Morgunblaðið - 28.10.2016, Page 26

Morgunblaðið - 28.10.2016, Page 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016 Öryrkjar sem voru á lágum launum fyrir veikindi eða slys halda eftir um 0 til 20% af greiðslum frá lífeyrissjóðnum eftir skatta og skerðingar. 50 þúsund króna líf- eyrissjóðsgreiðslur eru skattaðar og skertar 100% eða í núll og skila öryrkj- anum bara 186 þús- und króna lífeyri frá TR. Hvers vegna eru þá 212.776 króna lífeyrislaun sköttuð og skert til fátæktar? Bannar ekki Stjórn- arskráin mismunun? Skatta og skerða þannig að við lífeyr- islaunþegar höfum bara 186.000 krónur eftir skatt, sem er langt undir fátæktarmörkum. Lágmarksframfærsluuppbótin er 11% fyrir ofan íslensk fátækt- armörk, sem er 60% af miðgildi ráðstöfunartekna fyrir einstakling. Þetta kemur fram í skýrslu frá 2014 sem nefnist „Nægjanleiki líf- eyrissparnaðar á Íslandi“ og út- gefandi er Fjármálaeftirlitið. Árið 2012 er í skýrslunni lág- mark almannatrygginga 201.682 krónur og fátæktarmörkin 181.086 krónur og mismunurinn 11%. Þessi 11% mismunur yfir fátækt- armörkum í skýrslunni er fenginn með því að heimili þar sem annar eða báðir einstaklingar fengu ör- orkulífeyri eru undanskilin. Þetta stafar af mjög flóknum tekjuteng- ingum eða þaki á slíkan lífeyri eftir núgildandi reglum, segir þar orð- rétt. Heimili þar sem annar eða báðir einstaklingar fengu örorku- lífeyri eru undanskilin og með þeirri reikningsbrellu er hægt að ná stórum hópi lífeyrisþega sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðunum yfir „fátæktarmörkin“ og nefna ekki á nafn í skýrslunni yfir 20 þúsund manns sem voru og eru undir fá- tæktarmörkum og lifa við fátækt og um 6000 við sára fátækt. Lesandi góður, það sem þú borgar í lífeyrissjóð í dag er ávís- un á fátækt, nema þú sért með ráðherralaun eða yfir 700.000 þús- und krónur í mánaðarlaun. Skylduaðild að lífeyrissjóði gerir að sparnaðurinn í sjóðnum er lög- þvingaður sparnaður og þar af leiðandi eign sem ætti ekki að skatta fyrr en heildartekjur lífeyrisþegans eru komnar yfir mann- sæmandi framfærslu. Hvað kosta þessi nýju almannatrygg- ingalög fyrir ríkið? Í frumvarpinu segir: Kostnaðaraukning ríkissjóðs af nýju kerfi er áætluð um 10 milljarðar króna á árinu 2017. Þetta er ekki allur sannleik- urinn, því hverju skilar þetta til baka með skerðingum? Skerðing á grunnlífeyrinum vegna lífeyr- issjóðslauna hefst við 400.000 krónur og hverfur við 500.000 krónur. Þetta gefur ríkisjóði um 5 milljarða króna. En hvað gefur þá afnám frítekjumarkanna ríkinu upp á 109.000 krónur? Jú, þar koma í ríkisjóð um 12 milljarðar króna. Þá er einnig eftir hvað ríkið fær í formi skerðingar á lífeyrissjóðs- launum okkar. Þar eru einnig um 12 milljarðar króna fyrir ríkið. Hvað er ríkið að græða á skerðingunum í heild sinni? Eru það 30 eða yfir 70 milljarðar króna og erum við því að halda kerfi Tryggingastofnunar ríkisins uppi með þessum glórulausu eignaupptöku á lífeyrinum og öðr- um tekjum með ólöglegar keðju- verkandi skerðingum á alla bóta- flokka, sem leiða okkur til sárrar fátæktar? Þetta lítur enn verr út ef við tökum inn í þetta kjaragliðnunina, sem er ekkert annað en lögbrot og eignaupptaka. Frá 2006 til dagsins í dag hafa útvaldir rík- isstarfsmenn og aðrir fengið 100% launahækkun. Útvaldir fóru úr 900.000 krónur í 1,8 milljón krón- ur. Forsætisráðherra fékk sjálfur 118.000 króna