Morgunblaðið - 18.10.2016, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.10.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016 Osta fondue-veisla Komdu þínum á óvart 4.990,-ámann bóka þarffyrirfram Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Við höfum eignast margagóða vini hér á kaffihús-inu, enda hafa sumir veriðtryggir viðskiptavinir allt frá því fyrsta daginn þegar við opn- uðum,“ segir Baskinn Jesús Rod- ríguez sem á og rekur kaffihúsið Café Roma í Kringlunni ásamt konu sinni, Höllu Sif Guðlaugsdóttur. „Halla átti sér draum um að stofna kaffihús og við gripum gæs- ina þegar tækifærið kom fyrir ellefu árum og kaffihúsið var auglýst til sölu,“ segir Jesús og bætir við að viðskiptavinahópurinn sé fjöl- breyttur, til þeirra komi fólk sem er með verslanir í Kringlunni, við- skiptavinir Kringlunnar og líka fólk utan af götunni. „Ég vil meina að við séum með bestu fastakúnna borgarinnar, það er margt eldra fólk sem kemur til okkar daglega og fær sér kaffi og með því. Þetta fólk hefur sýnt okkur mikla tryggð sem okkur þykir vænt um. Þetta eru vinir okkar og við þekkjum orðið fjölskyldur þeirra. Það er gaman að sjá hvernig þetta fólk hefur myndað félagsleg tengsl sín á milli og þessir fastagestir kynnast innbyrðis og mæla sér mót hérna hjá okkur,“ segir Halla og bætir við að þau verði áhyggjufull ef einhver sem hefur komið daglega í áraraðir hættir að koma, þá óttist þau að viðkomandi sé veikur. Kjósa tíma með börnunum Jesús segir að þau Halla séu natin við viðskiptavini sína, enda leggi þau mikla áherslu á að vera með persónulega þjónustu. „Við þrefölduðum veltuna á fyrsta árinu okkar hér og ég vil meina að það hafi fyrst og fremst verið vegna þess að við lögðum hjarta okkar í þetta og að við berum virðingu fyrir starfi okkar og við- skiptavinum. Ánægðir viðskiptavinir sem segja öðru fólki frá upplifun sinni á kaffihúsinu eru alltaf besta auglýsingin.“ Þau bjóða ekki aðeins upp á kaffi og bakkelsi, heldur líka heita súpu og smárétti. „Við erum alltaf með hádegistilboð og þá er mikið að gera, og svo kemur aftur margt fólk í kaffitímanum, milli kl. tvö og fjög- ur. Okkur hefur staðið til boða að stækka staðinn, en við viljum það ekki, af því að við viljum hafa tíma til að vera með börnunum okkar.“ Þegar Jesús er spurður að því hver sé helsti munurinn á því að reka kaffihús á Íslandi og Spáni, segir hann að allt sé miklu auðveld- ara og skilvirkara á Íslandi. „Viðskiptaumhverfi á Spáni er mjög þungt í vöfum og erfitt. Að sækja þar um leyfi til að stofna lítið fyrirtæki getur tekið fjörutíu daga, en á Íslandi tekur það ekki nema þrjá daga. Bróðir minn á veitinga- stað á Spáni og segir að það sé erfitt að reka fyrirtæki þar. En hér á Ís- landi gengur það vel, ef maður er viljugur og duglegur.“ Ást og örlög gripu í tauma Jesús kom fyrst til Íslands fyrir sextán árum, þegar hann var aðeins 24 ára, en það kom til af því að bróð- ir hans sá auglýsingu í skólanum þar sem hann lærði til kokks, þar sem óskað var eftir spænskum kokki á Íslandi til að sjá um eldamennsku á Kaffi List yfir eitt sumar. „Hann sló til og sá fljótt að hér á landi var mikil þörf fyrir fólk í veitingahúsabransanum, svo hann hvatti mig til að koma líka til Ís- Sumir hafa komið daglega frá fyrsta degi Kaffihúsið Café Roma var eitt af fáum kaffihúsum og veitingastöðum í Kringl- unni sem fengu framúrskarandi einkunn í þjónustukönnun Kringlunnar á þessu ári. Eigendurnir, Jesús og Halla, leggja mikið upp úr persónulegri þjónustu og hafa eignast marga vini í hópi viðskiptavina sinna og kynnst fjölskyldum þeirra. Morgunblaðið/Ófeigur Brosmild fjölskylda Jesús og Halla fyrir framan