Morgunblaðið - 18.10.2016, Síða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016
AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fim 20/10 kl. 20:00 103. s. Sun 30/10 kl. 20:00 110. s. Fim 17/11 kl. 20:00 117.s
Fös 21/10 kl. 20:00 104. s. Fim 3/11 kl. 20:00 111. s. Fös 18/11 kl. 20:00 118.s
Lau 22/10 kl. 20:00 105. s. Fös 4/11 kl. 20:00 112. s. Lau 19/11 kl. 20:00 119.s
Sun 23/10 kl. 20:00 106. s. Lau 5/11 kl. 20:00 113. s. Sun 20/11 kl. 20:00 120.s
Fim 27/10 kl. 20:00 107. s. Fös 11/11 kl. 20:00 114. s. Fim 24/11 kl. 20:00 121.s
Fös 28/10 kl. 20:00 108. s. Lau 12/11 kl. 20:00 115. s. Fös 25/11 kl. 20:00 122.s
Lau 29/10 kl. 20:00 109. s. Sun 13/11 kl. 20:00 116.s Lau 26/11 kl. 20:00 123.s
Gleðisprengjan heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 23/10 kl. 13:00 8. sýn Mið 2/11 kl. 19:00 aukas. Lau 12/11 kl. 13:00 13.sýn
Lau 29/10 kl. 13:00 9. sýn Lau 5/11 kl. 13:00 11.sýn Sun 13/11 kl. 13:00 14.sýn
Sun 30/10 kl. 13:00 10.sýn Sun 6/11 kl. 13:00 12.sýn
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Sending (Nýja sviðið)
Fim 20/10 kl. 20:00 13.sýn
Allra síðasta sýning!
Njála (Stóra sviðið)
Mið 19/10 kl. 20:00 Sun 6/11 kl. 20:00 Mið 16/11 kl. 20:00
Mið 26/10 kl. 20:00 Fim 10/11 kl. 20:00 Mið 23/11 kl. 20:00
Njáluhátíð í forsal frá kl. 18:45. Kjötsúpa og fyrirlestur.
Hannes og Smári (Litla sviðið)
Lau 22/10 kl. 20:00 6. sýn Lau 29/10 kl. 20:00 8. sýn Fim 3/11 kl. 20:00 aukas.
Sun 23/10 kl. 20:00 7. sýn Sun 30/10 kl. 20:00 9. sýn Lau 5/11 kl. 20:00 10.sýn
Samstarfsverkefni við Leikfélag Akureyrar
Extravaganza (Nýja svið )
Fös 28/10 kl. 20:00 Frums. Fös 4/11 kl. 20:00 4. sýn Fim 10/11 kl. 20:00 7. sýn
Lau 29/10 kl. 20:00 2. sýn Lau 5/11 kl. 20:00 5. sýn Sun 13/11 kl. 20:00 8. sýn
Sun 30/10 kl. 20:00 3. sýn Sun 6/11 kl. 20:00 6. sýn Mið 16/11 kl. 20:00 9.sýn
Nýtt verk eftir Sölku Guðmundsdóttur
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fös 4/11 kl. 20:00 Frums. Fim 17/11 kl. 20:00 7.sýn Sun 27/11 kl. 20:00 13.sýn
Sun 6/11 kl. 20:00 2.sýn Fös 18/11 kl. 20:00 8.sýn Lau 3/12 kl. 20:00 14.sýn
Mið 9/11 kl. 20:00 3.sýn Lau 19/11 kl. 20:00 9.sýn Sun 4/12 kl. 20:00 aukas.
