Morgunblaðið - 28.10.2016, Page 29

Morgunblaðið - 28.10.2016, Page 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016 ✝ Friðmey Eyj-ólfsdóttir fæddist í Reykja- vík 14. nóvember 1923. Friðmey lést 20. október 2016. Foreldrar henn- ar voru Eyjólfur Björnsson, f. 1883, d. 1941, vélstjóri, og Guðrún Guð- mundsdóttir, f. 1895, d. 1973, hús- freyja. Systkini Sigurrós, f. 1918, og Kristófer, f. 1920, uppeldisbróðir Björn Gunn- laugsson, f. 1917. Friðmey giftist Ástgeiri Ólafssyni (Ása í Bæ), f. 1914, d. 1985, skáldi, skipstjóra o.fl. frá Vestmannaeyjum. Börn þeirra: 1. Tvíburadrengir, f. 1947, sem dóu skömmu eftir fæðingu. 2. Gunnlaugur, f. 1949, mennta- skólakennari. Maki Ósk Magn- úsdóttir, f. 1949, fv. móttöku- stjóri og skrifstofustjóri. Börn þeirra eru: a. Kári Gunn- um að Laxnesi í Mosfellssveit og bjó þar til fullorðinsára. Hún flutti til Vestmannaeyja með Ása 1947 þar sem þau bjuggu til 1968. Þá fluttu þau í Mávahlíð 22 í Reykjavík þar sem hún bjó til æviloka. Friðmey lauk námi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1940. Hún útskrifaðist frá Hjúkrunarskóla Íslands 1946 og stundaði síðan framhalds- nám í skurðhjúkrun. Á náms- árunum vann hún á Landspít- alanum, Sjúkrahúsinu á Ísafirði og á Vífilsstöðum. Starfaði við Sjúkrahús Vestmannaeyja 1948 og 1964-1968. Hjúkrunarfræð- ingur við geðdeild Borgarspít- alans 1968 til 1994. Friðmey hafði mikinn áhuga og yndi af óperutónlist og sótti flestar óperusýningar sem í voru í boði hér á landi. Hún hafði góða söngrödd og söng m.a. með Samkór Vestmanna- eyja. Hún hafði mikla ánægju af ferðalögum og ferðaðist mikið á efri árum, fór m.a. til Kína og í heimsreisu með Út- sýn. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 28. október 2016, kl. 15. Meira: mbl.is/minningar laugsson, f. 1975, kvikmyndaleik- stjóri og leið- sögumaður, maki Árný Björg Bergs- dóttir, f. 1974, sölustjóri, og er sonur þeirra, Bald- ur Kárason, f. 2014, leik- skólanemi. b. Freyja, f. 1979, klarínettuleikari og aðstoðarskólastjóri Tónlist- arskólans í Reykjavík, sam- býlismaður Egill Arnarson, f. 1973, ritstjóri. 3. Kristín, f. 1951, jafnréttisstýra og fv. þingmaður Kvennalistans. 4. Eyjólfur, f. 1957, d. 1984. 5. Ólafur, f. 1960, byggingatækni- fræðingur. Maki Aldís Einars- dóttir, f. 1966, viðskipta- lögfræðingur. Sonur þeirra er Ástgeir, f. 1995, háskólanemi. Friðmey fæddist á Skóla- vörðustíg 4C í Reykjavík og fluttist ung með foreldrum sín- Þegar ég var barn dreymdi mig eina nótt að mamma væri að deyja. Ég hrökk upp af martröð- inni og koddinn flóði í tárum. Ég var alveg í öngum mínum þar til mér var sagt að svona draumur væri fyrir langlífi mömmu. Og það rættist svo sannarlega því mamma lifði tæp fimmtíu ár eftir þetta. Það vantaði aðeins tæpar þrjár vikur upp á að hún næði því að verða 93 ára þegar hún dó. Mamma fæddist í allt aðra veröld en við lifum nú í. Afi og amma bjuggu neðst á Skólavörðustíg þar sem afi hafði járnsmiðju úti í skúr og nágrannarnir voru með kýr og hesta í skúrum og kjöllurum. Á þeim tíma var verið að reisa ný- byggingar við göturnar kringum Skólavörðuholtið og vestast í Vest- urbænum. Fjögurra ára flutti hún með foreldrum sínum að Laxnesi í Mosfellsdal og þar hófst skóla- gangan við 10 ára aldur. Þá fóru þær saman tvær frænkur á sama aldri með mjólkurbílnum á morgn- ana í skólann og gengu síðan heim síðdegis um 5,5 kílómetra leið. Mamma fór í Kvennaskólann í Reykjavík og síðan í hjúkrunar- nám á Landspítalanum tvítug. Þá bjuggu hjúkrunarnemarnir í her- bergjum á háaloftinu á spítalanum þar sem voru strangar kröfur um aga og siðferði. Námið var skóli