Morgunblaðið - 28.10.2016, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 302. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Valið var um bankarán eða líflát
2. Tilkynnandinn handtekinn
3.Vélstjórahluturinn var 9 milljónir
4. Allt gert í góðri trú
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Furðusagnahátíðin IceCon verður
haldin í Iðnó helgina 28.-30. október
2016. Er þetta í fyrsta sinn sem þessi
furðusagnahátíð er haldin á Íslandi.
Takmark hennar er að auka veg og
virðingu furðumenningar og aðdá-
endasamfélaga á Íslandi.
Furðusagnahátíð
í Iðnó um helgina
Joris Rademak-
er opnar sýn-
inguna Skugga-
verk á morgun,
29. október, kl. 15
í Mjólkurbúðinni í
Listagilinu á
Akureyri.
Joris Rademak-
er sýnir nýtt verk
sem hann vann 2015. Verkið er úr 60
trékubbum, lágmynd, byggð á grunn-
formunum þremur og leika skugg-
arnir stórt hlutverk.
Verk úr 60 tré-
kubbum á Akureyri
Tónleikarnir Piano Man þar sem
Friðrik Ómar stígur á svið ásamt öðr-
um stórsöngvurum
fara fram í kvöld
klukkan 20 í Eld-
borgarsal Hörpu.
Tekin verða öll bestu
lög Billy Joel og Elton
John. Þá mun danski
sjarmörinn og
Eurovision-farinn
Jakob Sveistrup
stíga á svið og
taka lagið.
Bestu lög Eltons Johns
og Billys Joels í Hörpu
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan- og vestanátt, hægari vindur og
úrkomulítið í kvöld. Hiti 0 til 7 stig yfir daginn, hlýjast austast.
VEÐUR
Rúnar Kristinsson verður
snemma í dag kynntur til
leiks sem nýr þjálfari belg-
íska úrvalsdeildarfélagsins
Lokeren. Færa má rök fyrir
því að íslenskur knatt-
spyrnuþjálfari hafi aldrei
tekið við hærra skrifuðu fé-
lagsliði. Rúnar verður annar
Íslendingurinn til að stýra
liði í Belgíu á eftir Arnari
Þór Viðarssyni, sem stýrði
Cercle Brugge en er nú að-
stoðarþjálfari Lokeren. »1
Íslendingur ekki
stýrt sterkara liði
„Já, það gleymist kannski aðeins að
ég hafi orðið meistari og ég myndi
segja að ég ætti einhvern þátt í
meistaratitlinum,“
sagði Viðar Örn
Kjartansson, leik-
maður Maccabi Tel
Aviv í Ísrael, sem í
fyrrakvöld varð
sænskur meist-
ari. Hann er
enn
marka-
hæstur
í Sví-
þjóð. »4
Svíþjóðarmeistari og
gæti fengið gullskó á ný
Afturelding vann í gærkvöld áttunda
leik sinn í röð í Olísdeild karla í hand-
bolta þegar liðið hafði betur gegn Val
í slag tveggja efstu liðanna, 25:23.
Afturelding jók þar með forskot sitt á
toppnum í sex stig. Selfoss komst
upp í 2. sæti á markatölu með góðum
sigri á ÍBV, Fram vann Stjörnuna en
Akureyri og FH skildu jöfn í miklum
spennuleik. »2
Áttundi í röð og öruggt
forskot Aftureldingar
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bræðurnir Sigurður og Kristján
Guðmundssynir hafa alla tíð verið
mjög samrýndir og því kom það ekki
endilega á óvart þegar eiginkonur
þeirra eignuðust barn með um
þriggja tíma millibili í vikubyrjun.
„Tímasetningin er skemmtileg til-
viljun,“ segir Sigurður. „Þetta var að
minnsta kosti ekki planað,“ segir
Kristján.
Sigrún Kristjánsdóttir og Guð-
mundur Sigurðsson, foreldrar
bræðranna, búa á Hvanneyri og þar
ólust þeir upp. Davíð, yngsti sonur
þeirra, býr hjá foreldrum sínum en
er nú á stúdentagarði vegna há-
skólanáms í Reykjavík. Ástríður,
dóttir þeirra, á heima í Skorradal,
Sigurður og fjölskylda fluttu aftur til
Hvanneyrar fyrir um tveimur árum
og Kristján, sem býr í Lundar-
reykjadal, flytur á æskuslóðirnar
með sinni fjölskyldu um áramót.