Fim 10/11 kl. 20:00 4.sýn Sun 20/11 kl. 20:00 10.sýn Þri 6/12 kl. 20:00 15.sýn
Lau 12/11 kl. 20:00 5.sýn Fös 25/11 kl. 20:00 11.sýn Mið 7/12 kl. 20:00 16. sýn
Sun 13/11 kl. 20:00 6.sýn Lau 26/11 kl. 20:00 12.sýn
Átakamikið verk eftir Ingmar Bergman
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Það er viðeigandi að tveimurdögum eftir að Bob Dylaneru veitt bókmenntaverð-laun Nóbels sé frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu þetta kröftuga sviðs-
verk sem sækir safa sinn að miklu
leyti í spennuna milli há- og lág-
menningar, eða kannski í örvænt-
inguna yfir því hvað sú spenna er
orðin lítil á þessari póstmódernísku
skeggöld neyslu og nándarskorts.
Maður á besta aldri ákveður að
sólunda fátæklegum ævisparnað-
inum í sukkferð til Madrídar með
tveimur ungum sonum sínum.
Áfengi, eiturlyf, skyndimatur og fé-
lagsskapur þýsks heimspekings er
greiddur fullu verði, en hápunktur-
inn verður samt að brjótast inn í
Prado og eyða nótt með svörtu
myndum Goya. Drengirnir vilja
reyndar heldur fara í Disneyland í
París, lái þeim hver sem vill. Þetta
virðast vera merkilega klárir strák-
ar. En þetta er ekki þeirra ævi-
sparnaður. Karlinn ræður.
Það er mikil orka og hæfileg
óreiða í texta Rodrigó García. Bræð-
in út í öngstræti neyslusamfélagsins
og almennt glóruleysi nútímans er
einlæg en framsetningin kannski
ekki ýkja frumleg. Grunnhugmynd-
in – framvindan, ef svo mætti segja,
er þó snjöll og heldur vélinni vel
gangandi þann tæpa klukkutíma
sem sýningin tekur. Og vissulega er
stundum sagt eitthvað forvitnilegt
og afhjúpandi. Pælingarnar um sál-
fræði og jarðfræði þóttu mér til að
mynda spennandi. Ógnvekjandi
ræða um kjarna kynlífsins var einn-
ig öflug og eftirminnileg. Og svo
þarf maður víst að fara að skoða
verk Peter Sloterdijk, sem þeir
feðgar leigja sér eins og hverja aðra
hóru til að tala við sig um heimspeki
meðan þeir rúnta um Madríd og
háma í sig samlokur áður en há-
punktinum, Prado-heimsókninni, er
náð. Áhrifaríkust er þó afstaða per-
sónunnar til sona sinna, sex og ell-
efu ára. Hún er fyrir neðan allar
hellur ef horft er með raunsæisgler-
augum á verkið, en góðu heilli dreg-
ur García upp þannig mynd af
þroska drengjanna að það er óhugs-
andi að lesa í verkið á þann hátt.
Leikstjóri og leikari hafa tekið
djarfa ákvörðun um hvernig þau
vildu vinna úr þessum efnivið.
Óreiðan, ofbeldishugsunin og ólík-
indaleg bræðin virðist við fyrsta
lestur bjóða upp á trylling. Fullt af
leikmunum, mat, myndbönd; öll vin-
sælu hjálpartækin í dótakassa sam-
tímaleikhússins. Í enskri uppfærslu
fóru grísir með hlutverk sonanna
tveggja.
Ekki hér. Einangraður í reyk á
auðu sviði fer Stefán Hallur Stef-
ánsson með textann, segir okkur
þessa sögu. Í hljóðnema úr dóta-
kassanum reyndar, en aðallega er-
um við ein með manninum og orð-
unum.
Þessi dirfska borgar sig ríkulega.
Stefán Hallur sýnir hér á sér hliðar
sem hafa ekki verið áberandi í þeim
verkefnum sem leikhúsið hefur falið
honum undanfarið. Orkunni og ógn-
inni sem hann á svo auðvelt með að
miðla er ýtt til hliðar, pakkað niður.