og vinna til skiptis og voru nemarnir sendir víða um land til vinnu. En mest unnu þær á Landspítalanum þar sem hún vann síðan að námi loknu. Og það var einmitt þar sem örlög hennar réðust þegar inn lagðist sjúklingur með veika löpp, sjóari frá Vestmannaeyjum sem hún kolféll fyrir. Þar var kominn Ási í Bæ í eina af sínum fjölmörgu sjúkrahúsaferðum. Svo ástfangin varð hún að hún flutti með honum til Vestmannaeyja og bjó þar í rúma tvo áratugi. Mínar fyrstu minningar um mömmu eru um hlýjan móðurfaðm í birtu æsku- daganna. Mamma var ólík mörg- um öðrum mömmum því hún vann úti á spítalanum en líka af því að hún var menntuð hjúkrunarkona. Hún átti alltaf plástur og sáraum- búðir og hún rétti mér gjarnan plástur til að hafa í vasanum ef ein- hver skyldi meiða sig. Og það kom sér oft vel fyrir uppátækjasama stráka. Við fluttum til Reykjavík- ur þegar ég var átta ára. Ég held að það hafi verið léttir fyrir mömmu að flytja. Þar fór hún að vinna á hátæknisjúkrahúsi og Eyfi bróðir fékk þau úrræði sem þurfti. Mamma skipti sjaldan skapi og tók flestum hlutum með ró. Nám og þjálfun hjúkrunarkonunnar hefur haft þar sitt að segja. Í eina skiptið sem ég sá hana bugast var í jarðarförinni hans Eyfa bróður þar sem hún brotnaði saman og ég leiddi hana út áður en athöfninni lauk. Mamma var reglu- og hóf- semdarkona og fór vel með sitt. Hún reykti aldrei og ég held að hún hafi ekki smakkað vín fyrr en eftir fertugt. Hún hætti að vinna um sjötugt en fékk skömmu síðar í hendur rauðhærðan strák, hann Ása minn, sem dvaldi hjá henni löngum stundum. Hún sagði okk- ur að hann mætti vera hjá sér eins og hann vildi en það væri ekkert uppeldi innifalið sem var þó í raun besta uppeldið. Ég hef alltaf verið mjög stoltur af þeirri konu sem móðir mín var. Hún var vel gerð og góð kona, bráðgáfuð, skemmti- leg og falleg. Blessuð sé minning hennar. Ólafur Ástgeirsson. Látin er í hárri elli Friðmey Eyjólfsdóttir hjúkrunarkona. Fjölskylda Friðmeyjar hefur allt- af verið nátengd okkur. Ási í Bæ, eiginmaður Friðmeyjar og Svava Guðjónsdóttir, ættmóðir okkar, ól- ust upp á sama blettinum við Strandveginn í Vestmanneyjum. Síðar bættist við vinátta og sam- starf Ása og Oddeirs Kristjáns- sonar, eiginmanns Svövu, við tón- listar- og menningarstörf í Eyjum. Friðmey fluttist ung til Vest- mannaeyja. Hún var sjálf Reykja- víkurmær og bar með sér heims- borgaralegt fas sem fylgdi henni alla tíð. Við börnin þekktum ekki bakgrunn Friðmeyjar en merki- legt þótti okkur að hún átti bróður í Ameríku og sumarhús í Mosfells- sveit. Fyrstu kynni okkar af fjöl- skyldunni voru af Heiðarveginum í Vestmannaeyjum. Friðmey og Ási bjuggu á neðri hæð húss Stebba pól sem var yfirlögreglu- þjónn bæjarins, en heimili okkar stóð hinum megin við götuna. Eitt og annað er minnisstætt frá þess- um árum og kemur fyrst upp í hugann ristaða brauðið sem Frið- mey bauð krökkunum í götunni upp á. Brauðrist var sjaldséður gripur í þá daga. Seinna fluttu Friðmey og Ási ásamt börnum sínum „inn í Bæ“ sem kallað var, en það var lítið hús sem stóð stakt vestan við bæinn, þar sem íþróttamannvirkin við Hásteinsvöll eru nú. Eftirminni- legar eru afmælisveislur barnanna í Bæ og ævintýralegt umhverfið, með hraunklettum og lautum þar sem við undum okkur tímunum saman á góðviðrisdögum. Ógleymanlegur er viðurgjörn- ingurinn við þessi tækifæri. Djöflatertur með „frosting“ kremi og marengstertur voru sérgrein Friðmeyjar en svona góðgæti var ekki alls staðar á boðstólum. Báðar fjölskyldurnar fluttu á höfuðborgarsvæðið í kringum 1970 og þar var vináttu og góðum samskiptum fram haldið, í afmæl- isveislum og á