kaffihúsið sitt í Kringl- unni með sonum sínum þremur, Daníel Snæ, Antoni Erni og Tómasi Ara. Sumarfrí Halla, Daníel og Anton í miðaldaþorpinu Frías í sumar. Færeyingar frændur okkar eru sér- lega handlagnir og getum við margt lært af þeim á því sviði. Færeysk sjöl eru t.d. þekkt fyrir einstaka hönnun því lögun þeirra er þannig að þau sitja vel á öxlum og renna ekki auð- veldlega af, eins og sjöl eiga til að gera. Þeir sem hafa áhuga á að læra að prjóna slík sjöl geta skellt sér á námskeið hjá Handverkskúnst í kvöld, þriðjudag, kl. 18:30. Farið verð- ur yfir uppbyggingu færeyskra sjala og prjónuð dúkkusjöl. Uppskrift að færeysku sjali fylgir með kaupum á Navia Uno-garni í sjalið, en hægt er að velja á milli tveggja sjalaupp- skrifta. Þeir sem kaupa sig inn á námskeiðið þurfa að koma með hringprjón með sér, 60 cm, nr. 5-6. Námskeiðið er ætlað fyrir þá sem hafa grunnþekkingu á prjóni. Lág- marksfjöldi þátttakenda er 4 en há- marksfjöldi þátttakenda er 8. Fimmtán prósenta afsláttur á nám- skeiðskvöldi verður af garni úr versl- uninni. Vert er að taka fram að mörg stéttarfélög styrkja félaga sína á námskeið. Handverkskúnst er til húsa í Hraunbæ 102 b í Reykjavík. Nánar á Facebook-síðu Handverkskúnstar. Vefsíðan www.facebook/Handverkskúnst Sjalið Færeysku sjölin eru sögð sitja vel á öxlum og renna ekki auðveldlega af. Lærið að prjóna færeyskt sjal Nú þegar haustfrí skólanna eru að bresta á er um að gera að kynna sér hvað er í boði til dægrastyttingar fyrir krakkana. Bókasöfnin á höfuðborgarsvæð- inu láta ekki sitt eftir liggja og þar verður ýmislegt í boði. Meðal annars verða þar vís- indasmiðjur, töfra- brögð, spilastundir og margt fleira og flestir ættu að finna eitt- hvað við sitt hæfi. Kristín Arngríms- dóttir listakona ætlar að vera í Menningar- húsinu í Grófinni næsta laugardag, 22. okt. kl. 15-16.30, og leiðbeina um gerð klippimynda í anda ævintýra H.C. Andersen. Í tilkynningu segir að Kristín teikni og máli með vatnslitum og þurrkrít og að klippimyndir geri hún gjarnan og noti þá jafnvel vatns- litapappír sem hún hefur málað á áð- ur. Á sama stað daginn eftir, sunnu- daginn 23. okt. kl. 13.20-14.40, geta börn komið og lesið fyrir hunda sem hlusta, en þeir eru sérstaklega þjálf- aðir til þess arna. Vert er að taka fram að skráning er nauðsynleg í lestur fyrir hunda. Ótal margt fleira er á dagskrá bókasafnanna, hægt er að kynna sér það nánar á vefsíðunni borgarbókasafn.is. Ýmislegt í boði hjá bókasöfnunum í haustfríi skólanna Gæðastund Notalegt er fyrir börn að lesa fyrir hunda. Morgunblaðið/Ómar Vísindasmiðjur og spilastundir Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Mikið er látið með blessaðar skepn- urnar sem mannfólkið fer með á svo- kallaðar kattasýningar, og þá blossar nú keppnisskapið heldur betur upp í eigendunum. Sumir þeirra hafa eytt fúlgum fjár í sín gæludýr og ómæld- um tíma í að greiða þeim og láta þau líta sem best út. Kona þessi flaggaði sínum blúnduklædda ketti með miklu stolti, rétt áður en hún gekk með hann til kynningar fyrir dómnefndina á heimssýningu katta sem og keppni sem haldin var á dögunum í Tyrk- landi. Ekki fer sögum af því hvort konan og hennar köttur hafi hreppt verðlaun, en gera má ráð fyrir að kisi hafi verið þeirri stund fegnastur þeg- ar þessu tilstandi öllu lauk og hann komst aftur heim til sín í rólegheit. Af svipnum á honum að dæma virðist hann hafa litla ánægju af veseninu; finnist hann jafnvel niðurlægður. Mikið að gera með kettina sem kepptu í Tyrklandi Heimssýning kattanna AFP Kattastúss „Sjáið sæta köttinn minn sem ég hef klætt í kjól og fínirí.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.