Fréttablaðið - 07.07.2016, Page 19
Í Múrmansk, stærstu borg heimsins norðan við heim-skautsbaug, sagði gamall Rússi
við mig: Við njótum þess hér að
eiga góða granna. Hún átti við
Norðmenn, Svía og Finna. Orð
hennar ylja Íslendingi um hjarta-
rætur. Við heimsækjum þá oft,
bætti hún við, og förum því oftar
til útlanda en flestir aðrir Rússar
ef íbúar Moskvu og Sankti Péturs-
borgar eru undan skildir. Algeng
mánaðarlaun í Múrmansk eru 50
til 60 þúsund krónur og eftirlaun
mun lægri.
Íslaus höfn
Síðari heimsstyrjöldin er enn
á allra vörum í Múrmansk sem
gegndi þar mikilvægu hlutverki.
Borgin var reist frá grunni í fyrri
heimsstyrjöldinni, fyrir réttum
100 árum. Þaðan komust rúss-
nesk herskip og önnur skip út á
opið haf þar eð Golfstraumurinn
heldur höfninni íslausri árið um
kring. Í síðari heimsstyrjöldinni
var Sankti Pétursborg sem hét þá
Leníngrað umsetin af Þjóðverjum
svo engin skip komust þaðan
út. Rússar misstu 27 milljónir
mannslífa í stríðinu, telja menn
nú, tuttugu sinnum fleiri mannslíf
en Bandaríkjamenn, Bretar og
Frakkar misstu samanlagt.
Fólkinu hefur fækkað í Múr-
mansk, íbúarnir eru nú um
300.000, voru áður hálf miljón.
Borgin er býsna hrörleg að sjá.
Ásýnd hennar virðist ekki hafa
tekið miklum breytingum frá því
Sovétríkin hrundu fyrir aldar-
fjórðungi. Ýmis framfarateikn
verða þó á vegi manns. Statoil,
norska olíufyrirtækið, rekur
bensínstöðvar í Múrmansk. Rúss-
nesk olíufyrirtæki þurfa að sæta
erlendri samkeppni. Útvegsfyrir-
tæki greiða veiðigjöld í almanna-
sjóði. IKEA selur ungu fólki sænsk
húsgögn. Sumt annað vitnar um
stöðnun. Margverðlaunuð rúss-
nesk kvikmynd frá 2014, Leviat-
han, sem lýsir vonlausri viðureign
venjulegrar fjölskyldu við spilltan
sveitarstjórnarmann í litlum bæ
ekki langt frá Múrmansk, fékkst
ekki sýnd í borginni utan einu
sinni. Eiga kvikmyndahúsin þó að
heita einkafyrirtæki.
Jafnvægi í byggð
Noregur á landamæri að Rúss-
landi. Kirkjunes, einn nyrzti bær
Noregs, er steinsnar frá landa-
mærunum. Norðmenn leggja fyrir
vikið enn ríkari áherzlu en ella
væri á jafnvægi í byggð lands síns
upp eftir gríðarlangri ströndinni
alla leið að mörkum Rússlands
og verja í þessu skyni talsverðu
fé m.a. til að styrkja bændur og
fiskimenn ýmist beint eða óbeint.
Byggðastefnan er m.ö.o. her-
fræðileg að hluta. Norðmönnum
þykir óráðlegt að hafa hluta
landsins óbyggðan þar eð þá gætu
óboðnir gestir e.t.v. hreiðrað þar
um sig óséðir. Langvinn togstreita
Norðmanna og Rússa um efna-
hagsstarfsemi á Svalbarða vitnar
um vandann. Svíþjóð liggur hvergi
að Rússlandi. Svíar töldu óhætt að
hverfa frá opinberum fjárstuðn-
ingi við land og sjó fyrir löngu og
kjósa heldur að styðja byggðirnar
t.d. með öflugu háskólastarfi um
allt land eins og Norðmenn gera
raunar einnig. Opinber stuðn-
ingur við land og sjó í Svíþjóð
einskorðast við sameiginlega
landbúnaðar- og fiskveiðistefnu
ESB.
