Morgunblaðið - 28.10.2016, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR SKODA
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem
uppfyllir allar ströngustu kröfur Skoda.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk
starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Ég vissi ekki að þettaværi til fyrr en árið 2007en eftir að ég prófaði svif-vængjaflug fyrst varð
ekki aftur snúið,“ segir Anita Hafdís
Björnsdóttir, sem ásamt Róberti
Bragasyni stofnaði fyrirtækið
Happyworld sem hefur boðið ferða-
mönnum upp á svifvængjaflug, fis-
flug og svifflug frá árinu 2014. „Ró-
bert kenndi mér árið 2007 að fljúga
og ég varð alveg hugfangin af þessu
flugi og vildi ekki gera neitt annað.
Svo vatt þetta upp á sig þegar fólk
spurði okkur hvort það mætti ekki
koma með og smám saman byrj-
uðum við kynningarflug áður en
þetta fyrirtæki var stofnað,“ segir
Anita.
Ný vídd í útivistina
Hún segir að veður hamli svif-
flugsíþróttinni á veturna og fyrir
vikið hafa þau einnig boðið upp á
norðurljósaferðir ásamt stjörnu-
skoðun á veturna. „Þeir sem koma
til okkar í svifvængjaflugið eru flest-
ir útlendingar. Þetta er nokkuð sem
maður gerir frekar sem ferðamaður.
Síðan er nokkuð um að fólk komi eft-
ir að hafa fengið stórafmælisgjöf.
Gjarnan eru kærustupör að gefa
hvort öðru þetta í gjöf þegar Íslend-
ingar koma,“ segir Anita.
Viðskiptavinir fara yfirleitt í
svifvængjaflug og þurfa enga sér-
þekkingu á fluginu áður en farið er
af stað því þeir eru ávallt með
reyndri manneskju í för. „Þessi lífs-
reynsla verður oft til þess að fólk fer
á námskeið og lærir handtökin
Eins konar hug-
leiðsla í háloftunum
Anita Hafdís Björnsdóttir og Róbert Bragason stofnuðu svifflugsfyrirtæki árið
2014. Þvert á það sem þau ætluðu fyrir fram hafa einhleypar konur verið stærstur
hópur viðskiptavina. Sjálf kynntist Anita íþróttinni árið 2007 og varð hugfangin
af henni um leið. Hún líkir svifvængjaflugi við eins konar hugleiðslu, þar sem
hraðinn er ekki aðalmálið heldur að njóta umhverfisins frá nýjum sjónarhóli.
Selaskoðun Margt má sjá úr lofti sem alla jafna er erfitt að komast að á
landi, eins og þessir selir sem sáust úr svifvængjaflugi eru gott dæmi um.
Svifvængjaflug Hægt er að skoða landið frá nýju sjónarhorni við svif-
vængjaflug. Fyrirtækið Happyworld hefur verið starfrækt síðan 2014.
Fjalla á um það sem efst er á baugi
í rannsóknum á sviði félagsvísinda á
Íslandi, á ráðstefnu í Háskóla Ís-
lands undir heitinu Þjóðarspegillinn.
Ráðstefnan hefst klukkan 9 í dag og
verða um 150 fyrirlestrar fluttir í
u.þ.b. 45 málstofum. Í ráðstefnuvik-
unni er veggspjaldasýning þar sem
fjölmargir fræðimenn, meistara- og
doktorsnemar kynna rannsóknir
sínar. Gert er ráð fyrir að hver fyr-
irlestur í málstofu taki u.þ.b. 15-20
mínútur og í framhaldi gefst ráðrúm
fyrir umræður í 5 mínútur. Á milli
málstofa er 15 mínútna hlé. Sérstök
athygli er vakin á því að sérstakur
gestur kemur fram á Þjóðarspegl-
inum, Cheikh Ibrahima Niang, pró-
fessor í mannfræði við Cheikh Anta
Diop-háskólann í Dakar í Senegal,
sem mun halda lykilerindi í Hátíða-
sal um ebólufaraldurinn í Vestur-
Afríku.
Fyrirlestrarnir fara fram á fimm
stöðum; Háskólatorgi, Aðalbyggingu,
Hátíðarsal, Lögbergi og Odda.
Áhugasömum er þó bent á að nánari
útlistun á þeim stofum sem fyrir-
lestrarnir fara fram í má nálgast á
vef Háskóla Íslands, hi.is. Fyrirlestr-
arnir hefjast klukkan 9.00 og
standa til 16.45.
150 fyrirlestrar í 45 málstofum
Morgunblaðið/Ómar
Háskóli Íslands Þjóðarspegillinn tekur á hinum ýmsu málum.
Ebólufaraldurinn og fleira
Málþing í tilefni af því að 100 ár eru
frá því að hornsteinn var lagður að
Listasafni Einars Jónssonar fer fram
á safninu á morgun laugardag kl. 14.
Benedikt Hjartarson mun fjalla um
þann hugmyndaheim sem verk Einars
eru sprottin úr, en Ólafur Rastrick
fjallar um safnhúsið og hugmyndina
um menningarmiðju á Skólavörðu-
holtinu. Einar Jónsson myndhöggvari
og Anna kona hans fluttu inní húsið
1919 en þá var það rétt fokhelt. Þau
hófu að koma sér fyrir og koma hús-
inu í þokkalegt stand og opnuðu
listasafnið árið 1923. Húsið er gjarn-
an nefnt Hnitbjörg í daglegu tali. Að-
gangur er ókeypis á málþingið og all-
ir eru velkomnir.
Öld síðan hornsteinn var lagður að Listasafni Einars Jónssonar
Hugmynda-
heimur Einars
Hnitbjörg Listasafn Einar Jónssonar.
Bubbi Morthens og Dimma leiða
saman hesta sína í tónleikaferð um
landið þessa dagana og í kvöld er
komið að Sjallanum á Akureyri.
Samstarfið er tilkomið vegna út-
gáfu tónleikaplötu þar sem lög Egó
eru spiluð.
Gaf Egó út tvær plötur og má
segja að hún sé afsprengi Utan-
garðsmanna sem vart þarf kynningar
við þar sem þrír meðlimir Egó voru
áður í Utangarðsmönnum. Verða
m.a. leikin lög Utangarðsmanna á
tónleikunum.
Tónleikaplatan Minnismerki með
Bubba Morthens og Dimmu þar sem
lög Egó voru spiluð er komin út, en
tónleikarnir sem hljóðritaðir voru á
plötuna voru teknir upp í Háskólabíói
fyrr á árinu. Tónleikarnir á Akureyri
fara hins vegar þannig fram að
Dimma mun hefja leik og flytja
helstu lög sín áður en Bubbi kemur á
sviðið og rennt verður í prógramm
sem mun innihalda helstu lög Utan-
garðsmanna, Das Kapital og Egó. Á
morgun verða Dimma og Bubbi svo á
Valaskjálf á Egilsstöðum. Miðasala
fer fram á enter.is og kostar miðinn
4.500 krónur.
Lög Egó, Das Kapital og Utangarðsmanna leikin
Bubbi og Dimma með rokktón-
leika í Sjallanum á Akureyri
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bubbi og Dimma Tónleikar verða í kvöld á Akureyri og á morgun á Egilsstöðum.