Morgunblaðið - 18.10.2016, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016
SVIÐSLJÓS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Efni úr flöskum og drykkjarbrús-
um úr plasti geta smitast yfir í
drykkinn í brúsanum. Meðal efna
sem smitast á
þennan hátt eru
mýkingarefni,
andoxunarefni,
litarefni, efni úr
bleki og leysi-
efni.
Þetta sýnir ný
rannsókn Erlu
Ránar Jóhanns-
dóttur sem hún
vann til MS-
gráðu í matvæla-
fræði við HÍ.
Hún segir að gosdrykkjaflöskur
úr plasti séu yfirleitt ekki fram-
leiddar til þess að nota oftar en
einu sinni og að lítið eftirlit sé með
innfluttum plastflöskum og umbúð-
um hér á landi, þó að reglugerðir
séu vissulega til og ábyrgir fram-
leiðendur fylgi þeim.
Við framkvæmd rannsóknarinn-
ar keypti Erla Rán 16 drykkjar-
brúsa úr plasti af ýmsum gerðum
og stærðum og setti í þá lausn sem
var blanda kranavatns og met-
anóls. Lausnin, sem líkir t.d. eftir
íþróttadrykkjum með hátt sýru-
stig, var geymd í flöskunum við
stofuhita í einn sólarhring og síðan
voru efnin í vatninu greind.
Helstu niðurstöður voru að í tíu
brúsum höfðu lífræn efni smitast
yfir í vatnið. Misjafnt var hversu
mörg efni smituðust úr flöskunum,
eða allt frá tveimur upp í 13. Sum
efnin var ekki hægt að greina, en
þau helstu sem fundust voru fenól,
asetamíð og bensamíð sem eru
mýkingarefni, litarefni, blek,
sveppa- og bakteríudrepandi efni
og leysiefni.
Nokkuð algengt er að einnota
gosdrykkjaflöskur úr plasti séu
notaðar oft, en Erla Rán segir slíka
notkun varasama. „Þær eru svo-
kallaðar PET-flöskur, sem er
skammstöfun fyrir polyethylene
terephthalate. Ég tók þær ekki
fyrir í minni rannsókn, enda eru
þær margrannsakaðar. Til dæmis
er plastið í þeim hrufótt, en það
býður upp á örveruvöxt. Fyrir utan
það hafa margar rannsóknir sýnt
að í sumum PET-flöskum hafi
fundist ýmis hormónatruflandi efni
og þau geta haft neikvæð áhrif á
líkamsstarfsemina þó að þau leki
úr plasti í litlu magni. Þau geta t.d.
hermt eftir estrogeni, eða hamlað
androgeni, hamlað skjaldkirtils-
hormónum, haft neikvæð áhrif á
æxlunarkerfið og aukið hættuna á
þróun ýmissa sjúkdóma. En skað-
leg efni hafa reyndar fundist í mis-
munandi tegundum af plasti.“
Fyrsta rannsóknin hér á landi
Erla Rán segir rannsókn sína
vera þá fyrstu sinnar tegundar sem
gerð hafi verið hér á landi og segir
fjölmargar rannsóknir í öðrum
löndum sýna svipaðar niðurstöður.
Erum við nógu meðvituð um
þetta? „Nei, ég held ekki. Það er
lítil umræða hér á Íslandi um
plastumbúðir og það þyrfti að
vekja athygli á þessu. Við erum öll
meira eða minna að nota plastum-
búðir og drekka úr brúsum dag-
lega. Það er talsvert eftirlit annars
staðar á Norðurlöndum og það er
eitthvað sem ætti að skoða hér,“
segir hún.
Spurð hvernig brúsa best sé að
nota með tilliti til smitunar, segir
Erla Rán að stálbrúsar virðist
bestir. „En þeir plastbrúsar sem
ekki smituðu efnum í rannsókninni
minni voru þeir sem eru glerharðir
og glærir. Mjúkir brúsar í sterkum
eða dökkum litum virtust smita
mest. Hins vegar magngreindi ég
ekki efnin, heldur eingöngu fjölda
efna, þannig að það er ekki hægt
að segja til um magnið. “
Ertu að drekka leysiefni og blek?
Ný íslensk rannsókn sýnir að ýmis efni geta smitast úr plastbrúsum í drykkinn sem settur er í þá
Glerharðir og glærir eru bestir Varasamt er að nota gosdrykkjaplastflöskur oftar en einu sinni
Getty Images/iStockphoto
Plastflöskur Það er ekki sama úr hverju er drukkið. Sumir brúsar úr plasti
smita efnum yfir í drykkinn sem í þeim er, samkvæmt rannsókn Erlu Ránar.
Erla Rán
Jóhannsdóttir
Erla Rán segir fyllsta tilefni til að
rannsaka aðrar tegundir umbúða,
brúsa og áhalda úr plasti. „Rann-
sóknir hafa sýnt að mörg efni, þar
á meðal Bisphenol-A eða BPA, geta
lekið úr plasti í matvæli yfir leyfi-
legum mörkum.“
Í þessu sambandi nefnir hún
m.a. eldhúsáhöld úr plasti sem
m.a. eru notuð til að hræra í mat í
heitum pottum. „Efnin geta farið
út í matinn við hitann,“ segir hún.
„Svo væri líka ástæða til að skoða
betur matvælaumbúðir.“
Margt þyrfti að rannsaka
ÁHÖLD OG UMBÚÐIR
„Það var framkvæmd talning fyrir
skömmu á iðnaðarsvæðum í Hafn-
arfirði og niðurstaðan var sú að á
milli 800 og 1.000 gámar eru á þeim
svæðum, og það er svo sannarlega
ekki mikil prýði að þessum gámum,“
sagði Ólafur Ingi.
