Morgunblaðið - 28.10.2016, Page 35

Morgunblaðið - 28.10.2016, Page 35
ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2016 Má þar nefna framkvæmdastjórn og stjórn yfir kynbótamálum ýmissa fiskeldistegunda fyrirtækisins. Einnig hefur Jónas setið í fulltrúa- ráði Stangaveiðifélags Reykjavíkur um árabil. Jónas var í sveit í nokkur sumur m.a. hjá Moniku á Merkigili í Skagafirði er hann var sex ára með systur sinni, Helgu. Hann var síðan á ýmsum bæjum, s.s. hjá Guðmundi á Ási í Vatnsdal. Þar kynntist hann enskum veiðimönnum sem veiddu eingöngu á flugu. Áður hafði afi Jónasar, Tryggvi Ófeigsson, leigt Vatnsdalsá um árabil og þar kynnt- ist Jónas laxveiði með foreldrum sínum. Dvöl Jónasar við veiðikofa afa hans, við Hólakvörn, eru honum ógleymanlegar: „Ég var um 12 ára er ég hjálpaði enskum veiðimanni að háfa yfir 20 punda lax í Hnausa- streng eftir að laxinn hafði dregið hann einn kílómetra niður ána.“ Þarna hófst ævilangur áhugi Jón- asar á fluguveiði. Á háskólaárum var hann leiðsögumaður í laxveiði- ám, einkum í Norðurá, Laxá í Kjós og Haffjarðará sem hann telur fallegustu laxveiðiá landsins. Jónas lærði fluguhnýtingar og notaði ófáar stundir á bökkum lax- veiðiánna til að hanna og betrum- bæta laxveiðiflugur. Hann hannaði á þessum árum fluguna Frances sem almennt er talin ein besta laxveiði- fluga sem notuð hefur verið á Ís- landi. Hann var í mörg ár afkasta- mikill fluguhnýtari, hnýtti eitt árið yfir 14.000 flugur en í dag rekur fjölskyldan netverslunina www.frances.is þar sem seldar eru laxa- og silungaflugur úti um allan heim. Jónas og fjölskylda hans stunda laxveiði um allt land og hafa veitt víða erlendis, m.a. í Argentínu, Síle og víða í Evrópu. Auk þess stundar hann skotveiði og gönguferðir og gekk Jakobsveginn fyrir nokkrum árum með konu sinni, en þau hafa ferðast víða um heim og má þá sér- staklega nefna veiði- og gönguferðir til Evrópu og Suður-Ameríku. Fjölskylda Eiginkona Jónasar er Eiríksína Kr. Ásgrímsdóttir, f. 1.6. 1960, myndlistamaður og bókmennta- fræðingur. Foreldrar hennar: Ás- grímur Björnsson, f. 22.2. 1927, d 14.1. 1999, vélstjóri frá Siglufirði, og Guðbjörg Oddný Friðriksdóttir, f. 19.4. 1936, verkakona frá Siglufirði. Dætur Jónasar og Eiríksínu eru Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, f. 5.2. 1985, stjórnmálafræðingur og mannauðsstjóri en maður hennar er Gísli Már Gíslason hagfræðingur og er dóttir þeirra Gabríela Björg, f. 2015, og Helga Dagný Jónasdóttir, f. 10.2. 1987, viðskiptafræðingur. Systkini Jónasar eru Bjarni Jón- asson, f. 21.5. 1947, heimilislæknir í Garðabæ, búsettur í Hafnarfirði; Tryggvi Jónasson, f. 22.3. 1951, kírópraktor í Reykjavík; Helga Jón- asdóttir, f. 17.2. 1955, fjármálastjóri í Kópavogi; Herdís Jónasdóttir, f. 8.11. 1958, hjúkrunarkona í Kópa- vogi; Jóhanna Jónasdóttir, f. 4.8. 1964, leikkona og Brennan leiðbein- andi í Hafnarfirði; Jonna Jónas- dóttir, f. 4.8. 1964, d. sama dag, og Ásgeir Jónasson, f. 2.4. 1971, húsa- smiður á Ísafirði. Foreldrar Jónasar voru Jónas Bjarnason, f. 16.11. 1922, d. 26.12. 1998, yfirlæknir á St. Jósepsspítala í Hafnarfirði, og Jóhanna Tryggva- dóttir, f. 29.1. 