hækkun eða 70.000 eftir skatt sem er 10 sinnum hærra en ég fékk. Þá fékk hann einnig rúmlega 1 milljón króna í afturvirka eingreiðslu á sama tíma, en við ekki krónu. Þingmenn fengu 60 þúsund króna hækkun og eingreiðslu upp á um 550 þúsund krónur. Við fengum ekki krónu í afturvirka eingreiðslu og hvað þá rétta hækkun. Heilar 5.000 krónur eftir skatta verður hækkun mín um næstu áramót og dugar ekki fyrir hækk- unum á húsnæðisgjöldum. Hvað þá fyrir öllum öðrum hækkunum á t.d. mat, læknisþjónustu, lyfj- um. Græðgin er góð, segja þeir hjá verkalýðshreyfingunni og Samtökum atvinnulífsins og krefj- ast hækkunar upp á 3,5% í viðbót í lífeyrissjóðsgreiðslur, eða úr 12% í 15,5%. Með séreignarsparn- aði eru þetta 21,5% af launum eða um 65.000 krónur af 300.000 króna mánaðarlaunum. 780.000 krónur á ári af lægstu launum í lífeyrissjóðina. 3.700 milljarðar eru í lífeyr- issjóðunum í dag og ávöxt- unarkrafan upp á 3,5% skilar 120 milljörðum í viðbót inn í sjóðina og 10% ávöxtun heilum 360 millj- örðum frá almenningi og skerðir lífkjör okkar til fátæktar. Skattur af 3.700 milljörðum króna er um 1.000 milljarðar krónur og þar af eiga sveitarfélög um 150 milljarða króna. Með þessum peningum er hægt að koma öllu í lag á Íslandi og það á öllum sviðum þjóðlífsins. Hvað segir þetta okkur? Jú, að græðgi er ekki góð. Græðgi sem meiðir aðra er aldrei réttlætanleg og þá sérstaklega ekki fyrir lífeyrissjóðina okkar. Græðgi skil- ar engum árangri en heldur okk- ur í vaxtaokri á húsnæðislánum okkar og kemur í veg fyrir að fólk geti keypt íbúð. Spilling og græðgi sem felur í sér að við höfnum allri samúð og hjálpsemi og skilur börn og veikt fólk eftir í „algjörri fátækt“ er aldrei réttlætanleg. Ætlum við að sætta okkur við þetta? Nei, við viljum strax 300 þúsund króna líf- eyrislaun, skatta- og skerð- ingalaust. Flokkur fólksins X-F. 300 þúsund krónur í lífeyrislaun eftir skatt strax Eftir Guðmund Inga Kristinsson » Skattur af 3.700 milljörðum króna er um 1000 milljarðar króna og þar af eiga sveitarfélög um 150 milljarða króna. Guðmundur Ingi Kristinsson Höfundur er formaður Bótar og í 1. sæti fyrir Flokk fólksins í Suðvesturkjördæmi (Kraganum). Mörgum verður tíð- rætt um góðærið, en þegar betur er að gáð upplifa mörg fyrirtæki hvorki stöðugleika né hagsæld heldur þvert á móti hríðfallandi vöruverð og versnandi samkeppnisstöðu. Gengi krónunnar styrkist dag frá degi og sjávarútvegsfyr- irtækin og ferðaþjón- ustan fá 12% færri krónur fyrir evrur en um áramót og 27% færri krónur fyrir bresku pundin. Á móti innlendum launahækkunum fá fyr- irtækin tekjulækkun. Auk þess borga þau svo miklu hærri vexti en samkeppnisaðilar handan hafsins. Allir sjá að þetta leiðir í óefni, en Viðreisn er eini flokkurinn sem kemur með lausn vandans. Lausnin Lausnin felst í því að festa gengi krónunnar, annaðhvort við gengi ákveðins gjaldmiðils (miðil kjarna- ríkis) eða myntkörfu. Gengið má þá aðeins hreyfast innan þröngra marka og Seðlabankinn fær það hlutverk að halda því stöðugu. Árið 2012 fjallaði bankinn um svonefnt myntráð í mikilli skýrslu sinni um valkosti Íslands í gjaldmiðils- og gengismálum. Hér er vitnað til þeirrar skýrslu. Fast gengi „hefur ýmsa kosti ef stjórnvöld hafa vilja og getu til að stýra efnahagsmálum þannig að þau styðji við gengismarkmiðið. Gengissveiflur minnka að jafnaði ásamt því að aðhald og trúverð- ugleiki innlendrar hagstjórnar get- ur aukist þar sem kjarnaríkið tekur í raun yfir innlenda peninga- stefnu.