Morgunblaðið - 28.10.2016, Page 34

Morgunblaðið - 28.10.2016, Page 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016 Jakob Þórir Möller, sem á 80 ára af-mæli í dag, hefur varið mestumhluta ævi sinnar utanlands, lengst af yfirmaður kærudeildar mannrétt- indaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, fyrst í New York, en svo í Genf. „Ég fékk launalaust leyfi frá dómsmálaráðuneyt- inu til að vera hjá Sameinuðu þjóðunum í tvö ár en verkefnið sem ég var ráðinn í var að hrinda í framkvæmd fyrstu kæru- málaleiðinni hjá SÞ vegna mannrétt- indabrota. Ég fékk síðan framlengingu í önnur tvö ár en þessi fjögur ár urðu að 25 árum. Þegar ég lauk starfi voru orðn- ar til 10 leiðir sem einstaklingar, hópar og félagasamtök gátu nýtt sér vegna meintra mannréttindabrota. Fjölmargar sérfræðinganefndir innan SÞ taka málin til skoðunar og kveða upp úrskurð um hvort mannrétt- indabrot hafi verið að ræða. Ef svo er beina þær tilmælum til viðkom- andi ríkis um úrbætur. Mörg ríki taka þessi tilmæli mjög alvarlega og fara eftir þeim meðan önnur ríki láta þau sem vind um eyrun þjóta.“ Jakob vann hjá SÞ 1971-1996 en var kosinn af ráðherranefnd Evr- ópuráðsins til að vera dómari í alþjóðlegum mannréttindadómstól í Sarajevo. Þar starfaði hann til loka árs 2004. Dómstóllinn var hluti af Dayton-friðarsamkomulaginu sem batt enda á ófriðinn í Bosníu Hersegóvínu. Þegar friðarsamkomulagið var gert lágu 250.000 manns í valnum, 27.000 höfðu horfið og 2,6 milljónir höfðu flúið land eða voru á vergangi, höfðu misst heimili sín eða vinnu. „Í dómstólnum voru 14 dómarar, sex innanlandsdómarar og átta erlendir. Meginhlut- verk dómstólsins var að sjá til þess að þeir sem höfðu verið flæmdir frá heimilum sínum eða reknir úr vinnu sinni fengu að snúa aftur. 15.000 mál voru þingfest, flestir þeirra sem höfðu verið flæmdir frá heimilum sínum eða misstu vinnu vegna uppruna fengu heimili sín og voru ráðnir í fyrrverandi vinnu. Aðrir fengu skaðabætur vegna illrar meðferðar og ólögmætrar frelsisskerðingar.“ Eftir að Jakob lét af störfum hefur hann haldið fyrirlestra um mannréttindi víða um heim og var útnefndur heiðursprófessor með kennsluskyldu við Háskólann á Akureyri. Nú er Jakob fluttur heim til Íslands ásamt konu sinni, Mariu Isabel Contreras. „Fyrir mörgum árum ákvað ég að fara ekki á öldr- unarheimili erlendis því mig langaði að mæla hnökralaust á íslensku. Ég vona samt að ég haldi heilsu og það dragist eitthvað öldrunar- heimilið. Nú er ég að láta mér líða vel og er að dunda mér við skriftir sem eru yfirleitt um mannréttindamál.“ Greinargóða lýsingu á starfi Jakobs í Bosníu Hersegóvínu er að finna í Tímariti Lögréttu, 2. hefti, 10. árgangi, sem kom út í fyrra. Jakob ætlar að halda upp á áttræðis- afmælið sitt ásamt skólabróður sínum úr MR 56. Dómarinn Jakob Þ. Möller. Starfaði lengst af við mannréttindamál Jakob Þ. Möller er áttræður í dag J ónas Jónasson fæddist í Hafnarfirði 28.10. 1956 og ólst þar upp. Hann gekk í Lækjarskóla, lauk stúd- entsprófi frá MR 1977, BSc-prófi í líffræði frá HÍ 1983, stundaði framhaldsnám í fiskeldi við Landbúnaðarháskólann á Ási í Nor- egi og varði doktorsritgerð við skól- ann í fiskeldi og kynbótafræði 1994. Jónas kenndi líffræði við Garða- skóla og FG 1981-83, var sérfræð- ingur í fiskeldi og erfðafræði hjá Veiðimálastofnun frá 1986 og stund- aði þar rannsóknir á hafbeit frá Kollafirði til 1996. Hann var sér- fræðingur í kynbótum laxfiska hjá Stofnfiski frá 1996 og hefur verið framkvæmdastjóri þar frá 2006. Fyrirtækið hefur verið brautryðj- andi í kynbótum laxa og í fram- leiðslu laxahrogna allt árið um kring og selur laxahrogn út um allan heim. Nýlega hóf fyrirtækið fram- leiðslu á hrognkelsaseiðum sem flutt eru til Færeyja í þeim tilgangi að éta laxalús af löxum í þarlendu sjókvíaeldi. Jónas hefur tekið þátt í alþjóðastarfi á vegum fiskeldis, sat um árabil í erfðanefnd Alþjóða- hafrannsóknaráðsins (ICES) situr í stjórn Landssambands fiskeldis- stöðva og sat í ráðgjafanefnd Veiði- málastofnunar. Hann sat í stjórn Rannís og stjórn um Aukinn virðis- auka í sjávarútvegi (AVS) en situr nú í ýmsum stjórnum móðurfélags Stofnfisks, Benchmark í Bretlandi. Jónas Jónasson framkvæmdastjóri – 60 ára Brúðkaup Jónas og Eiríksína, ásamt brúðhjónunum, Guðbjörgu Oddnýju og Gísla Má, og loks Helgu Dagnýju. Fékk þá flugu í höfuð- ið að hnýta Frances Með afa Jónas og Gabríela Björg. Sigrún Ásta Jónsdóttir og Ásta Fanney Pétursdóttir héldu tombólu fyrir utan Garðsapótek í Reykjavík og söfnuðu 1.548 kr. sem þær gáfu Rauða krossinum til góðverka. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is Honeywell keramik hitarar sem blása hita allt í kring. Úrval af hiturum frá Honeywell

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.