„Við búum öll nálægt hvert öðru
og það hefur alltaf verið gott sam-
band okkar á milli,“ segir Sigurður
um fjölskylduna og tengslin við
Kristján. „Hann er átta árum yngri
en ég og ég passaði hann oft.“ Krist-
ján tekur í sama streng og segir að
Sigurður hafi byrjað snemma í pöss-
uninni eins og Ástríður. „Þau voru
örugglega bæði ljúf og góð,“ segir
hann. Sigurður bætir við að þegar
leiðir hafi skilið vegna skólagöngu
og vinnu hafi sambandið samt aldrei
rofnað og börnin þeirra hafi enn eflt
tengslin.
Önnur „tvenna“
Sigurður og Aldís Arna Tryggva-
dóttir, eiginkona hans, eiga nú fjög-
ur börn og Kristján og Eydís
Smáradóttir tvö. Yngstu börnin eru
jafngömul og eiga sama afmælisdag
og hálft ár er á milli næstyngstu
barnanna, sem eru tveggja og hálfs
og þriggja ára. „Við höfum samein-
ast í barnauppeldinu,“ segir Sig-
urður.
Eydís var bókuð í keisaraskurð á
sjúkrahúsinu á Akranesi sl. mánu-
dagsmorgun, en gert var ráð fyrir að
Aldís Arna myndi eiga í næstu viku.
Stórfjölskyldan kom saman í kaffi og
kökur hjá Guðmundi og Sigrúnu á
Hvanneyri síðdegis á sunnudag.
„Aldís Arna sagði oft í gríni við Ey-
dísi að hún yrði ábyggilega komin
með barn á undan þeim Kristjáni, en
á sunnudaginn voru litlar líkur á
því,“ segir Sigurður. „Við kvöddum
þau með þeim orðum að við von-
uðum að allt gengi vel hjá þeim dag-
inn eftir, en þau voru á leið á sjúkra-
húsið á Akranesi til þess að undirbúa
keisaraskurðinn.“
Bílastæðið við hliðina
Aldís Arna missti vatnið rétt fyrir
klukkan þrjú aðfaranótt mánudags
og þau Sigurður voru mætt á sjúkra-
húsið um hálftíma síðar. „Það var
mjög súrrealískt að það fyrsta sem
ég sá var bíll bróður míns og laust
bílastæði við hliðina. Að sjálfsögðu
lagði ég í það. Skömmu eftir að kona
mín var búin að fæða dóttur okkar
um klukkan hálf sjö rölti ég að
næsta herbergi, bankaði og gekk inn
þar sem Kristján og Eydís sváfu.
Þar mætti mér mjög skemmtilegur
svipur þeirra enda áttuðu þau sig á
hvað var í gangi. Þetta var mjög
skemmtileg stund, við föðmuðumst
og ég hélt síðan áfram að sinna konu
minni og barni en rúmlega þremur
tímum seinna kom sonur þeirra í
heiminn. Við pabbarnir hittumst svo
næst í hádegismat stuttu síðar.“
Kristján segir að hann hafi ekki átt
von á bróður sínum á þessari stundu.
„Það fyrsta sem ég hugsaði var að
þetta verður keppnismanneskja,
varð að vera á undan frænda sínum,
eins og pabbi hennar, en hann er
með óþrjótandi keppnisskap.“
Stórfjölskyldan var óvænt saman
á mánudag. „Það var mjög hentugt
fyrir fjölskylduna að þurfa bara að
koma í eina heimsókn til þess að
heilsa upp á okkur og rölta á milli
samliggjandi herbergja,“ segir Sig-
urður. „Frændurnir sem eru tveggja
og hálfs og þriggja ára hlupu á milli
stofa og skemmtu sér manna best.
Þetta var hálfgerð innrás á fæð-
ingardeildina þegar þeir mættu,“
botnar Kristján.
Bræður urðu feður sama dag
Keppnismanneskjan skaust fram úr frænda sínum á síðustu metrunum
Yngri Kristján og Eydís Smáradóttir með nýfæddan soninn.Eldri Sigurður og Aldís Arna Tryggvadóttir með nýfædda dótturina.
Á laugardag Gengur í austan og suðaustan 13-18 m/s með slyddu
og síðar rigningu. Hlýnandi veður, rigning um allt land um kvöldið.
Á sunnudag Sunnan- og suðvestanátt, víða 8-15 m/s og rigning
eða skúrir, en léttir til á NA-verðu landinu. Hiti yfirleitt 3 til 8 stig.