“ Hvers vegna lækkar myntráð vexti? Mörg ríki hafa valið þá leið að verja gengisstefnu sína með því að koma sér upp stórum gjaldeyr- isforða. Lesum áfram: „Við það að taka upp gengismarkmið við skil- yrði frjálsra fjármagnshreyfinga er að því leyti ekki lengur um sjálf- stæða innlenda peningastefnu að ræða, þ.e. ekki verður hægt að beita innlendu vaxtastigi til að bregð- ast við innlendum efnahagsskellum. Inn- lendu vaxtastigi verð- ur því eingöngu beitt til að tryggja fram- gang gengismark- miðsins og í raun ákvarðast þá innlent vaxtastig af vaxtastigi kjarnaríkisins. Ef verðbólga kjarnarík- isins er lítil og pen- ingastefna þess trúverðug, má segja að hægt sé að flytja inn trú- verðugleika peningastefnu kjarna- ríkisins með trúverðugu geng- ismarkmiði.“ Lækkun vaxta Enn fremur segir: „Árangursríkt gengismarkmið gæti þannig leitt til lækkunar verðbólguvæntinga og hjöðnunar verðbólgu og þar með til lækkunar innlends nafnvaxtastigs.“ Stöðugleikinn er því ekki það eina sem myntráðið áorkar. Vextirnir, sem eru miklu hærri á landi en í nágrannalöndum, myndu lækka. Útgjöld þeirra sem eru að kaupa íbúð lækka um tugi þúsunda á mánuði hverjum. Fyrirtækin keppa við erlenda samkeppnisaðila nær jafnréttisgrunni og vaxtagjöld ríkis og sveitarfélaga lækka og geta far- ið í þarfari málefni. Föstu gengi með myntráði fylgja ýmsir kostir: 1. Stöðugleiki í gengismálum 2. Minni hagsveiflur. 3. Verðbólga verður í takt við kjarnaríkið. 4. Vextir lækka í átt að alþjóð- legum vöxtum. 5. Samkeppnishæfni fyrirtækja eykst. 6. Hagur heimilanna batnar. 7. Ríkið borgar minna í vaxtagjöld. Myntráð er auðvitað ekki töfra- lausn sem leyfir óráðsíu og gáleysi heldur krefst það þvert á móti ag- aðrar hagstjórnar og samráðs allra hagsmunaaðila. Ábyrgð og áhætta Um fast gengi þarf að nást víð- tæk samvinna milli ríkisstjórnar og aðila vinnumarkaðarins. Rík- issjóður þarf að vera í jafnvægi og launahækkanir mega ekki verða umfram það sem gerist í kjarna- ríkinu. Þetta kallar því á mikinn aga í hagkerfinu, en fellur vel að hugmyndum um svonefnt SALEK- samkomulag. Miklu skiptir að stefnan hafi trú- verðugleika og hætta á spákaup- mennskuárásum sé lágmörkuð. Þá tapast hagstjórnartæki þegar ekki er lengur hægt að reka sjálfstæða peningastefnu. Margir telja reynd- ar að það sé einmitt kostur við myntráð. Kostnaður fylgir því að viðhalda stórum gjaldeyrisforða, en hann er nú að verðmæti um 700 milljarðar króna, sem líklega er nóg. Með lækkandi vöxtum myndi sá kostnaður minnka. Myntráð er fljótvirkasta leið að gengisstöðugleika sem Íslandi stendur til boða. Við eigum ekki að bíða með leið sem leiðir til lægri vaxta. Stígum fyrstu skrefin strax með myntráðsleið Viðreisnar. Viðreisn hagkerfis- ins – Lægri vextir og stöðugt gengi Eftir Benedikt Jóhannesson Benedikt Jóhannesson » Fastgengisstefna er fljótvirkasta leið til stöðugleika í efnahags- kerfinu og vaxtalækk- unar hér á landi, fólki og fyrirtækjum til hags- bóta. Höfundur er formaður Viðreisnar. Pólitískum hreyfing- um á borð við þá sem Eva Joly tilheyrir, Eu- rope Écologie – Les Verts, hefur stundum verið líkt við hinn tign- arlega ávöxt, vatns- melónu, grænar út á við, rauðar inn á við og fræin svört. Á hinum pólitíska vettvangi hérlendis virðist nú í farvatninu stofnun