Morgunblaðið - 28.10.2016, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016
Jón Þórisson
Kristján H. Johannessen
Nokkrar breytingar hafa orðið milli
vikna á hópi þeirra sem könnun Fé-
lagsvísindastofnunar sýnir að ná
muni manni inn á þing í kosningum
á morgun, laugardag.
Verði úrslit kosninga í samræmi
við niðurstöður þessarar nýjustu
könnunar er ljóst að formaður Við-
reisnar, Benedikt Jóhannesson, nær
ekki kjöri í Norðausturkjördæmi.
Þá sýnir þessi nýjasta könnun að
Oddný G. Harðardóttir, formaður
Samfylkingarinnar, nær ekki kjöri í
Suðurkjördæmi en sú var einnig
raunin í fyrstu könnun sem Fé-
lagsvísindastofnun gerði fyrir Morg-
unblaðið. Hins vegar sýndi niður-
staða könnunarinnar í síðastliðinni
viku að hún næði kjöri.
Lilja úti en Karl inni
Könnunin sýnir jafnframt að
verði úrslit kosninga á laugardag í
samræmi við hana verður Lilja
Dögg Alfreðsdóttir, utanríkisráð-
herra og varaformaður Fram-
sóknarflokksins, án þingsætis, en
hún býður sig fram í Reykjavíkur-
kjördæmi suður.
Af fleiri þingmönnum má nefna að
niðurstaða könnunarinnar sýnir að
Karl Garðarsson, oddviti Framsókn-
ar í Reykjavík norður, nær kjöri en
það var ekki reyndin í síðustu könn-
un. Sama má segja um þingmenn
Sjálfstæðisflokksins, þau Vilhjálm
Árnason og Unni Brá Konráðsdótt-
ur í Suðurkjördæmi og Sigríði Á.
Andersen í Reykjavík suður.
Könnunin sýnir enn sem fyrr að
Samfylkingarþingmennirnir Össur
Skarphéðinsson, Valgerður Bjarna-
dóttir og Helgi Hjörvar nái ekki
kjöri í Reykjavíkurkjördæmunum.
Þá eru enn utan þings þeir Birgir
Ármannsson og Vilhjálmur Bjarna-
son í Sjálfstæðisflokki. Sömu sögu
segir af Óla Birni Kárasyni í Suð-
vesturkjördæmi fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn.
Breytingar milli vikna
Helstu breytingar í þingmanna-
fjölda á landsvísu eru þær að Vinstri
græn missa tvo þingmenn, séu
niðurstöður þessarar könnunar
bornar saman við könnunina fyrir
viku. Fara þingmenn Vinstri
grænna úr 13 í 11. Sjálfstæðisflokk-
ur bætir við sig einum þingmanni
frá síðustu könnun, það er úr 15 í 16
þingmenn. Píratar missa einn mann,
fara úr 15 þingmönnum í 14.
Þá bætir Framsóknarflokkur við
sig manni frá síðustu könnun, fer úr
6 þingmönnum í 7. Sömu sögu er að
segja um Viðreisn, sem bætir við sig
einum manni frá síðustu könnun, fer
úr 6 þingmönnum í 7. Björt framtíð
mælist með 4 þingmenn eins og í
síðustu viku. Sömu sögu segir af
þingmannafjölda Samfylkingar, sem
mælist með 4 þingmenn eins og fyr-
ir viku.
Verði úrslit kosninganna í takt við
skoðanakönnunina myndi 31 nýr
þingmaður taka sæti á Alþingi. Af
63 þingmönnum yrðu 35 karlar og
28 konur. Það er mjög svipað kynja-
hlutfall og er á þingi í dag, eða 34
karlar á móti 29 konum.
Sumir væru þó ekki alveg nýir
þingmenn. T.d. hafa Þorgerður Katr-
ín Gunnarsdóttir og Jón Þór Ólafs-
son áður setið á Alþingi og nokkrir
aðrir verið varaþingmenn.
ALÞINGISKOSNINGAR 2016
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Óli Björn
Kárason
Sjálfstæðisflokkurinn
Vinstri græn
Píratar
Framsóknarflokkurinn
Samfylkingin
Björt framtíð
Viðreisn
Silja Dögg
Gunnarsdóttir
Oddný G.
Harðardóttir
Fá ekki
þingsæti skv.
skoðanakönnun
Birgir
Ármannsson
Vilhjálmur
Bjarnason
Páll Valur
Björnsson
Suðurkjördæmi – 10 þingsæti
Páll
Magnússon
Ásmundur
Friðriksson
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Ari Trausti
Guðmundsson
Smári
McCarthy
Oktavía
Jónsdóttir
Jóna Sólveig
Elínardóttir
Vilhjálmur
Árnason
Unnur Brá
Konráðsdóttir
Pawel
Bartoszek
Reykjavíkurkjördæmi suður – 11 þingsæti
Ólöf
Nordal
Brynjar
Níelsson
Ásta Guðrún
Helgadóttir
Viktor Orri
Valgarðsson
Gunnar Hrafn
Jónsson
Hanna Katrín
Fiðriksson
Nichole Leigh
Mosty
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
Svandís
Svavarsdóttir
Sigríður
Andersen
Össur
Skarphéðinsson
Valgerður
Bjarnadóttir
Helgi
Hjörvar
Willum Þór
Þórsson
Suðvesturkjördæmi – 13 þingsæti
Bjarni
Benediktsson
Bryndís
Haraldsdóttir
Jón
Gunnarson
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Jón Steindór
Valdimarsson
Rósa Björk
Brynjólfsdóttir
Ólafur Þór
Gunnarsson
Jón Þór
Ólafsson
Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir
Andri Þór
Sturluson
Árni Páll
Árnason
Óttarr
Proppé
Eygló Þóra
Harðardóttir
Reykjavíkurkjördæmi norður – 11 þingsæti
Birgitta
Jónsdóttir
Björn Leví
Gunnarsson
Halldóra
Mogensen
Katrín
Jakobsdóttir
Steinunn Þóra
Árnadóttir
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Þorsteinn
Víglundsson
Björt
Ólafsdóttir
Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir
Karl
Garðarsson
Líneik Anna
Sævarsdóttir
Benedikt
Jóhannesson
Gylfi
Ólafsson
Haraldur
Benediktsson
Eva Pandora
Baldursdóttir
Lilja Rafney
Pétursdóttir
Bjarni
Jónsson
Gunnar Bragi
Sveinsson
Elsa Lára
Arnardóttir
Guðjón
Brjánsson
Norðvesturkjördæmi – 8 þingsæti
Þórunn
Egilsdóttir
Norðausturkjördæmi – 10 þingsæti
Steingrímur J.
Sigfússon
Bjarkey Olsen
Gunnarsdóttir
Kristján Þór
Júlíusson
Njáll Trausti
Friðbertsson
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Logi
Einarsson
EinarAðalsteinn
Brynjólfsson
Guðrún Ágústa
Þórdísardóttir
Valgerður
Gunnarsdóttir
Tveir formenn án þingsætis
Könnun Félagsvísindastofnunar sýnir nokkrar tilfærslur þingmanna innan kjördæma Formenn
Samfylkingar og Viðreisnar ekki inni á þingi Varaformaður Framsóknarflokksins ekki heldur
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Óvissa ríkir um hverjir munu setjast í þingstóla að loknum kosningum helgarinnar. Verði úrslitin í takt við
niðurstöðu nýrrar könnunar Félagsvísindastofnunar mun 31 nýr þingmaður ná kjöri til Alþingis.