Morgunblaðið - 28.10.2016, Side 25

Morgunblaðið - 28.10.2016, Side 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016 VÖNDUÐ JEPPADEKK FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR DICK CEPEK dekkin eru amerísk gæðavara og þekkt fyrir frábæra endingu, auk þess að vera afar hljóðlát. DICK CEPEK dekkin fást í þremur mismunandi útfærslum í stærðum frá 29 til 44 tommu, og passa því undir flestar gerðir jeppa og jepplinga. NOKIAN er einn virtasti framleiðandi í heimi á vetrardekkjum. Arctic Trucks hefur átt gott samstarf við Nokian sem skilað hefur frábærum árangri, enda koma hér saman tveir sérfræðingar í vetrarakstri. AT315 35 tommu dekkið er afrakstur þessa samstarfs og í byrjun næsta árs er væntanlegt á markað nýtt 44 tommu dekk sem sérstaklega er hannað til aksturs við afar erfiðar aðstæður að vetri til. ÖLL ALMENN DEKKJAÞJÓNUSTA TÍMABÓKANIR Í SÍMA 540 4900 EXPLORE WITHOUT LIMITS ® ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF. KLETTHÁLSI 3 110 REYKJAVÍK SÍMI: 540 4900 NETFANG: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.com Samfylkingin hefur metnað fyrir hönd heilbrigðisþjónustu á Íslandi og lítur á úr- bætur í heilbrigðis- málum sem algjört forgangsmál næstu ára. En við vitum líka að það dugir ekki eitt og sér að leggja meiri fjármuni til heilbrigð- ismála, það er nauð- synlegt að endurskoða skipulag allr- ar heilbrigðisþjónustu, á hvaða stigi hún er veitt og hvert er hlutverk hinna ýmsu stofnana. Við viljum bæði skoða heilsugæsluna og sjúkra- húsþjónustuna sjálfa, skilgreina bet- ur hlutverk Landspítala og tryggja að heilbrigðisstofnanir utan Reykja- víkur fái stærra hlutverk og verði nýttar betur í þágu íbúa á lands- byggðinni. Þannig náum við betri ár- angri, hagkvæmni og sátt. Biðlistar eru meinsemd í íslensku heilbrigðiskerfi og meðal áherslna Samfylkingarinnar er að stytta bið- lista niður í þrjár til sex mánuði að jafnaði. Við höfum séð átak fara af stað til styttingar biðlistum í lið- skiptaaðgerðir en þær aðgerðir eru framkvæmdar á Landspítala, Akra- nesi og á Akureyri. Framkvæmd átaksins gengur eftir atvikum vel en engar ákvarðanir hafa verið teknar um framhaldið. Það dugir nefnilega skammt að fara í átak þó það létti á mesta álaginu um stundarsakir. Það mun ekki komast á sæmilegt jafn- vægi í þessari þjónustu með tíma- bundnu átaki sem þessu. Við verðum að auka afköst og anna eftirspurn til framtíðar. Nýtum betur heilbrigðis- stofnanir á landsbyggðinni Liðskiptaaðgerðir eru ekki flokk- aðar sem bráðaaðgerður, heldur sem valaðgerðir, oftast skipulagðar með fyrirvara. Fagfólk er sammála um að það fari miður vel á því að val- aðgerðir og bráðaaðgerðir séu fram- kvæmdar á Landspítala, hvar flestar bráðaaðgerðir fara fram. Oft þarf að aflýsa eða færa til valaðgerðir vegna óvæntra atvika, slysa eða bráðatil- vika. Þetta veldur sjúklingum óþæg- indum og er kostnaðarsamt í heild- ina. Hér mætti skilgreina betur í sátt við alla aðila hlutverk og áherslur Landspítala annars vegar og heilbrigðisstofnanna á lands- byggðinni hins vegar. Víða mætti nýta heilbrigðisstofnanir betur, þar er góður aðbúnaður, mikil reynsla og þjálfað fagfólk. Á sjúkrahúsinu á Akranesi er t.a.m. sterkur vilji til að koma á fót sérstakri liðskiptadeild með lágmarks tilkostnaði. Með skipulags- og áherslubreytingum væri hægt að fjölga valaðgerðum verulega, til hagsbóta fyrir alla aðila. Á Suðurnesjum og á Suðurlandi sem og fleiri stöðum eru öflugar heil- brigðisstofnanir sem axlað geta ábyrgð á ýmsum valaðgerðum, um- fram það sem nú er. Þetta er mikil- vægt byggðamál, jafnréttis- og sanngirnismál fyrir íbúa landsbyggðarinnar. En þetta er einnig til hagsbóta fyrir Landspít- alann og léttir á álagi þar á bæ, sem engum dylst að hefur verið mikið undanfarin misseri. Konur bíða og konur sinna umönnun Sumar aðgerðir fara hærra í um- ræðunni en aðrar. Það er ekki oft sem við heyrum um allstóran hóp kvenna sem bíða eftir úrlausn sinna mála en um 500 konur bíða eftir að- gerðum vegna legnáms, legsigs og blöðrusigs. Margar hafa þær beðið í tvö ár eða lengur með tilheyrandi skerðingu lífsgæða, sársauka og óþægindum. Fáir orða hagsmuni þessara kvenna í umræðu um stytt- ingu biðlistanna. Kynjuð hagstjórn er mikilvægt tæki til að auka jafnrétti. Þegar rík- isstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur tók við völdum árið 2009 var ákveðið að kynjuð hagstjórn yrði leiðarljós við fjárlagagerð og efnahagsstjórn. Ein af þeim greiningum sem unnin var leiddi einmitt í ljós að konur biðu lengur á biðlistum eftir hjúkr- unarrými, konur á hjúkrunarheimilum báru minna úr býtum fjár- hagslega og umönnun lenti frekar á kvenkyns aðstandendum. Þetta eru dæmi um skekkju og ójafnvægi í heilbrigðis- kerfinu okkar sem verð- ur að taka alvarlega og vinna bót á. Við eigum að gera gangskör að því að stytta bið- lista verulega eftir aðgerðum sem konur bíða eftir, sem tengjast leg- námi, legsigi og blöðrusigi. Aðgerð- irnar er margar hægt að gera á minni sjúkrahúsunum og með góðu skipulagi og mönnun fagfólks er hægt að ráðast í þetta verkefni, vilji er allt sem þarf. Eyðum biðlistum, í alvöru talað Stefna heilbrigðisyfirvalda mótast af fjárlögum en einnig framtíðarsýn. Ef einhver alvara er að baki um- ræðunni um að stytta skuli biðlista, verðum við að líta á heildarmyndina og nýta betur þá frábæru innviði og aðgerðarteymi sem við eigum, í nánu samstarfi við Landspítala. Landlæknir og fleiri aðilar hafa hvatt til þess að til þjóðarsjúkra- hússins ráðist í ríkari mæli læknar í heilar stöður. Með því gæti skapast lag til betri þjónustu við lands- byggðina, bæði varðandi valaðgerðir og aðra sérfræðiþjónustu sem setið hefur á hakanum í fjöldamörg ár, fyrir karla og konur. Það er óvið- unandi. Konur bíða Eftir Guðjón S. Brjánsson » Samfylkingin hefur metnað fyrir hönd heilbrigðisþjónustu á Ís- landi og lítur á úrbætur í heilbrigðismálum sem algjört forgangsmál næstu ára. Guðjón S. Brjánsson Höfundur skipar 1. sæti á lista Sam- fylkingar í Norðvesturkjördæmi. Atvinnublað alla laugardaga Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.