1925, d. 28-12-2011, húsfreyja, frumkvöðull og athafna- kona. Þau bjuggu í Hafnarfirði. Úr frændgarði Jónasar Jónassonar Jónas Jónasson Jóhanna Guðrún Frímannsdóttir húsfr. í Ráðagerði, af Hafnaætt Ófeigur Ófeigsson b. í Ráðagerði í Leiru, af Fjallsætt og Reykjaætt Tryggvi Ófeigsson útgerðarm. í Rvík Herdís Ásgeirsdóttir húsfr. í Rvík Jóhanna Tryggvadóttir húsfr., frumkvöðull og athafnakona í Hafnarfirði Rannveig Sigurðardóttir húsfr. í Rvík Ásgeir Þorsteinsson skipstjóri í Reykjavík Bjarni Bjarnason framkv.stj. Stefáns Thorarensen og aðalendur- skoðandi Rvíkurborgar Málfríður Bjarnadóttir lyfjafræðingur að Reykjum í Mosfellssveit Elísabet María Jónasdóttir kennari við Kvennaskólann í Rvík Rannveig Tryggvadóttir húsfr. í Rvík Páll Ásgeir Tryggvason sendiherra Ragnheiður Erla Bjarnadóttir guðfr., líffræðingur og fornleifafr. í Rvík Guðmundur Jónsson MSc í fóðurfr. og b. á Reykjum Jónas Aðalsteinn Aðalsteinss. hrl. Guðrún Nikulásdóttir húsfr. í Rvík Herdís Hallvarðsdóttir tónlistarmaður (var í Grýlunum) Sólveig Pálsdóttir rith. og leikkona Dóra Pálsdóttir kennari Tryggvi Pálsson fyrrv. bankastj. Sigríður Júlíusdóttir húsfr. í Rvík Sigríður Dúna Kristmundsdóttir prófessor við HÍ Málfríður Júlía Bjarnadóttir húsfreyja í Reykjavík Bjarni Snæbjörnsson læknir og alþm. í Hafnarfirði Helga Jónasdóttir húsfr. í Hafnarfirði Jónas Bjarnason læknir í Hafnarfirði Guðný Jónsdóttir húsfr. á Bakka í Hnífsdal Jónas Marías Þorvarðarson b. og útgerðarm. á Bakka í Hnífsdal Nikulás Jakobsson sjóm. í Litla-Steinsholti Snæbjörn Jakobsson steinsmiður í Rvík Ingólfur Jónsson frá Prestsbakkafæddist á Kvennabrekku í Döl-um 28.10. 1918, sonur Jóns Guðnasonar, prests á Kvennabrekku og Prestbakka og síðast þjóðskjala- varðar í Reykjavík, og k.h., Guð- laugar Bjartmarsdóttur húsfreyju. Systkini Ingólfs: Guðrún, kennari og rithöfundur í Reykjavík; Torfi, kennari, lögreglufulltrúi og rithöf- undur í Reykjavík; Eiríkur, lektor í Reykjavík; Leifur, rannsóknarlög- reglumaður í Reykjavík; Soffía, hús- freyja í Reykjavík, og Anna, hús- freyja í Reykjavík sem er ein eftir- lifandi systkinanna. Eiginkona Ingólfs var Margrét Fjólu Guðmundsdóttur skólaritari, sem lést 1998, og eignuðust þau þrjú börn auk þess sem Ingólfur átti son frá því áður. Ingólfur ólst upp á Kvennabrekku til 1928 og síðan að Prestsbakka. Hann var í Reykjaskóla í Hrútafirði og lauk kennaraprófi 1941. Hann var afgreiðslumaður á Bifreiðastöðinni Geysi 1941-43, póstafgreiðslumaður 1943-45, kaupfélagsstjóri hjá Kaup- félagi Hrútfirðinga 1945-46, skrif- stofumaður í Reykjavík 1959-67 en helgaði sig ritstörfum frá 1985. Ingólfur var kennari við Laugar- nesskóla 1946-59, við Vopnafjarðar- skóla 1967-70 og loks við Réttarholtsskóla í Reykjavík 1970- 85. Ingólfur sendi frá sér ljóðabæk- urnar Bak við skuggann, Vængir draumsins, Við, Blikar jólastjarna, Litir regnbogans og Feykishólar. Hann skrifaði skáldsöguna Láttu loga drengur og bækurnar Rang- skinna, Þjóðlegar sagnir og ævintýri, og barnabækurnar Dvergurinn með rauðu húfuna, Álfabörnin, Fóstur- sonur tröllanna. Hann las eigin fram- haldsþætti í útvarpi og samdi sjón- arpsleikrit fyrir börn, skrifaði sögu og félagatal Vörubílstjórafélagsins Þróttar og félagatal Hreyfilsmanna. Ingólfur hlaut viðurkenningar úr Rithöfundasjóði og frá Þjóðkirkj- unni. Ingólfur lést 9.3. 