eins konar vatnsmelónu- bandalags með endurreisn á flest- um sviðum að leiðarljósi. Ekki er ástæða til að ætla annað en að slík fyrirheit reynist göfug og bandalag- inu gangi gott eitt til. En hvað þarf í raun að „endurræsa“ hjá okkur svo notað sé orðalag bandalagsins? Tilraunir til að gera hafsvæðið um- hverfis Ísland að ESB-auðlind? Að færa valdið til „venjulegs fólks“ eins og Eva Joly orðaði það í viðtali við Kastljós RÚV nýlega? Að koma í veg fyrir að „alþjóðafjármálakerfið og fjölþjóðafyrirtæki yfirtaki lýð- ræðið“ svo aftur sé vitnað í Joly? Hverfa frá fyrirhuguð- um tilraunaborunum á Drekasvæðinu? Hér eru nefndar fáeinar spurningar af fjöl- mörgum sem tengjast fyrirhugaðri upp- færslustefnu vatnsmel- ónubandalagsins. Tvær þeirra eru skoðaðar nánar hér að neðan. Spurningunni um ESB-auðlindina hljóta allir að svara neitandi. Varla finnst sá Íslend- ingur sem vill að auð- lindum, sem nú eru í eigu íslensku þjóðarinnar, verði fórnað í vafasöm- um samningum við ESB. Upp- færslan, ef við viljum nefna hana svo, verður því að hafa það í för með sér að yfirráð yfir auðlindum í náttúru Íslands verði áfram í hönd- um þjóðarinnar; alþjóða- fjármálakerfið, sem Joly nefndi svo, nái aldrei að læsa krumlum sínum um það. En er það ekki einmitt stefna okkar allra að fyrirbyggja slíkt, líka núverandi stjórnarflokka? Eða með öðrum orðum: Hlýtur það ekki að vera eðlileg stefna okkar allra að forðast ESB og ráða sjálf áfram yfir auðlindunum? Spurningin um að hverfa frá til- raunaborunum á Drekasvæðinu er öllu snúnari, enda tengist hún mun flóknari utanríkispólitískum vanda en margir gera sér grein fyrir. Í janúar 2013 skálaði ríkisstjórn VG og Samfylkingar við fulltrúa olíufé- laga vegna samninga sem hún gerði um tilraunir til olíuvinnslu á Dreka- svæðinu. Tæpum tveimur árum síð- ar undirritaði núverandi ríkisstjórn aftur á móti Parísarsamkomulagið góðu heilli, sem felur í sér loforð um að draga úr útblæstri gróðurhúsa- lofttegunda samkvæmt tilteknum viðmiðum. Drekasvæðið er skiljan- lega þyrnir í augum okkar flestra, einkum vegna þess að þáverandi vinstri stjórn flækti okkur þar í net sem erfitt verður að losna frá. Par- ísarsamkomulagið felur í sér loforð um að vinda ofan af loftslagsbreyt- ingum. Þar er okkur annar öllu al- varlegri vandi á höndum sem vatns- melónubandalagið virðist ekki gefa gaum. Ef öll orkunýting ferðaþjón- ustunnar hér á landi er tekin sam- an, þar með talin orkunýting svo- kallaðra menningarviðburða á borð við Airwaves-hátíðina marglofuðu, sem félagi eins af vatnsmel- ónuflokkunum stendur fyrir, kemur í ljós að þar brennur meira jarð- efnaeldsneyti en nokkurn tíma mun mögulega fást upp úr olíulind af því tagi sem hugsanlega finnst á Drekasvæðinu. Ef vistspor Íslend- inga er rannsakað og þar með óhóf- leg notkun jarðefnaeldsneytis kem- ur í ljós að við erum meðal mestu umhverfissóða veraldar. Samt göngum við með þá glýju í augum að við séum græn eins og vatnsmel- óna af því við framleiðum rafmagn og hitum húsin okkar með end- urnýjanlegum orkugjöfum og eigum hálendisþjóðgarð. Vatnsmelónubandalagið Eftir Meyvant Þórólfsson » Við göngum með þá glýju í augum að við séum græn eins og vatnsmelóna af því við framleiðum rafmagn og hitum húsin okkar með endurnýjanlegum orkugjöfum. Meyvant Þórólfsson Höfundur er dósent við Háskóla Íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.