Morgunblaðið - 28.10.2016, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 28.10.2016, Qupperneq 44
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 302. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Valið var um bankarán eða líflát 2. Tilkynnandinn handtekinn 3.Vélstjórahluturinn var 9 milljónir 4. Allt gert í góðri trú »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Furðusagnahátíðin IceCon verður haldin í Iðnó helgina 28.-30. október 2016. Er þetta í fyrsta sinn sem þessi furðusagnahátíð er haldin á Íslandi. Takmark hennar er að auka veg og virðingu furðumenningar og aðdá- endasamfélaga á Íslandi. Furðusagnahátíð í Iðnó um helgina  Joris Rademak- er opnar sýn- inguna Skugga- verk á morgun, 29. október, kl. 15 í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri. Joris Rademak- er sýnir nýtt verk sem hann vann 2015. Verkið er úr 60 trékubbum, lágmynd, byggð á grunn- formunum þremur og leika skugg- arnir stórt hlutverk. Verk úr 60 tré- kubbum á Akureyri  Tónleikarnir Piano Man þar sem Friðrik Ómar stígur á svið ásamt öðr- um stórsöngvurum fara fram í kvöld klukkan 20 í Eld- borgarsal Hörpu. Tekin verða öll bestu lög Billy Joel og Elton John. Þá mun danski sjarmörinn og Eurovision-farinn Jakob Sveistrup stíga á svið og taka lagið. Bestu lög Eltons Johns og Billys Joels í Hörpu SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan- og vestanátt, hægari vindur og úrkomulítið í kvöld. Hiti 0 til 7 stig yfir daginn, hlýjast austast. VEÐUR Rúnar Kristinsson verður snemma í dag kynntur til leiks sem nýr þjálfari belg- íska úrvalsdeildarfélagsins Lokeren. Færa má rök fyrir því að íslenskur knatt- spyrnuþjálfari hafi aldrei tekið við hærra skrifuðu fé- lagsliði. Rúnar verður annar Íslendingurinn til að stýra liði í Belgíu á eftir Arnari Þór Viðarssyni, sem stýrði Cercle Brugge en er nú að- stoðarþjálfari Lokeren. »1 Íslendingur ekki stýrt sterkara liði „Já, það gleymist kannski aðeins að ég hafi orðið meistari og ég myndi segja að ég ætti einhvern þátt í meistaratitlinum,“ sagði Viðar Örn Kjartansson, leik- maður Maccabi Tel Aviv í Ísrael, sem í fyrrakvöld varð sænskur meist- ari. Hann er enn marka- hæstur í Sví- þjóð. »4 Svíþjóðarmeistari og gæti fengið gullskó á ný Afturelding vann í gærkvöld áttunda leik sinn í röð í Olísdeild karla í hand- bolta þegar liðið hafði betur gegn Val í slag tveggja efstu liðanna, 25:23. Afturelding jók þar með forskot sitt á toppnum í sex stig. Selfoss komst upp í 2. sæti á markatölu með góðum sigri á ÍBV, Fram vann Stjörnuna en Akureyri og FH skildu jöfn í miklum spennuleik. »2 Áttundi í röð og öruggt forskot Aftureldingar ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Bræðurnir Sigurður og Kristján Guðmundssynir hafa alla tíð verið mjög samrýndir og því kom það ekki endilega á óvart þegar eiginkonur þeirra eignuðust barn með um þriggja tíma millibili í vikubyrjun. „Tímasetningin er skemmtileg til- viljun,“ segir Sigurður. „Þetta var að minnsta kosti ekki planað,“ segir Kristján. Sigrún Kristjánsdóttir og Guð- mundur Sigurðsson, foreldrar bræðranna, búa á Hvanneyri og þar ólust þeir upp. Davíð, yngsti sonur þeirra, býr hjá foreldrum sínum en er nú á stúdentagarði vegna há- skólanáms í Reykjavík. Ástríður, dóttir þeirra, á heima í Skorradal, Sigurður og fjölskylda fluttu aftur til Hvanneyrar fyrir um tveimur árum og Kristján, sem býr í Lundar- reykjadal, flytur á æskuslóðirnar með sinni fjölskyldu um áramót. „Við búum öll nálægt hvert öðru og það hefur alltaf verið gott sam- band okkar á milli,“ segir Sigurður um fjölskylduna og tengslin við Kristján. „Hann er átta árum yngri en ég og ég passaði hann oft.