Morgunblaðið - 28.10.2016, Page 13

Morgunblaðið - 28.10.2016, Page 13
Yfir sig hrifnar Að sögn Anitu eru þeir sem prófa svifvængjaflugið alla jafna í skýjunum með upplifunina. sjálft,“ segir Anita. Að sögn hennar er fólk nær undantekningarlaust yf- ir sig hrifið af upplifuninni. „Það eru ekki allir að sækjast eftir adrenalín- inu, margir eru bara að sækjast eftir útivistinni og þeirri nýju vídd sem þessi útivist gefur lífinu,“ segir Anita. Oftar konur Hún segir að þvert á það sem þau höfðu haldið fyrir fram séu kon- ur í miklum meirihluta viðskipta- vina. „Oftast eru þetta einhleypar konur sem eru í leit að ævintýrum á ferð sinni um heiminn. Til okkar hef- ur líka komið nírætt fólk og krakkar. Þetta er fólk af öllum stigum lífs. Við héldum kannski að oftast yrðu þetta ungir strákar í leit að „adrenalín- kikki“ en reynslan hefur sýnt okkur annað,“ segir Anita. Þegar haldið er í svifvængjaflug er hlaupið fram af fjalli og eru nokkrir staðir umhverfis Reykjavík notaðir til þess eftir því hvernig vindar blása. „Adrenalínið felst að sjálfsögðu í því að hlaupa fram af fjalli og það er enginn mótor sem þú styðst við, heldur notast við upp- streymið og vinda til að svífa, líkt og fuglar gera. Svo fer þetta ekkert rosalega hratt, heldur snýst upplif- unin um að svífa og njóta umhverf- isins. Í hugum margra er þetta eins konar hugleiðsla,“ segir Anita. Hægt er að nálgast upplýsingar um svifflug á happyworld.is DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016 Af öryggisástæðum er ávallt varafallhlíf fest við búnaðinn. Að sögn Anitu hefur hún aldrei þurft á henni að halda, þeir sem notist við hana séu aðallega þeir sem færa út mörkin og eru að æfa fyrir keppni. Hún veit ekki til þess að neinn sem hún þekkir til hafi þurft að notast við þennan öryggisbúnað. Fallhlífin er með í för ÖRYGGISBÚNAÐUR Ljósmynd októbermánaðar birtir óvænta sýn á ljósmyndarann Jón Kal- dal sem þekktastur er fyrir svipmikl- ar portrettljósmyndir af þjóðþekkt- um einstaklingum. Myndin er hluti af myndskurðar- verkefni hjá Litla ljósmyndaklúbbn- um sem unnið var 27. janúar 1954. Klúbburinn var einn af merkustu klúbbum áhugaljósmyndara á Íslandi um miðbik 20. aldar. Verkefnin voru margvísleg: Myndatökur, skurðverk- efni og klippimyndagerð þar sem fé- lagsmenn æfðu formskyn og mynd- byggingu. Í þessu verkefni var nokkrum gest- um boðið að taka þátt og var Jón Kal- dal einn þeirra. Hluti af verkefninu var að gera skriflega grein fyrir því hvernig menn höguðu skurðinum en rökstuðningur Kaldals fyrir sinni út- færslu hefur ekki varðveist. Ljósmyndin er annars eðlis en Kal- dal fékkst jafnan við. Skurðurinn er ekki langt frá frumgerðinni svo Kal- dal fór ekki jafn tilraunakennda leið og einhverjir félaganna í klúbbnum. Margir skáru þannig að drengirnir þrír lengst t.h. urðu þungamiðjan en nokkrir fóru lengra inn í myndina og gerðu manninn með tunnuna að við- fangsefni. Það að Jón Kaldal skyldi taka þátt í verkefninu er til vitnis um samgang félagsmanna við hann og um sjálfsmynd Kaldals sem listræns ljósmyndara og fordómaleysi hans sem atvinnuljósmyndara gagnvart áhugaljósmyndurum. Ljósmynd mánaðarins í Þjóðminjasafninu Óvænt sýn á einn þekktasta ljósmyndara þjóðarinnar Ljósmyndari/Jón Kaldal Myndskurðarverkefni Þessi mynd er hluti af myndskurðarverkefni hjá Litla ljósmyndaklúbbnum sem unnið var 27. janúar árið 1954.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.