Nasistar lögðu Finnmörk,
nyrzta hluta Noregs, í rúst í
stríðslok þegar þeir sáu fram á
að verða undir, brenndu Ham-
merfest og fleiri bæi til grunna
og fluttu fólkið burt. Sviðna
jörðin sem nasistar skildu eftir sig
markaði djúp spor í Noregi sem
hafði misst heilar borgir og bæi í
hörmulegum brunum á fyrri tíð.
Íslendingar þekkja brunann mikla
í Kaupmannahöfn 1728 sem Hall-
dór Laxness gerði ógleymanlegan
í Íslandsklukkunni. Ósló brann
til kaldra kola 1624, Þrándheimur
1681, Björgvin 1702 og aftur 1916,
Hammerfest 1890 og Álasund
1904. Þetta voru engir smábrunar,
heldur brann næstum allt sem
brunnið gat. Bæirnir í Finnmörk
voru endurreistir eftir stríð.
Samkeppni þrátt fyrir fólksfæð
Norsk landsbyggð ljómar af
myndarskap. Í litlum bæjum
norður eftir öllu landinu rekar
danskir og sænskir bankar útibú
líkt og Glitnir gerði fram að hruni.
Af því má ráða að fólksfæð er
engin fyrirstaða í augum þessara
banka. Norskir bankar þurfa að
sæta erlendri samkeppni til hags-
bóta fyrir viðskiptavini sína.
Byggðin er fjölbreytt. Samar
eru um 100.000 alls, sérstakur
þjóðflokkur hreindýrabænda
sem hefur búið á norðurslóðum í
mörg þúsund ár. Flestir eru þeir í
Noregi, eða um 50.000, og flestir
hinna eru í Svíþjóð og Finnlandi,
en fáir eru eftir í Rússlandi, aðeins
um 2.000. Samar tala ólíkar mál-
lýzkur, svo ólíkar að þeir tala nú
helzt saman á ensku á ættarmót-
um. Aukin sjálfstjórn Sama miðar
að traustari stöðu þeirra innan
Noregs, Svíþjóðar og Finnlands.
Vogskornar strendur
Þorvaldur
Gylfason
prófessor
Í dag
Norsk landsbyggð ljómar af
myndarskap. Í litlum bæjum
norður eftir öllu landinu
rekar danskir og sænskir
bankar útibú líkt og Glitnir
gerði fram að hruni. Af því
má ráða að fólksfæð er engin
fyrirstaða í augum þessara
banka. Norskir bankar þurfa
að sæta erlendri samkeppni
til hagsbóta fyrir viðskipta-
vini sína.
Nú á tímum er til siðs að tala líkingamál knattspyrn-unnar, eftir hina frækilegu
Frakklandsferð landsliðsins í fót-
bolta. Því er við hæfi að spyrja sig
hvort við sem höfum starfað í nefnd
um endurskoðun almannatrygginga
séum nú að sjá lokamarkið nálgast.
Frumvarp um breytingar á lögum
um almannatryggingar er komið
inn á vef velferðarráðuneytisins.
Það er afrakstur mikillar vinnu
árum saman og grundvallarbreyt-
ingar á kerfinu. Þær breytingar sem
lagðar eru til er þokkaleg sátt um, en
þær snerta fyrst og fremst kjör eldri
borgara. Ekki eru breytingar gerðar
hvað varðar öryrkja, en lagt er til
að komið verði á tilraunaverkefni
um starfsgetumat sem komi í stað
örorkumats. Ég ætla ekki í þessari
grein að fara nánar út í það mál.
Það sem snertir eldri borgara er
einföldun kerfisins, sveigjanleiki í
lífeyristöku, hækkun á ellilífeyris-
aldri á 24 árum og samræming á
skerðingarprósentu allra tekna
þegar reikna á út réttindi fólks í
almannatryggingum. Sameina á
grunnlífeyri, tekjutryggingu og
framfærsluuppbót í einn ellilífeyri.