Lágmæltur, hikandi leggur hann
upp í þessa Madrídarferð. Hér er
unnið af stakri fagmennsku á móti
textanum, og þannig tekst að miðla
merkingu hans á ferskan og óvænt-
an hátt.
Þetta er frábærlega gert. Stefáni
og Unu Þorleifsdóttur leikstjóra
hefur tekist sérlega vel upp með
greiningu og framsetningu textans.
Ögrandi innihaldið, grimmdin og
glóruleysi persónunnar, hugmynda-
legt erindi textans, er svolítið látið
sjá um sig sjálft. Ekki látið taka ráð-
in af listamanninum. Hann segir
okkur bara söguna, tjáir okkur
hvernig honum líður. Við förum með
honum í þessa feigðarför. Sitjum við
eldhúsborðið þar sem lagt er á ráðin
og rifist um aðdráttarafl Goya og
Walt, erum í sætaröðinni fyrir aftan
þá feðga á fluginu, í leigubílnum
sem hringsólar um flugvöllinn með-
an beðið eftir að þýski
heimspekingurinn lendi.
Það er mikið öryggi í efnistökum
sýningarinnar. Traust á leikaranum
og einföldustu meðulum leikhússins.
Þannig færumst við nær þessum
ógeðfellda og ógnvekjandi manni,
hlustum á hann með opnari hug en
ef hann færi um öskrandi, rífandi og
tætandi allt sem fyrir verður, sem
hefði verið svo augljós og fyrirsjáan-
leg leið. Fyrir vikið nær það sem
hann hefur að segja um siðmenn-
ingu á síðustu metrunum til okkar.
Með því að gera sig varnarlausan
gerir Stefán Hallur það sama við
okkur.
Ég vil frekar að Goya haldi fyrir
mér vöku en einhver djöfulsins fá-
viti er kröftug sýning með alvöru er-
indi, miðlað af öguðu listfengi.
Spennandi leikhús í sinni nöktustu
mynd.
Þjóðleikhúsið
Ég vil frekar að Goya haldi fyrir mér
vöku en einhver djöfulsins fáviti
bbbbn
Eftir Rodrigó García. Þýðing: Stefán
Hallur Stefánsson og Una Þorleifsdóttir.
Leikstjórn: Una Þorleifsdóttir. Leikari:
Stefán Hallur Stefánsson Lýsing: Magn-
ús Arnar Sigurðarson. Leikmynd og
búningur: Stefán Hallur Stefánsson og
Una Þorleifsdóttir. Leikhópurinn ST/
una setur upp í samstarfi við Þjóðleik-
húsið. Frumsýning í Kúlunni í Þjóðleik-
húsinu laugardaginn 15. október 2016.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Stefán Hallur Kröftug sýning með alvöru erindi, miðlað af öguðu listfengi.
Spennandi leikhús í sinni nöktustu mynd, segir meðal annars í umsögn.
Kall á barmi taugaáfalls
Árni Þórarinsson hefurhaft hljótt um sig ábókamarkaðnum und-anfarin þrjú ár en nú
snýr hann öflugur aftur með Ein-
ar, blaðamann á Síðdegisblaðinu, í
bókinni 13 dagar.
Skáldsagan 13
dagar er glæpa-
saga sem gerist
í Reykjavík og
nágrenni, átaka-
saga þar sem
takast á brostn-
ar vonir og þrár,
samtímasaga þar
sem augum er
beint að vanda-
málum í heimi spillingar, upp-
gjörssaga þar sem margar spurn-
ingar vakna án þess að þeim verði
endilega svarað. Margslungin saga
sem er listilega vel úthugsuð og
mestmegnis skrifuð á raunsæjan
hátt.
Í huga margra er talan 13
óhappatala og með það í huga á
heiti þessarar nýjustu spennusögu
Árna vel við. Hjá öðrum er talan
13 happatala og þeir þurfa ekki að
örvænta því fátt er svo með öllu
illt að ei boði gott. Það á bara eft-
ir að koma í ljós!
