Morgunblaðið - 08.11.2016, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2016
Í tilefni afmælisins ætla ég að vera með kaffi og partí þann 19. en ídag verður þetta bara vinna og rólegheit klárað með kóræfingu,“segir Davíð Ásgeirsson, sem á 40 ára afmæli í dag. Hann starfar
hjá A. Óskarsson verktaka og vinnur á Keflavíkurflugvelli. „Við sjáum
um rafmagnið, færibandakerfi og fleira, einnig þjónustum við flug-
eldhúsið, sjáum um rafmagnið þar líka.“
Davíð er rafeindavirki og Megatróník hátæknifræðingur að mennt,
útskrifaðist úr því námi í fyrra og hóf störf hjá A. Óskarsson verktaka í
sumar. „Námið er BS-nám í Megatróník hátæknifræði, sem er góður
grunnur fyrir stýringar á róbótum, en svo er einnig forritun í þessu
námi og lært á ýmsan vélbúnað. Ég hef einnig verið að starfa með
sprotafyrirtækinu GeoSilica inni á milli, en það vinnur heilsuvörur úr
kísil.“
Davíð býr í Garði, er uppalinn þar og hefur búið þar mestalla tíð. „Ég
fór að byggja hús þar 2006 og flutti inn 2008 og á meðan bjó ég í Sand-
gerði og svo bjó ég í Reykjavík meðan ég var í náminu.“
Davíð stundar körfubolta og skotveiði í frístundum. „Ég fer á gæs en
hef ekki farið á hreindýraveiðar síðan 2012. Svo erum við í Garði að
byggja upp körfuboltalið, erum í utandeildinni núna og það eru æfingar
tvisvar sinnum í viku, en ég spilaði með Reyni Sandgerði á sínum tíma.“
Eiginkona Davíðs er Jóhanna Pálsdóttir, kennari í Gerðaskóla, en
þau hafa verið gift í 13 ár. Börn þeirra eru Amelía Björk 13 ára, Sólveig
Hanna 10 ára og Hjörtur Páll 5 ára.
Hjónin Davíð og Jóhanna í Brighton í ágúst síðastliðnum.
Vinna og rólegheit en
veislan verður síðar
Davíð Ásgeirsson er fertugur í dag
E
ymundur fæddist í
Reykjavík 8.11. 1966
og ólst upp í Skjól-
unum í Vesturbænum:
„Það er nú líklega eitt
mesta rangnefni á hverfi á Íslandi
því þar var alltaf næðingur, ef ekki
hávaðarok – svolítið sambærilegt því
að kalla Grænland Grænland.
En ég var nú líka í sveit á sumrin,
í Flögu, austur í Skriðdal. Þar var
hins vegar sólskin og alltaf gott veð-
ur, a.m.k. í minningunni. Þar var ég
hjá góðu fólki, Stefáni og Þórunni,
sem reyndust mér vel í alla staði.
Eftir stutt stopp í Ljósheimum
flutti fjölskyldan í Garðabæ og ég er
nú búsettur á Sunnuflöt í Garðabæ
og er ekkert á förum úr því góða
sveitarfélagi.
Ég gekk í hinn rómaða Landa-
kotsskóla, var síðan í Hagaskóla,
Eymundur Sveinn Einarsson endurskoðandi – 50 ára
Mæðgin Eymundur og Birna Dís á leik Arsenal og Tottenham, 8.11. 2015, en honum lauk með jafntefli, 1-1.
Styður Stjörnuna og
er alsæll í Garðabæ
Í Eyjum Eymundur, Ása og Birna Dís í gönguferð í Herjólfsdal 2015.
Ásta Dísa Hlynsdóttir hélt
tombólu í Álfheimum og
seldi dótið sitt. Hún safnaði
4.938 kr. sem hún gaf Rauða
krossinum til góðverka.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isTunguhálsi 10 | 110 Reykjavík | S: 415 4000 | kemi@kemi.is | www.kemi.is
ÖRYGGISSKÓR OG ÖRYGGISSANDALAR
GÓÐIR SKÓR Á FRÁBÆRU VERÐI
Verð: 7.990 kr.-
Verð: 4.990 kr.-