Morgunblaðið - 18.10.2016, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016
Vertu upplýstur!
blattafram.is
VANDINN LIGGUR
OFT HJÁ OKKUR
SJÁLFUM.
SAMÞYKKIR ÞÚ
KYNFERÐISOFBELDI?
Nýjar vörur frá
Útsöluaðilar:
Útilíf – Kringlunni – Smáralind – Glæsibæ • Sportver Akureyri • Toppmenn & Sport Akureyri
K Sport Keflavík • Nína Akranesi • Sportbær Selfossi • Axel Ó Vestmannaeyjum
Dreifingaraðili : DanSport ehf.
MARC O’POLO STORE
Kringlan Shopping Center
Kringlan 4–12
Reykjavik
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Bolir
Str. M-XXXL
Tveir litir
Kr. 6.900
SÍÐUMÚLI 14 108 REYKJAVÍK
SÍMI 510 5510
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 8 -18
10%
af seld
um set
tum,
renna
til krab
ba-
meinsf
élagsin
s
Bleikt októbertilboð
Reykjavíkurvegi 64, Hfj,
s. 555 1515, enjo.is
Komið í verslun okkar og sjáið úrvalið
Opið kl. 11-18 alla virka daga
Innifalið í pakka:
Andlitshanski, 2 augnpúðar
og krókur, lítið þvottanet.
Verð 6.900
5.900
Tilboð
Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðallög-
fræðingur hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu, sendi frá sér yfirlýs-
ingu í gær þar sem hún vísar alfarið
á bug ásökunum á hendur sér sem
nú eru til rannsóknar hjá settum
héraðssaksóknara. Ásakanirnar
varða hið svokallaða LÖKE-mál.
„Ég vona að rannsókn þessari
ljúki hið fyrsta og trúi staðfastlega
að hún muni leiða hið sanna í ljós og
hreinsa mig af öllum ásökunum,“
segir í lok yfirlýsingar hennar.
Lögreglan greindi frá því í til-
kynningu í gær að settur héraðs-
saksóknari hefði hafið rannsókn á
ásökunum á hendur starfsmanni
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
en viðkomandi er gefið að sök að
hafa misbeitt lögregluvaldi við rann-
sókn í tilteknu máli.
Í yfirlýsingu sinni segir Alda jafn-
framt: „Ég vísa alfarið á bug þeim
ásökunum sem eru tilefni rannsókn-
arinnar. Sú aðkoma sem ég hafði að
umræddu máli féll undir starfs-
skyldur mínar í mínu fyrra starfi.
Rannsóknir á ætluðum brotum lög-
reglumanna í starfi voru á þessum
tíma, lögum samkvæmt, á forræði
ríkissaksóknara og það var einnig í
þessu máli. Emb-
ætti ríkissak-
sóknara óskaði
eftir aðstoð emb-
ættis lögreglu-
stjórans á Suður-
nesjum við
meðferð málsins
og það voru lög-
reglumenn þess
embættis sem
önnuðust rann-
sóknina. Ég kom eingöngu að um-
ræddu máli sem löglærður fulltrúi.
Rannsókn málsins leiddi til þess að
embætti ríkissaksóknara höfðaði
sakamál á hendur lögreglumannin-
um, sem lauk með því að Hæstirétt-
ur Íslands sakfelldi hann fyrir brot í
starfi.“ Lögbundin þagnarskylda
komi í veg fyrir að hún geti tjáð sig
frekar um efnisatriði málsins.
„Ég hef skilning á að fólk leiti
réttar síns finnist því á sér brotið. Á
hinn bóginn þykir mér hart að sæta
rannsókn fyrir það eitt að sinna
starfi mínu í samræmi við starfs-
skyldur mínar,“ segir hún einnig.
Alda hefur nú stigið til hliðar frá
verkum sínum hjá embættinu vegna
málsins.
Hafnar ásökun-
um á hendur sér
Héraðssaksóknari hefur rannsókn
Alda Hrönn
Jóhannsdóttir
„Undanfarin ár hefur aukningin
verið um 15% að staðaldri. Við ger-
um frekar ráð fyrir því að þetta
haldi áfram á meðan Ísland er enn
vinsæll ferðamannastaður,“ segir
Helga Einvarðsdóttir, rekstrar-
stjóri flugþjónustunnar á Reykja-
víkurflugvelli, en það sem af er ári
hafa 1.654 flughreyfingar, lend-
ingar og flugtök, átt sér stað á
Reykjavíkurflugvelli í erlendu
einkaflugi í samanburði við 2.016
hreyfingar allt árið í fyrra.
Ekki er aðeins um að ræða lend-
ingar og flugtök svokallaðra einka-
þota heldur falla fleiri vélar undir
flokkinn erlent einkaflug sem
Isavia heldur utan um. Þar má til
dæmis nefna smærri vélar í ferju-
flugi eða skemmtiflugi og þotur
sömu gerðar og notaðar eru sem
einkaþotur í ferjuflugi.
Árið 2007 voru samtals 3.046
flughreyfingar í erlendu einkaflugi
en fækkaði töluvert næstu ár þar á
eftir þar til lægsta punkti var náð
árið 2010 þegar aðeins 1.710 flug-
hreyfingar áttu sér stað yfir allt ár-
ið. Fjöldinn jókst þó aftur en árið
2012 voru hreyfingarnar orðnar
2.014 talsins.
„Ég geri frekar ráð fyrir því að
þetta haldi áfram að aukast,“ segir
Helga en þeir farþegar og flug-
menn sem lendi hjá þeim séu fólk
sem kýs annan ferðamáta en að
ferðast í stóru farþegaflugvélunum
þegar það heimsækir landið.
laufey@mbl.is
Erlent einkaflug til Íslands eykst milli ára