Hver hefur sinn djöful að draga
og í bókinni varpar Árni ljósi á
mismunandi vandamál, hvort sem
er í harðsvíruðu viðskiptaum-
hverfi, í heimi laganna varða eða í
sístækkandi veröld eiturlyfja,
mansals, vændis og samskipta
fólks af mismunandi uppruna, þar
sem óhugnaðurinn færist nær og
nær og enginn virðist ráða sínum
næturstað.
Stúlka á unglingsaldri er mið-
punkturinn en hvert sem litið er
út frá henni blasa vandræðin við.
Nútíminn er slæmur, draugar for-
tíðar gera illt verra og framtíðin
er óskrifað blað.
Einar kemur nú fyrir sjónir sem
yfirvegaður maður en Gunnsa,
dóttir hans, er áköf og villt. Sam-
starf blaðamannanna við Jónas
rannsóknarlögregluforingja er of
gott til þess að vera trúverðugt en
annars gengur sagan hægt og
örugglega fram veginn. Húmorinn
er fyrir hendi og að sjálfsögðu
koma söngtextar við sögu. Höf-
undur nálgast viðfangsefnið á
eftirtektarverðan hátt með þeim
árangri að sagan situr í lesand-
anum og nagar hann inn að beini.
Margslungin
glæpasaga hjá Árna
Skáldsaga
13 dagar bbbbn
Eftir Árna Þórarinsson. 279 bls.
JPV útgáfa 2016.
STEINÞÓR GUÐ-
BJARTSSON
BÆKUR
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Árni Þórarinsson „Höfundur nálg-
ast viðfangsefnið á eftirtektar-
verðan hátt,“ segir í umsögn.
Reykjavík fagnar fimm ára afmæli
sem Bókmenntaborg UNESCO nú í
haust. Af því tilefni efnir Bók-
menntaborgin til málþings um
gildi orðlistar í samfélaginu í sam-
vinnu við Rithöfundasamband Ís-
lands. Þingið er haldið í Tjarn-
arsal Ráðhúss Reykjavíkur á
morgun frá kl. 13-16 og er öllum
opið.
Rithöfundar, fræðimenn, útgef-
endur, fjölmiðlafólk og lesendur
taka til máls og ræða um orðlist í
víðu samhengi. Hvaða máli skiptir
það okkur sem samfélag að hlúa
vel að orðlist og hvernig stöndum
við okkur í þessu hlutverki í dag?
Hvað gerum við vel og hvað get-
um við gert betur? Erum við bók-
menntaþjóð? Hvers konar sögueyja
er Ísland? Rætt verður um til-
ganginn og markmiðin, gildi orð-
listar í samfélaginu og framtíð-
arhorfur texta og tungumáls.
Hlúum við að bókmenntunum eða
eru þær að hverfa sem áhrifavald-
ur og annað að koma í staðinn?
Meðal þeirra sem koma fram á
þinginu eru Eliza Reid, for-
setafrú og stofnandi Iceland Wri-
ters Retreat, Brynhildur Þór-
arinsdóttir dósent frá
Háskólanum á Akureyri, Kristín
Helga Gunnarsdóttir, formaður
Rithöfundasambandsins, rithöf-
undarnir Hallgrímur Helgason,
Hildur Knútsdóttir og Ragnhild-
ur Hólmgeirsdóttir, Valgerður
Þóroddsdóttir, rithöfundur og út-
gefandi, Jórunn Sigurðardóttir
útvarpskona og Magnús Guð-
mundsson blaðamaður. Lista-
mennirnir Ásta Fanney Sigurðar-
dóttir og Kött Grá Pje koma
fram. Fundarstjóri verður Svan-
hildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri
Menningar- og ferðamálasviðs
Reykjavíkur.
Málþing um gildi orðlistar
Eliza
Reid
Kristín Helga
Gunnarsdóttir