Framfærsluuppbótin sem hefur
verið með 100% skerðingu gagnvart
öllum öðrum tekjum verður færð í
flokk ellilífeyris þar sem skerðingin
verður 45%. Það er stór ávinningur
að ná því að þessi uppbót á lífeyri
renni nú inn í almennan ellilífeyri.
Jafnframt verður meiri sveigjan-
leiki í kerfinu sem Landssam-
band eldri borgara hefur lagt ríka
áherslu á. Hægt verður að byrja að
taka ellilífeyri 65 ára, en einnig að
geyma það til 80 ára. En jafnframt
verður líka hægt á þessu 15 ára
tímabili að taka ½ lífeyri hjá bæði
lífeyrissjóðum og almannatrygg-
ingum og geyma hinn helminginn
til allt að 80 ára aldurs, og hækkar
þá geymdi lífeyririnn samkvæmt
tryggingarfræðilegu mati þangað
til viðkomandi tekur fullan lífeyri.
Þetta ákvæði þarf þó undirbúnings-
tíma og mun ekki taka gildi fyrr en
ári seinna en aðrar breytingar sem
lagðar eru til.
Eftir er að breyta lögum um lífeyr-
issjóði til samræmis við almanna-
tryggingarnar. Taki fólk hálfan
lífeyri getur það haldið áfram að
vinna án skerðingar vegna vinnu-
launa. Það ætti því að hvetja fólk
til atvinnuþátttöku eftir getu og
vilja hvers og eins. Með hækkandi
meðalaldri þjóðarinnar hefur verið
krafa um meiri sveigjanleika til
bæði lífeyristöku og lengri starfs-
ævi. Þá er einnig verið með þessum
breytingum að hækka lífeyristöku-
aldur úr 67 árum í 70 ár á 24 árum.
Það byrjar á árinu 2018 og hækkar
um tvo mánuði á ári í 12 ár og síðan
um einn mánuð á ári næstu 12 ár.
Bætir verulega hag eldri kvenna
Kostnaður ríkissjóðs af þessu frum-
varpi verði það að lögum fer að
miklum hluta til að bæta hag eldri
kvenna, sem hafa verið í meirihluta
þeirra sem hafa haft framfærsluupp-
bótina og lítið í lífeyrissjóði. Þetta
eru oftast konur sem voru heima-
vinnandi fram eftir aldri, sinntu
heimili og mörgum börnum, en fóru
svo að vinna seinna utan heimilis
og oft í láglaunastörfum. Jafnframt
bætir þetta hag þeirra sem eiga
sparifé þar sem skerðingarprósenta
vegna vaxtatekna fer einnig í 45%,
en frá Hruninu hefur það verið föst
fjárhæð eða rúmar 98.000 kr á ári. Ég
hvet alla til að kynna sér frumvarpið
inn á vef velferðarráðuneytis. Hægt
er að slá inn á netið: vel.is og þá
kemur vefurinn upp og þar er kynn-
ing á efninu. Athugasemdir þurfa að
berast fyrir 31. júlí. Vonandi sjáum
við frumvarpið verða að lögum fyrir
áformaðar þingkosningar í haust.
Er lokamarkið í augsýn?
Kostnaður
ríkissjóðs af
þessu frum-
varpi verði það að lögum fer
að miklum hluta til að bæta
hag eldri kvenna, sem hafa
verið í meirihluta þeirra sem
hafa haft framfærsluupp-
bótina og lítið í lífeyrissjóði.
Jóna Valgerður
Kristjánsdóttir
fulltrúi LEB í
endurskoðunar-
nefnd almanna-
trygginga
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 7 . j ú L Í 2 0 1 6
0
7
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
E
F
-C
7
C
0
1
9
E
F
-C
6
8
4
1
9
E
F
-C
5
4
8
1
9
E
F
-C
4
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
6
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K