Morgunblaðið - 28.10.2016, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Helstu forystumenn í samtökum tónlistarmanna
hér á landi héldu kveðjuhóf í Hannesarholti í
gær fyrir Illuga Gunnarsson, sem lætur af störf-
um sem mennta- og menningarmálaráðherra og
hverfur af þingi. Að sögn Jakobs Frímanns
Magnússonar var þetta gert til að þakka Illuga
fyrir framlag hans til tónlistarinnar á liðnu kjör-
tímabili. Illugi settist við flygilinn og spilaði
nokkur létt lög við góðar undirtektir viðstaddra.
Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari lék einnig
á hljóðfærið við sama tækifæri og tók m.a. lög
eftir tónskáldið og píanóleikarann Philip Glass.
Tók lokalagið sem menntamálaráðherra
Morgunblaðið/Eggert
Tónlistarmenn þökkuðu Illuga Gunnarssyni fyrir framlag sitt til listarinnar á kjörtímabilinu
Verð fyrir innvegna mjólk umfram
kvóta lækkar um áramót um 15
krónur á lítrann. Stjórn Auðhumlu,
móðurfélags Mjólkursamsölunnar,
ákvað það í gær. Verðið verður samt
sem áður yfir verði sem útfluttar af-
urðir skila að meðaltali.
Bændur hafa fengið fullt afurða-
stöðvaverð fyrir alla innlagða mjólk
síðustu árin, hvort sem hún er innan
kvóta eða umfram. Framleiðsla
jókst mjög á síðasta ári og fyrstu
mánuðum þessa árs og er talsvert
umfram þarfir innanlandsmarkaðar.
Auðhumla hóf innheimtu á 20
króna innvigtunargjaldi á lítra 1. júlí
sl. til að slá á framleiðslu. Jafnframt
hefur verið búist við að frá komandi
áramótum yrði aðeins greitt það
verð fyrir umframmjólk sem útflutn-
ingur skilar. Í ákvörðun Auðhumlu
nú felst að verðskerðingin er aukin
um 15 krónur á lítrann og verður 35
krónur. Miðað við verð á mjólk til
bænda í dag þýðir það að þeir fá 51
krónu fyrir umframmjólkina í stað
86 króna afurðastöðvarverðs. Að
auki fá bændur beingreiðslur sam-
kvæmt samningum við ríkið.
Gerð málamiðlun
Egill Sigurðsson, formaður
stjórna Auðhumlu og Mjólkursam-
sölunnar, segir að það verð sem
greitt er fyrir umframmjólkina sé
hærra en útflutningurinn skili að
jafnaði. Gerð hafi verið ákveðin
málamiðlun sjónarmiða til að
slökkva ekki alveg á framleiðsluvilja
þeirra sem framleiði mjólk umfram
kvóta. Framleiðslan hefur verið að
minnka undanfarna mánuði og salan
að aukast og á Egill von á því að
jafnvægi framboðs og eftirspurnar
náist jafnvel um áramót. Fylgst
verður vel með þróuninni á næst-
unni og ákvörðun um verð fyrir um-
frammjólk endurskoðuð reglulega
allt næsta ár.
helgi@mbl.is
51 kr. fyrir mjólkina
Stjórn Auðhumlu vill ekki slökkva á framleiðsluvilja bænda
Verð fyrir mjólk umfram kvóta hærra en útflutningur skilar
Kýr Nyt kúnna og sala mjólkur á
næsta ári hefur áhrif á verðið.
Áætlað er að kísilverksmiðja Thor-
sil taki til starfa í Helguvík á fyrsta
ársfjórðungi 2019. Ógilding starfs-
leyfis Umhverfis-
stofnunar ætti
ekki að hafa áhrif
á það. Hún er þó
ein af forsendum
fjármögnunar
sem nú er unnið
að og gæti þess
vegna seinkað
undirbúningi, að
sögn John Fen-
ger, stjórnarformanns Thorsil.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála felldi úr gildi starfs-
leyfi sem Umhverfisstofnun hafði
gefið út fyrir reksturinn. Ástæðan
var formgalli. Stofnunin hafði fyrir
mistök ekki gefið almenningi alveg
nægan frest til að gera at-
hugasemdir þegar hún auglýsti
starfsleyfið.
Þurfum að fá þetta í höfn
Umhverfisstofnun getur þess í til-
kynningu að úrskurðurinn gefi ekki
til kynna að starfsleyfið sé haldið
efnislegum ágöllum. Hafinn sé
undirbúningur að nýrri auglýsingu.
John Fenger segir að þetta sé
óheppileg útkoma. „Þetta gæti vald-
ið seinkun en hefur ekki áhrif að
öðru leyti. Við vorum komnir ansi
langt með að klára hlutina en fyrst
verðum við að fá þetta í höfn,“ sagði
John við mbl.is í gær. helgi@mbl.is
Gæti tafið
undirbúninginn
John Fenger
Formgalli á starfsleyfi fyrir Thorsil
Líkamsleifar fundust í fjörunni við
Selatanga skammt frá Grindavík á
miðvikudag. Þetta staðfesti lög-
reglan í Reykjanesbæ. Brak af skútu
fannst á sama svæði, en fréttavefur
DV greindi fyrst frá málinu.