“ Krist- ján tekur í sama streng og segir að Sigurður hafi byrjað snemma í pöss- uninni eins og Ástríður. „Þau voru örugglega bæði ljúf og góð,“ segir hann. Sigurður bætir við að þegar leiðir hafi skilið vegna skólagöngu og vinnu hafi sambandið samt aldrei rofnað og börnin þeirra hafi enn eflt tengslin. Önnur „tvenna“ Sigurður og Aldís Arna Tryggva- dóttir, eiginkona hans, eiga nú fjög- ur börn og Kristján og Eydís Smáradóttir tvö. Yngstu börnin eru jafngömul og eiga sama afmælisdag og hálft ár er á milli næstyngstu barnanna, sem eru tveggja og hálfs og þriggja ára. „Við höfum samein- ast í barnauppeldinu,“ segir Sig- urður. Eydís var bókuð í keisaraskurð á sjúkrahúsinu á Akranesi sl. mánu- dagsmorgun, en gert var ráð fyrir að Aldís Arna myndi eiga í næstu viku. Stórfjölskyldan kom saman í kaffi og kökur hjá Guðmundi og Sigrúnu á Hvanneyri síðdegis á sunnudag. „Aldís Arna sagði oft í gríni við Ey- dísi að hún yrði ábyggilega komin með barn á undan þeim Kristjáni, en á sunnudaginn voru litlar líkur á því,“ segir Sigurður. „Við kvöddum þau með þeim orðum að við von- uðum að allt gengi vel hjá þeim dag- inn eftir, en þau voru á leið á sjúkra- húsið á Akranesi til þess að undirbúa keisaraskurðinn.“ Bílastæðið við hliðina Aldís Arna missti vatnið rétt fyrir klukkan þrjú aðfaranótt mánudags og þau Sigurður voru mætt á sjúkra- húsið um hálftíma síðar. „Það var mjög súrrealískt að það fyrsta sem ég sá var bíll bróður míns og laust bílastæði við hliðina. Að sjálfsögðu lagði ég í það. Skömmu eftir að kona mín var búin að fæða dóttur okkar um klukkan hálf sjö rölti ég að næsta herbergi, bankaði og gekk inn þar sem Kristján og Eydís sváfu. Þar mætti mér mjög skemmtilegur svipur þeirra enda áttuðu þau sig á hvað var í gangi. Þetta var mjög skemmtileg stund, við föðmuðumst og ég hélt síðan áfram að sinna konu minni og barni en rúmlega þremur tímum seinna kom sonur þeirra í heiminn. Við pabbarnir hittumst svo næst í hádegismat stuttu síðar.“ Kristján segir að hann hafi ekki átt von á bróður sínum á þessari stundu. „Það fyrsta sem ég hugsaði var að þetta verður keppnismanneskja, varð að vera á undan frænda sínum, eins og pabbi hennar, en hann er með óþrjótandi keppnisskap.“ Stórfjölskyldan var óvænt saman á mánudag. „Það var mjög hentugt fyrir fjölskylduna að þurfa bara að koma í eina heimsókn til þess að heilsa upp á okkur og rölta á milli samliggjandi herbergja,“ segir Sig- urður. „Frændurnir sem eru tveggja og hálfs og þriggja ára hlupu á milli stofa og skemmtu sér manna best. Þetta var hálfgerð innrás á fæð- ingardeildina þegar þeir mættu,“ botnar Kristján. Bræður urðu feður sama dag  Keppnismanneskjan skaust fram úr frænda sínum á síðustu metrunum Yngri Kristján og Eydís Smáradóttir með nýfæddan soninn.Eldri Sigurður og Aldís Arna Tryggvadóttir með nýfædda dótturina. Á laugardag Gengur í austan og suðaustan 13-18 m/s með slyddu og síðar rigningu. Hlýnandi veður, rigning um allt land um kvöldið. Á sunnudag Sunnan- og suðvestanátt, víða 8-15 m/s og rigning eða skúrir, en léttir til á NA-verðu landinu. Hiti yfirleitt 3 til 8 stig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.