stórhátíðum. Áföll dundu á fjölskyldu Frið- meyjar með árs millibili. Eyjólfur, sonur þeirra hjóna lést af völdum umferðarslyss, aðeins 27 ára gam- all og árið 1985 varð Ási bráð- kvaddur á heimili sínu. Að leiðarlokum er okkur efst í huga þakklæti fyrir vináttu og ljúfar samverustundir í gegnum tíðina. Eftirlifandi fjölskyldu Frið- meyjar sendum við samúðarkveðj- ur. Afkomendur Oddgeirs og Svövu, Hildur Oddgeirsdóttir. Friðmey Eyjólfsdóttir HINSTA KVEÐJA Friðmey mín. Það var gaman að koma til þín um jólin og þegar við töluðum saman um daginn og veg- inn. Þú varst alltaf svo hress og kát. Þú tókst alltaf vel á móti mér þegar ég kom í heimsókn og þú áttir fallegt heimili. Nú ert þú farin og ég veit að Guð geymir þig. Stefán Konráðsson, sendill. ✝ GuðveigBjarnadóttir fæddist í Kötlu- holti í Fróðár- hreppi á Snæfells- nesi 27. ágúst 1926. Hún lést á dvalarheimilinu Grund 19. október 2016. Foreldrar henn- ar voru Ósk Guð- mundsdóttir frá Ólafsvík, f. 11. ágúst 1898, d. 15. nóvember 1987, og Bjarni Jóhannesson frá Litlu-Lág í Eyrarsveit á Snæfellsnesi, f. 11. nóvember 1897, d. 16. sept- ember 1967. Systkini Guðveigar sam- mæðra Pálsbörn sem komust á legg eru: Sigurjón, f. 1921, d. 2015, Júlíus, f. 1922, d. 2004, Kristján, f. 1928, d. 1965, Lauf- ey, f. 1931, d. 1995, Sólveig og bjuggu þau í Reykjavík til ársins 1953, en þá hófu þau bú- skap í Bölta í Skaftafelli, Öræf- um. Þau eignuðust fimm börn, 1) Sigurður Þórarinn, f. 10.7. 1945. Maki Ragnheiður Þórar- insdóttir, f. 22.12. 1951. Börn þeirra eru: a) Guðjóna Björk, b) Jakob Veigar og c) Berglind. 2) Þorsteinn, f. 13.9. 1951. Maki Rosario G. Dugong, f. 28.4. 1962. Þeirra sonur er a) Jakob og dóttir Rosario er b) Dalrós Dungog. Fyrir átti Þor- steinn þrjú börn, c) Jóhönnu Guðnýju, d) Hrefnu Dögg og e) Þröst Ránar. 3) Bjarni Þór, f. 17.7. 1955. Maki Kristbjörg Jónsdóttir, f. 9.7. 1958. Börn þeirra eru a) Jón Atli, b) Baldur og c) Sól- veig. 4) Guðlaugur Heiðar, f. 7.5. 1958. Maki Diana Jakobsson, f. 17.11. 1955. Fyrir átti Guðlaug- ur Heiðar einn son, a) Jakob. Fyrir átti Diana börnin b) Tina Maree og c) David John Kilm- ister. 5) Guðlaug Matthildur, f. 4.2. 1967. Maki Hilmar Oddsson, f. 19.1. 1957. Fyrir átti Guðlaug börnin a) Leu Karítas, b) Victor Jakob og c) Baldur Snæ. Börn Hilmars eru d) Hera og e) Odd- ur Sigþór. Guðveig átti fjórtán barna- börn, sextán barnabarnabörn og eitt barnabarnabarnabarn. Þau hjónin, Guðveig og Jak- ob, stunduðu búskap í Skafta- felli til ársins 1974. Upp úr 1970 fór Guðveig að selja gist- ingu til ferðamanna á heimili þeirra í Bölta og hélt því áfram til ársins 2012. Ásamt því að reka gistiheimili þá vann hún í þjónustumiðstöð þjóðgarðsins um árabil. Hún var mikil hann- yrðakona, saumaði út og prjón- aði lopapeysur sem hún seldi til ferðamanna. Þegar Jakob, maður hennar, féll frá árið 1992 hélt Guðveig áfram rekstri gistiheimilisins með hjálp barna sinna. Hún fluttist til Reykjavíkur árið 2012, þá 86 ára. Í Reykjavík átti hún heim- ili á Fálkagötu 10. Síðasta árið sem Guðveig lifði bjó hún á dvalarheimilinu Grund. Útför Guðveigar verður gerð frá Hofskirkju í Öræfum í dag, 28. október 2016, kl. 13. Lilja, f. 1932, d. 1966, Aðalheiður, f. 1934, Hinrik, f. 1938, og Guð- mundur Kristófer, f. 1938. Fárra mánaða var Guðveig send í fóstur á Bern í Ólafsvík til Þóru Egilsdóttur og Vig- fúsar Eyjólfssonar. Fimm ára gömul fór hún í umsjá föður síns til Reykjavíkur, en þar var henni komið fyrir hjá Þóru Sigríði Einarsdóttur, sem hún kallaði að jafnaði fóstru sína. Guðveig lauk gagnfræðaprófi frá Aust- urbæjarskóla ásamt því að nema ensku og myndlist í