Morgunblaðið - 28.10.2016, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016
Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is
Moules Frites
Bière
Bláskel með frönskum
og bjór
3490,-
alla fimmtudaga
www.smarativoli.is / Sími 534 1900 / Smáralind
SKEMMTUN FYRIR ALLA!
ER AFMÆLI
FRAMUNDAN?
VERÐ
FRÁ
1.99
0,-
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Öryggis- og samvinnustofnun Evr-
ópu (ÖSE) sendir ekki fulltrúa hing-
að til lands til þess að hafa eftirlit
með framkvæmd alþingiskosning-
anna á morgun.
Urður Gunnarsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi utanríkisráðuneytisins, sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær að
nýverið hefði ráðuneytinu borist til-
kynning frá ÖSE um að stofnunin
teldi ekki þörf á að senda hingað til
lands fulltrúa til eftirlits með fram-
kvæmd kosninganna.
Ekki þörf á eftirliti
„Fulltrúar frá ÖSE komu hingað
til eftirlits með framkvæmd þing-
kosninganna 2009 og 2013. Þeir
gerðu jafnframt forkönnun á því
hvort senda bæri eftirlitsmenn hing-
að vegna forsetakosninganna í
sumar,“ sagði Urður, „en að þeirri
könnun gerðri ákváðu þeir að þess
gerðist ekki þörf eða ástæða til þess
að fylgjast sérstaklega með kosn-
ingum hér á landi. Ekkert hefði
komið á daginn frá því þeir voru hér
síðast sem sýndi fram á að ástæða
væri til þess að senda hingað eftir-
litsmenn og nýverið hafa þeir sent
okkur tilkynningu um þessa ákvörð-
un stofnunarinnar.“
Fjöldi erlendra fjölmiðla
Töluverður fjöldi erlendra fjöl-
miðla hefur boðað komu sína hingað
til lands til þess að fylgjast með
kosningunum á morgun og senda
fréttir til heimalanda sinna, bæði
sjónvarpsfréttir, útvarpsfréttir og
fréttir í prentmiðla.
Meðal erlendra fjölmiðla sem boð-
að hafa komu sína eru Danmarks
Radio, Yle Finnland, Daily Tele-
graph, Politiken, AFP, Washington
Post, AP, japanska ríkissjónvarpið
(NHK), Le Monde, Al-Jazeera og
Radio France.
Ekki lá fyrir í gær, þegar
Morgunblaðið hafði samband við
Ríkisútvarpið, hversu margar er-
lendu sjónvarpsstöðvanna myndu
óska eftir aðstöðu og samstarfi við
RÚV um útsendingar til heimalanda
sinna á kosningadag og kosninga-
nótt. Það mun að líkindum skýrast
þegar líða tekur á daginn í dag.
Sömu upplýsingar fengust á
fréttastofu Stöðvar 2, en þar á bæ
telja þeir að þær erlendu sjónvarps-
stöðvar sem muni leita eftir sam-
starfi við þá muni gera það í dag.
Flutningur kjörgagna af kjörstað
á talningarstað er á ábyrgð yfirkjör-
stjórna hvers kjördæmis og ákveða
þær með hvaða hætti hann fer fram.
Almenna reglan er sú að flutningur
er ýmist í höndum kjörstjórna eða
lögreglu en þó hefur það í einhverj-
um tilvikum gerst að flutningur
kjörgagna sé í höndum öryggis-
fyrirtækja.
Í Norðvesturkjördæmi eru 50
kjördeildir, samkvæmt Kristjáni G.
Jóhannssyni, formanni yfirkjör-
stjórnar. Í hverri kjördeild er
þriggja manna kjörstjórn, þannig að
þar eru 150 manns í stjórnum undir-
kjördeilda, auk þess sem þriggja
manna yfirkjörstjórnir eru á fimm
stöðum, og þar bætast við 15 manns
í kjörstjórnir. Kristján sagði að í
Norðvesturkjördæmi sæi lögreglan
að langmestu um flutning kjörgagna
á talningarstaði.
Sams konar fyrirkomulag er í öll-
um kjördæmum, þannig að fjöldi í
kjörstjórnum hvers kjördæmis tek-
ur mið af fjölda kjördeilda og fjölda
yfirkjörstjórna.
Karl Gauti Hjaltason, formaður
yfirkjörstjórnar Suðurlandskjör-
dæmis, sagði í gær að í kjördæminu
væru 39 kjördeildir og kjörstjórnar-
menn væru því 117. Auk þeirra
væru nokkrar yfirkjörstjórnir, sem
hver væri skipuð þremur mönnum.
Meginreglan væri sú að hver
kjörstjórn annaðist flutning kjör-
gagna á talningarstað, en ef lengra
væri að fara, eins og t.d. í tilfelli
Hornafjarðar og Vestmannaeyja,
annaðist lögreglan flutning kjör-
gagna.
Morgunblaðið/RAX
Kjörstaður Fjölmargir lögðu leið sína í Perluna í gær að kjósa.
Undirbúningur er á lokastigi
ÖSE sér enga ástæðu til að senda eftirlitsmenn hingað Margir erlendir fjölmiðlar mættir
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Þeir sjö stjórnmálaflokkar sem lík-
legastir eru til að eiga fulltrúa á Al-
þingi eftir komandi þingkosningar
eru allir hlynntir breytingum á
stjórnarskrá Íslands. Einn þeirra
telur hins vegar brýnt að þær séu
gerðar af yfirvegun og í áföngum til
að skapa þverpólitíska sátt.