Verið er að rannsaka líkamsleif-
arnar, en ekki svo langt frá fannst
neyðarsendir úr frönsku seglskút-
unni Red Héol, sem hafði verið sakn-
að frá í sumar. Um borð í skútunni
var einn maður. Þyrluáhöfn Land-
helgisgæslunnar fann neyðar-
sendinn í fjöru austur af Hópsnesi
við Grindavík á miðvikudags-
morgun. Ekkert annað fannst þar en
björgunarsveitir voru sendar út til
að ganga fjörur. Eftir skamma leit
fundust líkamsleifarnar.
Líkfundur skammt
frá braki af skútu
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Við vitum það þótt við séum ekki
gömul í pólitík að málamiðlanir eru á
dagskrá. Þetta er bara niðurstaðan
úr samningaviðræðunum,“ segir
Einar Aðalsteinn Brynjólfsson, odd-
viti Pírata í Norðausturkjördæmi og
einn þriggja fulltrúa Pírata í samn-
inganefnd flokksins við aðra flokka
til að ræða samstarfsfleti og hugsan-
legt samstarf eftir kosningar.
Í gær lauk fundi þeirra með Sam-
fylkingunni, Bjartri framtíð og
Vinstri grænum og eftir þann fund
gáfu Píratar það út að það væri ekki
lengur ófrávíkjanlegt skilyrði að
næsta kjörtímabil yrði stutt, þótt for-
ystumenn flokksins hafi margsagt að
það væri ófrávíkjanlegt skilyrði.
Ekki er langt síðan Birgitta Jóns-
dóttir sagði að enginn afsláttur yrði
gefinn af þeirri kröfu og stutt er síð-
an Smári McCarthy ítrekaði að þau
myndu ekki víkja frá þeirri kröfu. En
frá og með gærdeginum horfa málin
öðruvísi við. „Það er núna mat okkar
að við eigum ekki að gera kröfu um
stutt kjörtímabil,“ segir Einar.
- Er þá meginmarkmiðið að ná
saman við Bjarta framtíð, Vinstri
græn og Samfylkingu?
„Við viljum breyta þessu samfélagi
og til þess þurfum við að komast að
og án þess að vera með Sjálf-
stæðisflokknum eða Framsóknar-
flokknum. Það þarf stundum að gera
málamiðlanir til að ná slíkum mark-
miðum. Við erum ekki síst í pólitík til
að hafa áhrif og ég tel okkur þegar
vera farin að hafa áhrif.
Til dæmis í þessum samningavið-
ræðum erum við þrjú frá flokknum
sem höfum þetta samningavald, ég,
Birgitta Jónsdóttir og Smári
McCarthy, en vanalega hafa þetta
bara verið formenn flokkanna að
hittast. Hinir flokkarnir eru líka með
fleiri en einn á fundunum, þetta eru
góð áhrif sem við erum að hafa, þótt í
litlu sé.“
- Hvað finnst þér um tilkynn-
inguna frá Bjartri framtíð sem
hljómaði eins og þau væru að segja
að þau vildu alls ekki binda sig við
ykkur eða aðra flokka fyrir kosn-
ingar?
„Þetta er bara þeirra leið í þeirra
kosningabaráttu. Þau eru að marka
sér sérstöðu. Fundurinn gekk mjög
vel og við náðum vel saman,“ segir
Einar.
Björt framtíð gaf út yfirlýsingu
eftir fundinn í gær sem áréttaði að
flokkurinn stæði á gildum sínum og
pólitísku prinsippum þegar gengið
yrði til kosninga og stjórnar-
myndunarviðræðna. Óttarr Proppé,
formaður BF, segir að þau hafi viljað
benda á það með þessari yfirlýsingu
að þetta væru ólíkir flokkar og að
Björt framtíð væri frjálslyndur
miðjuflokkur. „Eins og við höfum
sagt frá upphafi í þessum viðræðum
við stjórnarandstöðuflokkana lítum
við á þetta sem samtal og að málefnin
munu ráða eftir kosningar. Þetta er
engin breyting af okkar hálfu. Okkur
finnst eðlilegt að ef stjórnin fellur
muni þessir flokkar ræða saman,“
segir Óttarr.
Krefjast ekki lengur styttra tímabils
Píratar eru ekki lengur á því að kjörtímabilið þurfi að vera stutt Formaður Bjartrar framtíðar er
ánægður með samstarfið við stjórnarandstöðuflokkana en bendir á að þetta séu ólíkir flokkar
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Samráð Flokkar stjórnarandstöð-
unnar ræða saman fyrir kosningar.
Lögreglumenn víðast hvar um land
eru ósáttir við starfsaðstæður sínar
og kjör. Lögreglufélag Austurlands
sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar
sem segir meðal annars:
„Mannekla, búnaðarskortur, fjár-
skortur og áralangt skilningsleysi
gagnvart störfum lögreglu er ekki
til komið vegna vankunnáttu
stjórnmálamanna, heldur vegna
viljaleysis þeirra til að bæta stöðu
lögreglunnar.“
Skorar félagið á frambjóðendur
allra flokka að láta sig löggæslu-
málin varða og hefja vinnu við að
endurreisa lögregluna á Íslandi.
Mannekla og fjár-
skortur lögreglu