Hann segir að sækja eigi um
stöðuleyfi fyrir gámum og þannig
hafi það alltaf verið. Þá sé aðeins
greitt eitt gjald, einu sinni, í kring-
um 18 þúsund krónur. „En stað-
reyndin er sú að það eru einungis
um 2 til 3% af þessum 800 til 1.000
gámum í Hafnarfirði sem eru með
slík stöðuleyfi.“
„Byggingarfulltrúa er heimilt að
fjarlægja þá lausafjármuni sem get-
ið er í 2. gr. og eru án stöðuleyfis.
Eiganda eða ábyrgðarmanni skal
veittur eðlilegur frestur til að fjar-
lægja þá,“ segir m.a. í reglum Hafn-
arfjarðar um stöðuleyfi, en gámar
eru lausafjármunir sem falla undir
þessar reglur.
gjaldtakan á milli 60 og 70 þúsund
krónur á gám, en þó eftir stærð
gáma. Hér í Hafnarfirði er gjald
vegna gáma 31.780 krónur, hvort
sem um 20 feta eða 40 feta gáma er
að ræða,“ sagði Ólafur Ingi í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Bendir á gámageymslusvæði
„Það eru geymslusvæði þar sem
iðnfyrirtæki í Hafnarfirði geta kom-
ið fyrir gámum sínum. Eitt er á
svæðinu á móti Straumsvík og við
erum hvetjandi þess að það svæði sé
notað í auknum mæli,“ sagði Ólafur
Ingi.
Ólafur Ingi bendir á að gámar séu
í mörgum tilvikum á bílastæðum
sem fylgi iðnfyrirtækjum í Hafn-
arfirði. „Ef húsið þar sem Bindir og
stál er til húsa væri reist í dag, og
gert væri ráð fyrir 13 gámum inni á
lóðinni og engum bílastæðum, þá
hefði slík bygging aldrei verið sam-
þykkt,“ sagði Ólafur Ingi.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ólafur Ingi Tómasson, formaður
skipulags- og byggingarráðs Hafn-
arfjarðar, gefur lítið fyrir gagnrýni
Arnar Gunnlaugssonar, eiganda fyr-
irtækisins Bindir og stál, sem aug-
lýsti í smáuglýsingum í Morgun-
blaðinu á laugardag eftir skörpum
teljara til að þjálfa hafnfirska emb-
ættismenn í talningu á gámum.
Ólafur Ingi segir að gjaldtaka
bæjar- og sveitarfélaga vegna gáma
á iðnaðarlóðum tíðkist alls staðar og
Hafnarfjarðarbær hafi horft til ann-
arra sveitarfélaga, sem væru að gera
nákvæmlega það sama, þegar reglur
voru settar.
„Mosfellsbær, Akranes, Akureyri
og fleiri bæjar- og sveitarfélög eru
með samskonar gjaldtöku, og við í
Hafnarfirði erum fjarri því að vera
með hæstu gjaldtökuna fyrir gám-
ana. Í sumum sveitarfélögum er
Morgunblaðið/Ófeigur
Gámafjöld Gámar á lóðinni við Bindir og stál í Hafnarfirði, en einungis 2-3% gáma í bænum eru með stöðuleyfi.
Yfir 800 gámar á iðnað-
arsvæðum í Hafnarfirði
Einungis um 2-3% gáma í Hafnarfirði hafa stöðuleyfi
„Það hefur verið forgangsmál innan-
ríkisráðherra að efla löggæslu í
landinu. Nauðsynlegt sé til lengri
tíma að styrkja starfsumhverfi lög-
reglunnar og fjölga lögreglumönn-
um,“ segir í tilkynningu frá innan-
ríkisráðuneytinu í kjölfar
umfjöllunar um fjárveitingar til lög-
regluembætta landsins og fjölgunar
lögreglumanna.
Fram kemur í tilkynningunni að
fjárveitingar hafi verið hækkaðar
frá árinu 2013 sem nemur 1.888
m.kr. miðað við vísitölu neysluverðs
2016 en um varanlega viðbótarfjár-
veitingu hafi verið að ræða.
Þessum fjármunum hafi að mestu
verið ráðstafað til þess að efla lög-
regluna og hafi áhersla verið lögð á
að styrkja grunnþjónustu lögreglu.
Þar megi nefna eflingu löggæslu á
landsbyggðinni, eflingu eftirlits
vegna fjölgunar ferðamanna, aukinn
akstur lögreglubíla og bót á búnaði
og þjálfun lög-
reglumanna auk
mannauðsmála.
Þá hafi Alþingi
samþykkt í októ-
ber síðastliðnum
fjáraukalög til
viðbótar þar sem
238 m.kr. er varið
til lögreglu, með-
al annars til landamæravörslu vegna
fjölgunar ferðamanna og til að efla
öryggi ferðamanna. Ríkisstjórnin
hafi einnig ákveðið að fella niður 211
m.kr. af uppsöfnuðum halla allra
lögregluembætta sem nam við lok
síðasta árs 317 m.kr.
Í fjármálaáætlun fyrir árin 2017-
2021 sé einnig gert ráð fyrir aukn-
um fjármunum til málefnasviðs al-
manna- og réttaröryggis en þar er
lögregla umfangsmesti málaflokkur-
inn. Gert er ráð fyrir 20% hækkun á
tímabilinu til sviðsins í heild.
Verið forgangsmál
að efla löggæslu
Hækkað um 1,9 milljarða frá 2013
STORMUR EHF | KLETTHÁLSI 15 | S: 577 1717 | WWW.STORMUR.IS
Verð
2.250.000 kr.
án vsk.
1.815.000 kr.
Til á lager
Sportman® Touring 570 EPS