Morgunblaðið - 28.10.2016, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016
Audi Q7 e-tron var valinn jeppi ársins 2017
af bílablaðamönnum á Íslandi. Hann er
fjórhjóladrifinn tengiltvinnbíll sem sameinar
krafta rafmagnsmótors og dísilvélar.
Q7 e-tron quattro er sparneytinn, umhverfismildur og eldsneytis-
notkunin er aðeins 1,9 lítrar á hverja 100 km. Mættu nýrri árstíð
með grænni samvisku og allt að 56 km drægni á rafmagni.
Komdu við og upplifðu Q7 e-tron quattro í hversdagslífinu.
Jón Þórisson
Kristján H. Johannessen
Stjórnarandstöðuflokkarnir fjórir,
Björt framtíð, Samfylking, Vinstri
græn og Píratar, myndu fá samtals
33 þingmenn og meirihluta á þingi
yrðu úrslit kosninga í samræmi við
niðurstöður nýrrar skoðanakönnun-
ar sem Félagsvísindastofnun Há-
skólans gerði fyrir Morgunblaðið.
Afstaða svarenda var könnuð jafnt
og þétt dagana 20. til 27. október.
Í súluriti hér að ofan sést þróun
fylgis hvers framboðs fyrir sig í
þeim fjórum könnunum sem Fé-
lagsvísindastofnun hefur gert fyrir
Morgunblaðið og samanburður
sýndur við úrslit síðustu kosninga.
Af því sést að Sjálfstæðisflokkur
mælist nú með mest fylgi framboða,
eða tæp 23%. Það er heldur meira
en í síðustu könnunum en minna en
í kosningum. Það myndi skila
flokknum 16 þingmönnum. Píratar
mælast lægri en áður en kæmu
næstir með 21% fylgi og 14 þing-
menn. Næst væru Vinstri græn með
17% fylgi og 11 þingmenn en það er
minna en í síðustu könnunum. Því
næst Viðreisn með rúmlega 11%
fylgi og 7 þingmenn. Þá kemur
Framsóknarflokkur með 10% fylgi
og 7 þingmenn og hækkar aðeins.
Björt framtíð mælist með tæplega
7% fylgi og Samfylkingin með tæp-
lega 6%. Báðir flokkar fengju 4
þingmenn, yrðu þetta úrslit kosn-
inga. Önnur framboð mælast með
2% fylgi eða minna og koma ekki
mönnum að.
Fleiri ungir styðja Pírata
Frá síðustu könnun Félagsvís-
indastofnunar hafa Sjálfstæðisflokk-
ur, Framsókn, Viðreisn, Björt fram-
tíð og Dögun bætt við sig fylgi.
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur fá hlutfallslega meira fylgi
frá körlum en konum en VG á áber-
andi meiri stuðning meðal kvenna.
Píratar eru með þriðjungs til
fjórðungs fylgi fólks undir 44 ára
aldri en stuðningur við flokkinn fer
minnkandi þegar ofar dregur í aldri.
Viðreisn á einnig meiri stuðning hjá
yngsta aldurshópnum en þeim elsta.
Þessu er öfugt farið hjá Framsókn-
arflokki, Sjálfstæðisflokki og VG.
Könnunin var net- og símakönn-
un. Úrtakið var 4.000 manns. Þar af
svöruðu 2.428 og er svarhlutfallið
um 61%. Rúmlega 83% þeirra sem
svöruðu tóku afstöðu til framboða.
Fylgi flokka fyrir alþingiskosningar
H
ei
m
ild
:F
él
ag
sv
ís
in
da
st
of
nu
n
H
ás
kó
la
Ís
la
nd
s
Niðurstöður skoðanakönnunar
Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið
Úrslit kosninga 2013
Skoðanakönnun 6. okt.
Skoðanakönnun 13. okt.
Skoðanakönnun 20. okt.
Sjálfstæðisflokkurinn
26
,7
%
26
%
21
,5
%
21
,1%
22
,5
%
Píratar
21
,2
%
19
,8
%
5,
1%
17
,5
%
22
,6
%
Vinstri Græn
16
,8
%
16
,5
%
10
,9
%
17
,7
% 18
,6
%
Viðreisn
11
,4
%
11
,7
%
11
,4
%
8,
8%
Framsóknarflokkurinn
10
,2
%
9,
7%
24
,4
%
8,
6% 9,
1%
Samfylkingin
5,
7%
6,
3%
12
,9
%
6,
9%
6,
5%
Björt framtíð
6,
7%4
,1%
8,
2%
7,7
%
6%
Flokkur fólksins
2,
1%3,2
%
3% 3
,8
%
Ísl. þjóðfylkingin
0,
4%2
,2
%
2,
7%
1,6
%
Dögun
2,
2%3,1
%
0,
3% 1
,9
%
1,2
%
Alþýðufylkingin
0,
3%
0,
3%
0,
1% 0,
8%
0,
5%
Fl. heimilanna
0
%
0%
3%
0% 0
,2
%
Húmanistaflokkurinn
0,
1%
0%0,
1%
0,
1%
0%
Fjögurra flokka stjórn í meirihluta
Sjálfstæðisflokkur, Framsókn, Viðreisn, Björt framtíð og Dögun bæta við sig frá síðustu könnun
ALÞINGISKOSNINGAR 2016
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flokkar Fulltrúar flokkanna tóku
til máls á þingi ASÍ í gær.