Fréttablaðið - 07.07.2016, Síða 31

Fréttablaðið - 07.07.2016, Síða 31
Ljósbláar neglur sjást víða á höndum landskvenna í sumar. Mynd/Hanna Undanfarið hefur borið mjög á sérstaklega fallegum túrkís- bláum lit á nöglum landskvenna og ýmsu öðru skemmtilegu nagla- skrauti. Margir hafa velt fyrir sér hvort það sé sumarsólin sem kallar fram þessa naglaskreyti- gleði. Gyða Agnarsdóttir, nagla- fræðingur á Deluxe snyrtistof- unni í Glæsibæ, hefur aðstoðað Íslendinga við naglaskreyting- ar um árabil. „Það eru alltaf ein- hverjir tískulitir í nöglum. Núna er mjög mikið um natúral, matta og hlutlausa liti og sumar vilja setja kannski glimmer eða eitt- hvert skraut á eina nögl. Í fyrra voru þetta helst appelsínugulir og ferskjulitir og svo skærir neon- bleikir. Núna er þetta meira svona hlutlausir litir og svo líka allt í gangi, til dæmis túrkís og bláir.“ Gyða segir að fólk komi frek- ar í naglasnyrtingu á vorin en á öðrum árstímum. „Konur fá sér gjarna gel-lakk á hendur og fætur á vorin og áður en þær fara í sumarfrí til útlanda. Margar fá sér lakk á hendur og fætur í sama lit eða hlutlausan lit á hendurn- ar og skærari á tærnar. Það er eins og það sé almennt samþykkt- ara að fá sér meira áberandi lit á tærnar, þær er oftar í felum en hendurnar sjást alltaf.“ Hún segir algengt að neglur séu end- urnýjaðar svona einu sinni í mán- uði. „Þá hafa þær vaxið fram, ekkert ónýtar en kannski orðnar pínu sjúskaðar eða viðskiptavin- urinn vill fá nýjan lit eða eitthvað svoleiðis.“ Hún segir að í umræðu um tískuliti á neglur vilji gleymast að ekki henti öllum hið sama. „Litir fara fólki auðvitað mis- munandi vel og ég ráðlegg þeim sem eru með æðaberar hendur til dæmis ekki að fá sér blátóna naglalakk, heldur frekar hlýrri liti.“ Hún bætir þó við að það sé nánast alltaf hægt að finna tón af tískulit sem passar við húðlit við- komandi. En hvernig er með þær sem naga neglurnar? Geta þær líka verið með fallegt naglalakk? Gyða segir nagdísir velja gjarna að láta setja á sig akrýlnegl- ur. „Ef þær vilja fá fínar neglur einn tveir og bingó er akrýllinn besta lausnin, hann lengir aðeins en ekki mikið og formar mjög fal- lega.“ En hvað skyldi Gyða sjálf velja að hafa á nöglunum í sumar? „Ég er alltaf að prófa eitthvað nýtt. Ég er reyndar ekki þessi bleika týpa svo ég er meira í grátónuð- um litum. Ég leik mér líka stund- um, set kannski mismunandi liti á hverja nögl og ef ég er með lang- ar neglur þá finnst mér gaman að setja kannski glimmer eða skraut á eina og eina.“ Naglaskreytigleði í sumarsóliNNi Gyða agnarsdóttir naglafræðingur segir allt leyfilegt í naglatískunni í sumar en bendir á að ekki henti allir litir öllum höndum.   Gyða agnarsdóttir segir allt leyfilegt í naglatískunni, markmiðið sé að gera neglur skemmtilegri. naglalökk eru í öllum litum í sumar. naglaspá sumarsins hljóðar upp á hlutlausan grunnlit og glimmer á stöku stað. Fa rv i.i s // 0 61 6 KIMONO 9.495 kr. KJÓLL 5.995 kr. GÓÐIR SUNNUDAGAR Á BYLGJUNNI FÖSTUDAGSVIÐTALIÐ KL. 08:00 10:00 SPRENGISANDUR KL. 10:00 12:00 F ó l k ∙ k y n n i n g a r b l a ð ∙ X X X X X X X X 7F i M M T U D a g U r 7 . j ú l í 2 0 1 6 F ó l k ∙ k y n i n g a r b l a ð ∙ T í s k a 0 7 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 E F -C 7 C 0 1 9 E F -C 6 8 4 1 9 E F -C 5 4 8 1 9 E F -C 4 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.