1993. Merkir Íslendingar Ingólfur Jónsson 90 ára Magnús Pálsson 85 ára Delia Gaviola Garcia Hörður Þórarinsson Kristján Jónsson Þorgerður Dagbjartsdóttir 80 ára Ingibjörg Hinriksdóttir Jakob Þ. Möller Karólína Ingólfsdóttir Sveinbjörn Björnsson 75 ára Anna E. Oliversdóttir Arnar Árnason Brynhildur Gísladóttir Davíð Herbertsson Florencio Barita Calderon Karl Grönvold Kolbrún Halldórsdóttir Ólafur Emil Ólafsson Þórarinn Ölversson 70 ára Jófríður Guðjónsdóttir Ragna Kristín Hjaltadóttir 60 ára Elín Elísabet Halldórsdóttir Erla Doris Halldórsdóttir Guðrún Gunnarsdóttir Guðrún Jónsdóttir Hjörleifur Már Jónsson Jónas Jónasson Jón Baldursson Kristján Jónatansson Linda Lou Arthur Ólöf Kristín Ólafsdóttir Sigþór Harðarson 50 ára Alma Lilja Ævarsdóttir Ásta María Ástvaldsdóttir Leifur Björn Björnsson Maya Jill Einarsdóttir Vigfús Þorsteinsson 40 ára Arnar Þorvarðsson Dagrún Íris Sigmundsdóttir Dagur Indriðason Hrefna Björnsdóttir Iðunn Elsa Kristinsdóttir Ingibjörg Helga Jónsdóttir Jacinto Joao Da Silva Monteiro Jónas Heiðar Birgisson Pálmi Alfreðsson Sigurður Grétar Halldórsson Sigurður Kristinn Ármannsson Troy Andrew Porter Örn Geirdal Steinólfsson 30 ára Allan Már Newman Anna K. Mytkowska- Sobczak Daníel Sigurður Eðvaldsson Einar Sigurbjörn Kristjánsson Elín Áslaug Ormslev Heiða Ósk Garðarsdóttir Jóhannes Stígur Arnarsson Jónína Sigríður Grímsdóttir Kolbrún Dögg Sigmundsdóttir Laufey Sif Lárusdóttir Patryk Popiolek Stefanía Ásgeirsdóttir Sunna Dís Jónasdóttir Þóra Hjörleifsdóttir Ævar Þór Magnússon Til hamingju með daginn 30 ára Laufey býr í Hveragerði, lauk BSc- prófi í umhverfis- og skipulagsfræði, starfar hjá Kjörís og er form. um- hverfis- og samgöngun. Sjálfstæðisflokksins. Maki: Elvar Þrastarson, f. 1983, bruggmeistari Ölvisholts. Sonur: Haraldur Fróði, f. 2013. Foreldrar: Lárus I. Frið- finnsson, f. 1962, og Aldís Hafsteinsdóttir, f. 1964. Laufey Sif Lárusdóttir 30 ára Jóhannes ólst upp á Brekkum í Mýrdal og á Selfossi, býr á Selfossi og starfar hjá Securitas. Systkini: Unnur Halla, f. 1978, starfsmaður á Ljónsstöðum, og Guð- mundur Ingi, f. 1980, vinnumaður í Úthlíð á Klaustri. Foreldrar: Arnar Viggó Halldórsson, f. 1958, og Hrafnhildur S. Guð- mundsdóttir, f. 1958. Þau búa á Selfossi. Jóhannes Stígur Arnarsson 40 ára Pálmi ólst upp í Reykjavík, býr í Hafnar- firði og er verslunar- maður við Bílanaust í Hafnarfirði. Maki: Tinna Björnsdóttir, f. 1981, starfsm. hjá N1. Synir: Jóhann Alexander, f. 1997, og Jökull Már, f. 2005. Fóstursonur: Gabrí- el Dagur, f. 2003. Foreldrar: Alfreð Guð- mundsson, f. 1948, og Sveinbjörg Þóra Brynj- ólfsdóttir, f. 1950. Pálmi Alfreðsson Plasmaskurðar- vélar Dalshrauni 14 • 220 Hafnarfjörður • Sími 555 2035 • jak.is Powermax 30 Air með innbyggðri loftpressu • Sker allt að 16 mm þykkt járn • Einfasa 120-240V – Aðeins 13,5 kg. • 3 ára ábyrgð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.