Morgunblaðið - 18.10.2016, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.10.2016, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016 Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 plankaparket Verðdæmi: 190 mm Eik Rustik burstuð mattlökkuð 6.990.- m2 Minnst 56 uppreisnarmenn og fjór- ir stjórnarhermenn, sem hliðhollir eru Salva Kiir, forseta Suður- Súdans, létu lífið í átökum sem brutust út í norðausturhluta lands- ins um helgina. Uppreisnarmenn, sem styðja Riek Machar, fyrrverandi varafor- seta landsins, eru sagðir hafa ráðist á stjórnarhermenn úr tveimur átt- um við Malakal, næststærsta bæ landsins. En skammt frá bænum má finna verðmætar olíulindir sem uppreisnarmenn hafa augastað á. Fimm ár eru liðin frá því að Suður-Súdan hlaut sjálfstæði og hefur mikill ófriður ríkt í landinu nær allan þann tíma. SUÐUR-SÚDAN 60 eru látnir eftir átök við Malakal AFP Átök Uppreisnarmaður í Suður-Súdan. Stjórnvöld í Austurríki hafa nú ákveðið að rífa húsið sem Adolf Hitler fæddist í árið 1889. Er það gert til þess að koma í veg fyrir að ný- nasistar upphefji það og geri að minningarreit. Innanríkisráðherra landsins seg- ir grunninn mega standa áfram, en allt annað eigi að hverfa. Hitler bjó einungis nokkrar vikur í húsinu áð- ur en fjölskyldan flutti annað. AUSTURRÍKI Heimili Hitlers verð- ur jafnað við jörðu Adolf Hitler Fulltrúi í utan- ríkisráðuneyti Norður-Kóreu segir land sitt á „barmi styrj- aldar“ við Suður- Kóreu og varar Breta við að taka þátt í her- æfingum Banda- ríkjamanna og Suður-Kóreu. Þeir ættu að „læra af fortíðinni“ og ekki taka þátt í „ögrandi her- æfingum“, sem hefjast í nóvember. NORÐUR-KÓREA Vara Breta við þátt- töku í æfingunni Jong-Un, leiðtogi Norður-Kóreu. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við höfum nú orðið vitni að upphafi þessarar langþráðu aðgerðar, þ.e. að hrekja liðsmenn Ríkis íslams út úr borginni Mosul. En þetta er þó ein- ungis fyrsta skrefið og aðgerð þessi gæti tekið marga mánuði,“ segir Orla Guerin, stríðsfréttamaður breska ríkisútvarpsins (BBC) í Írak. Hún er nú í fylgd peshmerga, her- sveita sjálfstjórnarhéraðs íraskra Kúrda í norðanverðu landinu, sem sækja nú í átt að Mosul, helsta vígi Ríkis íslams í Írak. Hópurinn var í gær staddur um 300 metra frá yfirráðasvæði vígasam- takanna, en alls er um að ræða um 4.000 manna vopnaða sveit Kúrda. „Áður en við komumst að Mosul þarf að fara í gegnum sex þorp og hreinsa þau, en það er mikilvægt svo íraski herinn geti farið í gegnum svæðið óá- reittur,“ segir Guerin. Alls munu um 30.000 íraskir hermenn taka þátt í orrustunni um Mosul og samanstend- ur heraflinn m.a. af sérsveitar- og hermönnum og skriðdreka- og stór- skotaliðssveitum auk þess sem írask- ar og bandarískar orrustuþotur munu veita mikilvæga aðstoð í formi loftárása. BBC greinir frá því að inni í Mosul megi búast við um 4.000 til 8.000 víga- mönnum Ríkis íslams og eru þeir að líkindum búnir að koma þar fyrir fjöl- mörgum sprengjum og öðrum hindr- unum sem hermenn munu þurfa að vinna sig í gegnum. Þá má einnig bú- ast við að vígamenn notist við sjálfs- vígssprengjumenn og leyniskyttur í orrustunni. Mosul umkringd á næstu vikum Sérfræðingar sem fréttaveita AFP ræddi við segjast eiga von á langri og blóðugri orrustu. Þegar búið er að brjóta vígamenn á bak aftur í nær- liggjandi þorpum mun íraski herinn í samvinnu við sveitir Kúrda byrja að umkringja Mosul, en það er m.a. gert til að koma í veg fyrir birgðaflutninga til vígamanna. Þegar hersveitir hafa tryggt stöðu sína við borgina er unnt að hefja sjálfa orrustuna og gæti það gerst í nóvember eða desember næstkomandi. Þúsundir stefna að Mosul  Um 4.000 vopnaðir liðsmenn Kúrda og 30.000 íraskir hermenn halda í átt að helsta vígi Ríkis íslams í Írak  Sérfræðingar spá langri og blóðugri orrustu AFP Sókn Vopnaðar sveitir Kúrda hafa tekið stefnuna á Mosul en áður þurfa þær að frelsa nokkur þorp úr klóm vígamanna. Eitt þeirra sést hér á mynd. A.m.k. tveir menn létu lífið og tveggja er saknað eftir öfluga sprengingu í efnaverksmiðju BASF í borginni Ludwigshafen í vesturhluta Þýskalands. Þá eru nokkr- ir sagðir særðir, sumir þeirra lífshættulega. Eftir sprenginguna mátti um tíma sjá svartan reyk stíga hátt til himins og var íbúum nærliggjandi svæða ráðlagt að halda sig innandyra og loka gluggum og dyrum húsa sinna. Fjölmennt lið slökkviliðs- og lögreglumanna var sent að verksmiðjunni og tókst þeim að koma í veg fyr- ir mikla útbreiðslu eldsins. Upptökin eru ókunn. Ludwigshafen í vesturhluta Þýskalands AFP Manntjón varð í sprengingu í verksmiðju Ráðamenn í Moskvu og Damaskus boða átta klukkustunda vopnahlé í Aleppo, stærstu borg Sýrlands, næstkomandi fimmtudag, en miskunnarlausar loftárásir stjórn- arhers Sýrlands og Rússa hafa staðið þar yfir að undanförnu með tilheyrandi manntjóni og eyðileggingu. „Við höfum ákveðið að sóa ekki frekari tíma heldur gera hlé í nafni mannúðar til að veita almenn- um borgurum færi á að flýja og flytja burt særða og sjúka,“ hefur fréttaveita AFP eftir rússneska hershöfðingjanum Sergei Rudskoi. Vopnahléið í Aleppo mun standa yfir milli klukkan 8 og 16 að staðar- tíma og gera þá rússneskar og sýr- lenskar hersveitir hlé á öllum sínum aðgerðum í borginni. Þá hefur Evrópusambandið nú bæst í hóp þeirra sem rannsaka vilja hvort hernaðurinn gegn Aleppo jafngildi stríðsglæp. Rússar boða stutt vopnahlé  Gefa fólki færi á að flýja Aleppo Dreng bjargað úr húsarústum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.