Morgunblaðið - 28.10.2016, Qupperneq 5
5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016
„Við erum auðvitað
ánægð með þessa könn-
un, en fylgið þarf einnig
að skila sér á kjörstað,“
segir Katrín Jakobs-
dóttir, formaður Vinstri
grænna, og bætir við að
flokkur hennar hafi að
undanförnu fundið mjög
fyrir góðum meðbyr og
þau fengið jákvæð við-
brögð meðal kjósenda.
Aðspurð segist Katrín
ekki óttast að fjögurra
flokka ríkisstjórn verði
veik yrði hún stofnuð.
„Það er ekki náttúru-
lögmál að fjölflokka
stjórnir séu veikari fyrir
en tveggja flokka ríkis-
stjórnir. Ég minni nú
bara á að það hefur all-
mikið gengið á í síðustu
tveggja flokka stjórnum
sem við höfum haft hér í
landinu,“ segir hún.
Katrín
Jakobsdóttir
Óttast ekki
veika stjórn
„Þetta er ánægjuleg nið-
urstaða og við erum
mjög kát með hversu vel
hefur gengið og finnum
fyrir auknum byr í segl-
in,“ segir Benedikt Jó-
hannesson, formaður
Viðreisnar, og bætir við
að valkostir kjósenda séu
skýrari fyrir þessar
kosningar en áður.
„Uppi er hugmynd um
vinstri stjórn, önnur um
óbreytta stjórn og svo er
þriðji kosturinn, Við-
reisn, ef menn vilja
breytingar með fram-
sæknum miðjuflokki.“
Samkvæmt könnun-
inni er Benedikt ekki
inni. „Maður vonar þó
auðvitað að þetta fari
betur, en þá verðum við
að sækja í okkur veðrið
fyrir norðan og munum
nýta lokasprettinn vel.“
Benedikt
Jóhannesson
Finna fyrir
auknum byr
Einar Aðalsteinn Brynj-
ólfsson, oddviti Pírata í
Norðausturkjördæmi,
segist bara sáttur við
niðurstöður könnunar-
innar, en þar eru þeir
með 21,2% fylgi, en
höfðu í síðustu könnun
mælst með 22,6% fylgi.
„Ég veit ekki hvernig ég
á að svara þér, þetta
fylgi í könnunum fer
stundum upp og stund-
um niður,“ segir Einar.
„Við tökum þessu bara af
æðruleysi. Það er bara
ein könnun sem skiptir
máli á endanum og það
er sú sem verður á
laugardaginn.Við erum
bara hin kátustu. Þetta
er meira en fjórföldun á
fylginu frá síðustu kosn-
ingum, þannig að við er-
um ánægð með viðtök-
urnar.“
Einar Aðalsteinn
Brynjólfsson
Tökum þessu
af æðruleysi
Þegar Óttarr Proppé,
formaður Bjartrar fram-
tíðar, er spurður út í við-
brögð sín við 6,7% fylgi
úr könnuninni, en flokk-
ur hans hafði mælst með
6% í síðustu könnun, seg-
ir hann að það sé
ánægjulegt að þetta sé
að færast í rétta átt.
„En þetta sýnir að
fylgið er á einhverri
ferð,“ segir Óttarr. „Við
þurfum að berjast fram á
síðustu stundu til að ná
árangri. En við höfum
verið að finna fyrir aukn-
um stuðningi. Það eru
verulega mikil og sterk
viðbrögð við því sem við
höfum verið að segja.
Þessi hreyfing upp á við
kemur því ekki á óvart.
En það er ekkert gefið í
þessu, þannig að við
megum ekki slaka á.“
Óttarr
Proppé
Finnum auk-
inn stuðning
Viðbrögð Lilju Alfreðs-
dóttur utanríkis-
ráðherra við nýrri könn-
un, sem sýnir að
Framsóknarflokkurinn
er með 10,2% fylgi sem
er rúmu prósenti betra
en í síðustu könnun,
voru skýr: „Við sjáum að
við erum að ná árangri,“
segir Lilja. „Tölurnar
eru að þokast uppá við.
Ég er sannfærð um að
við munum ná betri ár-
angri. Það eru tveir dag-
ar í kosningar og við
munum gera okkar til
að auka fylgið enn frek-
ar. Málflutningur okkar
er að nást í gegn. Við
nýtum þessa síðustu tvo
daga til að auka fylgið.
Ég hvet alla fram-
sóknarmenn til að nýta
tímann fram að kosn-
ingum.“
Lilja
Alfreðsdóttir
Við erum að
ná árangri
„Þetta veldur okkur
verulegum áhyggjum,
en við vitum ekki af
hverju þetta er. Við vit-
um þó fyrir víst að þetta
er ekki út af stefnunni
því fólk tekur mjög vel í
hana,“ segir Oddný G.
Harðardóttir, formaður
Samfylkingarinnar, og
bætir við að sigurvegari
kosningabaráttunnar nú
sé jafnaðarstefnan.
„Því flestir flokkar
þykjast vera jafnaðar-
flokkar rétt fyrir kosn-
ingar, en við erum það
allt árið um kring.“
Samkvæmt könnun-
inni er Oddný G. úti.
„Þetta er ekki gott, en
munum bara að niður-
staða kosninga ræður
úrslitum. Og við tökum
á þessum vanda þá, ef
hann er enn uppi.“
Oddný G.
Harðardóttir
Stefnan skýr-
ir ekki hrun
„Samkvæmt þessu stefn-
ir í vinstri stjórn hér á
Íslandi og vegna þess
hve mikið atkvæðin
dreifast er ljóst að fjóra
flokka þarf til að hnoða
þeirri stjórn saman,“
segir Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, og bæt-
ir við að slík ríkisstjórn
sé afar vond tíðindi fyrir
landsmenn.
„Ég vil í raun ekki
trúa því að þetta verði
niðurstaðan. En þetta
myndi þýða mjög veika
ríkisstjórn fjögurra
flokka sem hafa boðað
uppstokkun á stjórnar-
skrá, aðildarviðræður
við Evrópusambandið,
skattahækkanir og stór-
aukin ríkisútgjöld. Þessi
blanda getur reynst dýr-
keyptur kokteill.“
Viðbrögð stjórnmálaflokka sem ná inn þingmanni í nýrri könnun Félagsvísindastofnunar
Bjarni
Benediktsson
Stefnir allt í
vinstri stjórn
ALÞINGISKOSNINGAR 2016