kvöldskóla. Árið 1944 giftist hún Jakobi Guðlaugssyni frá Vík í Mýrdal, f. 7. júlí 1917, d. 4. júní 1992, Við erum mjög þakklát fyrir allar góðu stundirnar sem við átt- um með ömmu. Alltaf tók hún vel á móti okkur þegar við komum í heimsókn, hvort sem það var í Böltanum, á Fálkagötu eða á Grund. Þegar við vorum lítil og fjölskyldan var á ferð milli Hafn- ar og Reykjavíkur var oftast stoppað í Böltanum, en þá bakaði amma pönnukökur ofan í liðið á meðan hún spjallaði við okkur. Böltinn var ævintýralega spenn- andi hús fyrir litla, forvitna fing- ur en amma leyfði okkur að skoða hlutina og sagði okkur hvaðan þeir kæmu. Þegar við stukkum svo út að leika okkur kallaði hún á eftir okkur: „Ekki í gilið!“ Amma var að vissu leyti svolítið ólík hinni „hefðbundnu ömmu“ í okkar augum, hún kunni ensku og tók á móti ferðamönnum frá öllum heimshornum. Hún gat líka verið svolítið uppátækjasöm og oft höfum við brosað yfir því sem á daga hennar dreif. En hún gat líka hlegið að því sjálf enda gat hún verið mikill húmoristi. Hún vildi líka allt fyrir okkur gera og ein jólin var hún svo leið að geta ekki boðið okkur í mat vegna heilsunnar. Hún var þó í raun alveg búin að finna út hvernig við gætum samt komið í mat og úr varð að við systkinin og Gullý og fjölskylda slógum upp hangikjötsveislu á Fálkagöt- unni. Amma var hin ánægðasta með veisluna og við líka, og þessi minning er dýrmæt núna. Svona var amma nefnilega, hún fór sín- ar eigin leiðir og lét fátt stoppa sig. Elsku amma, takk fyrir allt saman. Jón Atli, Baldur og Sólveig. Guðveig Bjarnadóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HEIÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR, Svansvík, Súðavíkurhreppi, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 25. október 2016. Jarðarförin verður auglýst síðar. . Jóhanna R. Kristjánsdóttir, Pétur S. Kristjánsson, Rakel Þórisdóttir, Þorgerður H. Kristjánsdóttir, Hermann S. Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, ÞÓRIR HAUKUR EINARSSON, fyrrv. skólastjóri, Fiskinesi, Drangsnesi, andaðist föstudaginn 21. október. Útförin fer fram frá Drangsneskapellu laugardaginn 5. nóvember klukkan 14. . Lilja Sigrún Jónsdóttir Hólmfríður Þórisdóttir Pétur Örn Pétursson Þóra Þórisdóttir Sigurður Magnússon Guðbjörg Þórisdóttir Ágúst Þór Eiríksson Ásta Þórisdóttir Svanur Kristjánsson Einar Haukur Þórisson Kristjana Pálsdóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengdamóðir og amma, SOFFÍA WEDHOLM GUNNARSDÓTTIR, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans að kvöldi miðvikudagsins 26. október. . Helgi Björnsson, Jóna Jóhannesdóttir Wedholm, Gunnar Wedholm Helgas., Þóra Björk Eysteinsdóttir, Ólöf Helgadóttir, Guðmundur J. Kristjánsson, Erlen Björk Helgadóttir, Kristinn Ottason og barnabörn. Yndislegur faðir okkar, sonur og bróðir, ÓLAFUR BJÖRN BALDURSSON, lést 24. október. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 4. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Thorvaldsensfélagið. . Emil Örn, Alma María og Kári Freyr Ólafsbörn, Baldur Ólafsson og María Frímannsdóttir, Rósa Kristín Baldursdóttir. Elsku pabbi okkar, sonur, bróðir, frændi og mágur, SIGURBERGUR ARNBJÖRNSSON frá Hornafirði, lést á Landspítalanum í Fossvogi þann 24. október í faðmi fjölskyldu. Útförin verður frá Hafnarkirkju laugardaginn 5. nóvember klukkan 14. . Jón Óli og Árni Björn, Arnbjörn Sigurbergsson, Arnbjörg María Sveinsdóttir, Sveinn Arnbjornsson, Marie Arnbjornsson, Jóhanna Valgerður Arnbjörnsdóttir og börn, Bjarki þór Arnbjörnsson, Svala Brynja Þrastardóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.