Björt framtíð segist á heimasíðu
sinni leggja þunga áherslu á að
breytingar verði gerðar á stjórnar-
skrá „í samræmi við vilja þjóðar-
innar, eins og hann birtist í þjóðar-
atkvæðagreiðslu um stjórnar-
skrárbreytingar haustið 2012“.
Framsóknarflokkurinn telur mik-
ilvægt að fyrst sé horft til breytinga
er snerta auðlindaákvæði og beint
lýðræði, en flokkurinn hafnar hins
vegar hugmyndum um að landið
verði gert að einu kjördæmi. „Frek-
ar þarf að horfa til þess að fjölga
kjördæmum frá því sem nú er,“ seg-
ir í svari til Morgunblaðsins.
Forðast skal umturnun
Samfylkingin vill breytingar á
grundvelli stjórnlagaráðs. „Við vilj-
um raunverulegt þingræði og jafnt
vægi atkvæða allra kjósenda.
Stjórnarskrá skal leggja áherslu á
kvenfrelsi og fyllstu mannréttindi,
þ.m.t. efnahagsleg, félagsleg og
menningarleg réttindi,“ segir í svari.
Sjálfstæðisflokkurinn telur að
fara skuli varlega í breytingar á
stjórnarskránni. „Heildarendur-
skoðun og umturnun á öllum ákvæð-
um stjórnarskrárinnar samræmist
illa sjónarmiðum um réttaröryggi,
stöðugleika og fyrirsjáanleika,“ seg-
ir á heimasíðu flokksins. Flokkurinn
telur að þær tillögur sem liggja fyrir
frá stjórnarskrárnefnd séu „góður
grunnur að breytingum,“ en kallar
eftir víðtækri pólitískri sátt í ferlinu.
Píratar vilja setja nýja stjórnar-
skrá í forgang á næsta kjörtímabili
og „uppfæra“ þannig Ísland. Flokk-
urinn segist vilja „efna það loforð
sem þjóðinni hefur verið gefið allt
frá lýðveldisstofnun […] um nýja
stjórnarskrá sem tekur mið af
breyttum stjórnarháttum.“
Viðreisn vill endurskoðun í áföng-
um og „í heildstæðu, skýru og tíma-
settu ferli.“ Vinstri græn segjast
vilja „ljúka þeirri vinnu sem hófst
með þjóðfundinum 2010 og klára
nýja stjórnarskrá sem byggist á til-
lögum Stjórnlagaráðs.“
Enginn gegn breyting-
um á stjórnarskrá
Einn flokkanna vill „uppfæra Ísland“ en annar varar við
Morgunblaðið/Ómar
Alþingi Almennar þingkosningar
munu fara fram á morgun.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Stjórnmálaflokkarnir sjö sem líkleg-
astir eru til að eiga fulltrúa á Alþingi
eftir komandi þingkosningar leggja
allir áherslu á sjálfbæra nýtingu
auðlinda og vilja flestir þeirra sann-
gjarnt nýtingargjald. Sumir flokk-
anna leggja áherslu á aukið raforku-
gjald til stóriðju.
Björt framtíð vill auka virðisauka
með því að „nýta betur“ auðlindir. Á
heimasíðu flokksins segir m.a. að
„gjald fyrir afnot af sjávarauðlind-
um [sé] í mýflugumynd“ og að
tekjur af orkusölu geti „aukist veru-
lega“ greiði stóriðja hærra raforku-
verð.
Framsóknarflokkurinn vill að
auðlindaákvæði verði sett í stjórnar-
skrá Íslands og að landsmönnum
verði tryggður sanngjarn arður af
sameiginlegum auðlindum. „Lög-
festa þarf hvað flokkast til auðlinda
hér á landi, eins og kostur er, og
hvaða auðlindir Íslands skulu vera í
þjóðareign,“ segir í svari til
Morgunblaðsins.
Fiskveiðikvótinn fari í uppboð
Samfylkingin telur nauðsynlegt
að hækka auðlindagjöld til að „létta
byrðum“ almennings. „Við viljum
bjóða út kvótann og fá meiri tekjur
af þeim mikla fjölda ferðamanna
sem hingað koma,“ segir í svari, en
sérstakur raforkuskattur á stóriðju
hugnast flokknum einnig.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur
áherslu á víðtæka sátt um nýtingu
náttúruauðlinda. Flokkurinn er
fylgjandi gjaldtöku til að „vernda og
stýra aðgangi ferðamanna að við-
kvæmum svæðum“ og að ráðstöfun
nýtingarréttinda sé gagnsæ.
Píratar leggja áherslu á að auð-
lindir verði í þjóðareign og að al-
menningur fái „sanngjarnan arð“ af
nýtingu þeirra.
Viðreisn vill að náttúra njóti ávallt
vafans þegar kemur að nýtingu auð-
linda og að tekið verði upp markaðs-
tengt afgjald fyrir nýtingu auðlinda
í almannaeigu. „Afgjaldið nemi að
lágmarki þeim umhverfiskostnaði
sem nýtingin veldur. Viðreisn legg-
ur til að í sjávarútvegi verði tekið
upp markaðstengt auðlindagjald.“
Vinstri græn vilja að „arðurinn af
sjávarauðlindinni renni til þjóðar-
innar til uppbyggingar innviða og
reksturs velferðarkerfisins“ og að
almennt gjald verði innheimt af nýt-
ingu náttúruauðlinda.
Sjálfbær nýting og
sanngjarnt gjald
Sumir vilja aukinn skatt á stóriðju
Morgunblaðið/Kristinn
Þingsalur Eftir kosningar kemur í
ljós hvaða fólk tekur sæti þar.
ALÞINGISKOSNINGAR 2016