Morgunblaðið - 18.10.2016, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.10.2016, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016 Dagskrá: 13:30 -13:40 Setning málþings Björn Bjarki Þorsteinsson, varaformaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og framkvæmdastjóri Brákarhlíðar 13:40-13:55 Umhverfi og staða fyrirtækja í velferðarþjónustu Pétur Magnússon, formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og forstjóri Hrafnistuheimilanna 13:55-14.25 Stutt erindi frá stjórnmálaflokkum Eygló Harðardóttir, Framsóknarflokki Hanna Katrín Friðriksson, Viðreisn Sigrún Gunnarsdóttir, Björt framtíð Óli Björn Kárason, Sjálfstæðisflokki Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Samfylkingu Steinunn Þóra Árnadóttir, Vinstri græn Jón Þór Ólafsson, Pírötum Að framsögum loknum verða pallborðsumræður. Fundarstjóri: Sigmar Guðmundsson, fjölmiðlamaður Er vilji til breytinga? Er raunverulegur vilji hjá stjórnmálaflokkum að bæta þjónustu við veika einstaklinga og aldraða? Málþing á vegum Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Björn Bjarki Þorsteinsson Pétur Magnússon Eygló Harðardóttir Hanna Katrín Friðriksson Sigrún Gunnarsdóttir Óli Björn Kárason Steinunn Þóra Árnadóttir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir Jón Þór Ólafsson Sigmar Guðmundsson Allir velkomnir, aðgangur ókeypis Málþingi verður haldið á Hótel Natura (áður Hótel Loftleiðir) Þingsal 2, þriðjudaginn 18. október kl. 13:30-15:30 Málþing Hótel Natura Þriðjudaginn 18. október 13:30-15:30 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skráð atvinnuleysi hjá Vinnumála- stofnun í september var 1,9%. Þetta er í fyrsta skipti síðan „hrunmán- uðinn“ október 2008 sem atvinnu- leysið fer niður fyrir 2%. Í október 2008 var atvinnuleysi skráð 1,9% og var þá búið að vera innan við 2% markið síðan í ágúst 2005, samkvæmt upplýsingum Karls Sigurðssonar, sérfræðings hjá Vinnumálastofnun. Strax í nóv- ember 2008 fór atvinnuleysið upp í 3,3%. Það jókst smám saman og náði hámarki mánuðina febrúar og mars 2010, en þá mánuði mældist atvinnuleysið 9,3%. Að meðaltali voru 3.286 skráðir atvinnulausir hjá Vinnumálastofnun í september og fækkaði atvinnu- lausum um 267 að meðaltali frá ágúst þegar atvinnuleysi mældist 2,0%. Í september fækkaði atvinnulaus- um körlum um 59 frá ágúst en að meðaltali voru 1.432 karlar á at- vinnuleysisskrá og var atvinnuleysi 1,5% meðal karla. Atvinnulausum konum fækkaði um 208 frá ágúst og voru 1.854 konur á atvinnuleysis- skrá og var atvinnuleysi 2,3% meðal kvenna. Atvinnulausum fækkaði að með- altali um 260 á höfuðborgarsvæðinu frá í ágúst og var atvinnuleysi þar 2,2% í september. Á landsbyggðinni fækkaði atvinnulausum um sjö frá ágúst og var atvinnuleysi þar 1,4%. Mest var atvinnuleysið á höfuðborg- arsvæðinu 2,2%. Minnst var at- vinnuleysið á Norðurlandi vestra, 0,8%. 750 erlendir ríkisborgarar eru án atvinnu hér á landi Alls voru 750 erlendir ríkisborg- arar án atvinnu í lok september eða um 21% atvinnulausra. Þar af voru 428 pólskir ríkisborgarar eða um 57% erlendra ríkisborgara sem voru á skrá í lok mánaðarins. Mannafli á vinnumarkaði sam- kvæmt áætlun Vinnumálastofnunar var 172.756 í september. Stofnunin spáir því að atvinnu- leysi í október verði á bilinu 1,9 til 2,2%. Morgunblaðið/Ófeigur Atvinnulífið Bjartari horfur eru í atvinnumálum á Íslandi en um langt ára- bil. Í fyrsta skipti í átta ár er skráð atvinnuleysi undir tveimur prósentum. Atvinnuleysið komið undir 2%  Ekki verið minna síðan í október 2008 Mörg laus störf » Alls voru 505 laus störf í al- mennri vinnumiðlun hjá Vinnu- málastofnun í september. » Flest störfin voru fyrir ósér- hæft starfsfólk, eða 207. Fyrir þjónustu-, sölu- og ummönn- unarfólk voru 166 laus störf. » Í september í fyrra var fjöldi lausra starfa hjá Vinnu- málastofnun 296. Nemendur úr Kópavogs- og Há- teigsskóla tóku við fyrstu Micro- bit forritanlegu smátölvunum þegar Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, afhentu nemendunum tölvurnar í gær. Guðrún Hafsteinsdóttir segir verkefnið vera sett af stað til að efla vitund, skilning og áhuga ungra nemenda á forritun. „Það er mikilvægt að vekja nemendur til umhugsunar um mikilvægi for- ritunar í daglegu lífi og kveikja áhuga þeirra á iðn- og tækni- menntun almennt,“ segir Guðrún. Hún vísar ennfremur til mikil- vægis forritunarvinnu fyrir rök- hugsun, hugmyndaauðgi, skap- andi hugsun og lausnamiðaða nálgun. Morgunblaðið/Eggert Nám Forritunarkennsla efld með afhendingu forritanlegu smátölvunnar. Nemendur fá forrit- anlegar smátölvur Herjólfur siglir þessa dagana í Landeyjahöfn, eftir að hafa þurft að sigla til Þorlákshafnar megin- hluta síðustu viku. Þó hefur þurft að breyta aðeins áætlun á fjöru vegna þess hversu grunnt er í Landeyjahöfn. Veður- og ölduspá gefur til kynna að erfitt kunni að vera að sigla til Landeyjahafnar frá því síðari hluta dags á morgun og fram yfir helgi. Belgíska dýpkunarskipið sem hefur beðið færis í Vestmannaeyja- höfn vinnur nú að dýpkun hafn- arinnar. Hefur verið að safnast sandur inni í höfninni og sér- staklega á milli hafnargarðanna. Skipið byrjaði dýpkun í fyrradag og vonar Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs, að höfnin komist í samt lag ef skipið getur verið að í dag og fram á morgun- daginn. Gunnlaugur segir að ástandið í höfninni hafi verið erfitt í um hálfan mánuð og ekkert verið hægt að dýpka fyrr en nú. Á stórstraums- fjöru sé of grunnt fyrir Herjólf. Þess vegna hafi áætlun verið breytt fyrri hlutann í þessari viku. Handboltakrakkar sjóveikir Stórt handboltamót ungmenna var í Eyjum um helgina. Stór hópur íþróttafólks fór með Herjólfi frá Þorlákshöfn á föstudagskvöld og urðu margir veikir vegna þess hversu vont var í sjóinn. Gunn- laugur segir að krakkarnir hafi fengið betra veður á sunnudag, þegar þeir sneru heim, og þá hafi verið siglt í Landeyjahöfn. helgi@mbl.is Breytt áætlun Herjólfs  Unnið að dýpkun Landeyjahafnar  Herjólfur siglir í Landeyjar  Slæmt útlit seinni hluta vikunnar Morgunblaðið/RAX Landeyjar Herjólfur siglir í Landeyjahöfn þessa dagana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.