sama tímabil í fyrra.
Icelandair hefur flutt 1,55 millj-
ónir farþega. Það er 19,4 prósenta
aukning milli ára, en á sama tíma-
bili á síðasta ári ferðuðust 1,3 millj-
ónir farþega með flugfélaginu í
millilandaflugi.
WOW air hefur hins vegar flutt
548 þúsund farþega sem er 111 pró-
senta aukning milli ára, en á sama
tímabili í fyrra flutti flugfélagið 260
þúsund farþega.
Bæði flugfélög hafa bætt við sig
áfangastöðum á árinu. – sg
34 prósentum
fleiri farþegar
Fataverð á niðurleið
vegna hruns pundsins
Gengi pundsins gagnvart íslenskri krónu hefur lækkað um ellefu prósent frá
Brexit-kosningunum. Vöruverð í breskum fataverslunum hér á landi mun lækka
í takt við gengið. Hlutabréf í bresku netversluninni ASOS hafa hækkað hratt.
✿ Gengi punds gagnvart íslenskri krónu frá Brexit-kosningum
180,13
171,35
165,3
165,31
166,01
165,06
162,89
162,98
161,39
159,59
og núna hefur lækkað þó nokkuð.“
Líklegt er að margir íslenskir
neytendur hafi nýtt sér tækifærið
og verslað við breskar netverslanir,
til dæmis Amazon UK og ASOS.
Gengi hlutabréfa í ASOS hefur, ólíkt
öðrum breskum fyrirtækjum, hækk-
að í kjölfar Brexit-kosninganna um
tæplega fimm prósent.
Gengi sterlingspunds hefur ekki
einungis lækkað gagnvart íslenskri
krónu heldur einnig gagnvart
Bandaríkjadal og náði 31 árs lægð
í gær þegar það nam 1,29 og hafði
lækkað um fjórtán prósent frá Brex-
it-kosningunum.
Erfitt er að spá um þróun punds-
ins þar sem mikil óvissa ríkir í
bresku efnahagslífi. Sérfræðingar
hjá Goldman Sachs áætla þó að
gengið gæti lækkað í allt að 1,2 á
móti Bandaríkjadal á næstu þremur
mánuðum. saeunn@frettabladid.is
23. júní 24. júní 27. júní 28. júní 29. júní 30. júní 1. júlí 4. júlí 5. júlí 6. júlí
159,59
krónur mældist gengi
pundsins gagnvart
krónu í gær
Við erum að taka
inn ný bresk merki
núna, meðal annars Paul
Smith, og sjáum fram á um
tíu prósenta
lækkun.
Svava Johansen,
eigandi NTC
Skemmtigarðinum Holy Land USA, sem byggður var á biblíusögunum, í Waterbury í Connecticut í Bandaríkjunum, var lokað árið 1984. Nú er lítið
annað eftir en skilti sem segir til um hvaða starfsemi var rekin þar. Á 7. áratugnum heimsóttu allt að fjörutíu þúsund manns garðinn á ári. Bæjar-
stjóri Waterbury, Neil O’Leary, kom fyrir krossi í garðinum árið 2013 og er nú leitað að fjármagni svo hægt verði að opna garðinn á ný. Fréttablaðið/epa
Yfirgefinn aldingarður
Fasteignagjöld eru hæst í Borgar-
nesi, og lægst í Vopnafirði. Fast-
eignamat húss og lóðar er hæst
í Reykjavík í Suður-Þingholtum,
það er hins vegar lægst á Patreks-
firði. Þetta kemur fram í saman-
burði fasteignagjalda sem Þjóð-
skrá Íslands tók saman fyrir
Byggðastofnun.
Fasteignamat húss og lóðar, ef
miðað er við einbýlishús sem er
161,1 fermetri að grunnfleti og
lóðarstærð er 808 fermetrar, er
mjög mismunandi eftir því hvar á
landinu það er. Fasteignamat húss
og lóðar á höfuðborgarsvæðinu
er að meðaltali 43,4 milljónir og
hefur hækkað um rúm átta pró-
sent frá árinu áður.
Utan höfuðborgarsvæðisins er
matið hæst á Akureyri, 35,4 millj-
ónir, samanborið við 33,6 milljón-
ir árið áður. Lægsta heildarmat
er á Patreksfirði þar sem það er
11,7 milljónir, en matið á Vopna-
firði er 12 milljónir.
Fasteignamat hefur hækk-
að mest milli ára í Suður-Þing-
holtunum, um 11,1 prósent, það
lækkar mest í Grindavík, eða um
5,1 prósent.
Fasteignagjöld eru hæst í
Borgarnesi, þar sem þau eru
351 þúsund. Lægstu gjöld eru
180 þúsund á Vopnafirði eins og
árið áður. Fasteignagjöld hækk-
uðu mest á Siglufirði, eða um 25
prósent. Rétt er að taka fram að
sveitarfélög veita mismunandi
þjónustu til dæmis hvað varðar
sorpurðun og -förgun og er sums
staðar rukkað fyrir þjónustu sem
er innifalin í gjöldum annars
staðar. – sg
Fasteignagjöld hækkað
um allt að fjórðung
Fasteignagjöld hækkuðu mest á Siglufirði, eða um 25 prósent. Fréttablaðið/SteFán
2,2
milljónir farþega hafa ferðast
með Icelandair og WOW air
á fyrrihluta ársins.
VIðSkIPtI
7 . j ú l í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R14 F R é T T I R ∙ F R é T T A B l A ð I ð
0
7
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
E
F
-A
A
2
0
1
9
E
F
-A
8
E
4
1
9
E
F
-A
7
A
8
1
9
E
F
-A
6
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
6
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K