Morgunblaðið - 08.11.2016, Síða 33

Morgunblaðið - 08.11.2016, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2016 Verðlauna- vertíðin í Holly- wood er hafin með afhendingu Hollywood Film Awards. Mel Gib- son hlaut verð- laun sem besti leikstjórinn fyrir drama úr heims- styrjöldinni síð- ari, Hacksaw Ridge. Natalie Port- man var valin besta leikkonan fyrir leik sinn í Jackie, þar sem hún leik- ur Jacqueline Kennedy, og Tom Hanks var verðlaunaður fyrir leik sinn í Sully. Verðlaunavertíðin hafin í Hollywood Mel Gibson Að óska þess að allt verði allt-af eins og það er núna“ erskilgreining Maríönnu áhamingjunni í upphafi. Segja má að þetta sé það sem heitir á alþjóðamálinu „jinx“, nokkurskonar ranghverf áhrínisorð. Því upp frá þessu rekur verkið hrun hjónabands þeirra Jóhanns, kryfur ástæður þess og tilraunir þeirra hvors um sig til að fóta sig í nýrri tilveru. Í Brotum úr hjónabandi vinnur Ingmar Bergman úr hinni miklu raunsæishefð Ibsens og Strindbergs á sinn hátt. Hann stillir sínu hvers- dagslega fólki upp við krossgötur, leggur fyrir það óleysanlegar þrautir, hnúta sem ekki verða leystir og skoð- ar hvað gerist þegar höggvið er á þá. Aðallega lætur hann fólkið tala. Og af því hann er að skoða augnablik í kringum stórar ákvarðanir og straumhvörf í lífi þess fer lítið fyrir hversdagshjali. Hér er fólk ekki að spjalla um veðrið og láta sér leiðast meðan lífið þýtur hjá að hætti raunsæishefðar Tsékovs. Það þarf að ræða stóru málin: ástina, hamingj- una, traustið, kynlífið. Þetta er ákaf- lega sérvalin sneið af raunveruleika þessara vel stæðu og vel menntuðu millistéttarhjóna. Það hefur reyndar þá sérkennilegu afleiðingar að við fáum ekki mjög heildstæða mynd af persónunum sem slíkum, kynnumst þeim ekki við „hversdagslegar að- stæður“. Það er varla að við getum lagt neinn trúnað á það sem þau segja hvort um annað, eða um eigið innra líf. Allt verður að skoðast í ljósi hinna krefjandi aðstæðna, barátt- unnar sem stendur óslitið frá því Jó- hann tilkynnir eiginkonu sinni að hann sé á förum. Þetta er, eðli málsins samkvæmt, enn meira áberandi í tveggja tíma sviðsgerð en í upprunalegu sex tíma sjónvarpsútgáfunni, þar sem tími og rúm gefst fyrir fyllri myndasmíð, meðal annars samskipti við annað fólk. Það er eftirsjá að mörgu sem fer forgörðum við flutninginn upp á svið. Annað sem líður fyrir formið er til- finningin fyrir framrás tímans, árin sem líða frá því við hittum þau Jó- hann og Maríönnu fyrst þar til þau ná lendingu sinni í lokin. Ekkert er gert í gervum, útliti eða líkamsmáli sem hjálpar til við þetta, enda óhægt um vik með leikarana báða á sviðinu nán- ast allan tímann. Sjálf senuskiptin eru sköpuð með því að láta persón- urnar ávarpa salinn og greina frá hvar við grípum næst niður. Þetta er einföld og hagkvæm lausn á form- vandanum sem skapast þegar efni er flutt af skjá á svið, en virkaði trufl- andi á mig. Verkið fékk á sig ankannalegan „upprifjunarblæ“, sem vann enn frekar gegn upplifun af því að langur tími liði. Ekki veit ég hvort Bergman gerði ráð fyrir þessari að- ferð eða hvort hún er frá aðstand- endum sýningarinnar komin, fyrir liggur að handritið er „leikgerð“ leik- stjórans Ólafs Egils Egilssonar á handriti Bergmans. Alla vega fannst mér þetta ekki góð lausn. Þau Björn Thors og Unnur Ösp Stefánsdóttir eru eins og fiskar í vatni í þessum texta, skapa afar sannfærandi persónur þegar á heild- ina er litið og ná sterkri innlifun og öruggum samleik þrátt fyrir áður- nefnd uppbrot. Áhrifarík augnablik þar sem kvikan sést kvikna oft þessa rúmu tvo tíma sem sýningin stendur. Samfélagsbreytingar og þróun í stöðu kynjanna vinnur á hinn bóginn á móti leikurunum, dregur úr áhrifa- mætti verksins í heild. Ef til vill má rekja það til þess hve sjálfsörugg og kröftug Maríanna verður strax frá upphafi í túlkun Unnar. Þetta er sannfærandi gert og trúverðugt að þessi velgengniskona hafi þetta yfir- bragð, en fletur óneitanlega út ferða- lag Maríönnu í gegnum þann sjálfs- þroska sem verkið greinir frá. Eins má sennilega túlka þann hlátur sem óspart hljómaði í salnum á frumsýn- ingunni yfir tilsvörum og látæði Jó- hanns sem vitnisburð um að afstaða hans til eiginkonu sinnar og eigin til- vistarvanda sé ansi hreint karl- rembulituð. En hitt er líka ljóst að Björn Thors sækir sumt af þessum hlátrum með sinni umtalsverðu gam- anleikarafimi, með tímasetningum og mótun setninga. Hvort það er hlát- ursins virði í samhengi innihalds verksins er svo annað mál. Sama má segja um þá einkennilegu ákvörðun að hafa Jóhann áberandi drukkinn í fyrsta atriði eftir hlé, þar sem hann heimsækir Maríönnu í fyrsta sinn eftir að hann gekk á dyr á vit ástkonu sinnar. Ekkert í textanum styður þessa lögn, og afstaða Maríönnu til hans í kringumstæðunum verður fyr- ir vikið eiginlega alveg óskiljanleg. Að frátöldum þessum aðfinnslum eru tök Ólafs Egils á flæði og heildar- hugsun sýningarinnar til fyrir- myndar. Praktískt séð tekst flutn- ingur verksins til hins tölvu- og snjalltækjavædda nútíma prýðilega. Umgjörð Ilmar Stefánsdóttur er ágætlega heppnuð. Bakveggirnir fal- legir í sínum skandinavíska léttleika og búa til hæfilega gisinn bakgrunn fyrir falleg myndverk Elmars Þór- arinssonar. Ég veit reyndar ekki hvað þúfurnar sem þekja sviðið í fyrri hluta sýningarinnar eiga að segja mér, og er almennt frekar lítið fyrir að leikmyndir reyni að segja mér eitthvað mikið og merkilegt. En sem umgjörð fyrir líf persónanna og túlk- un leikaranna er þetta prýðilegt verk. Það er nokkuð óvenjulegt að hér rati upp á svið áratugagamalt erlent verk sem tæpast telst til „kanón- unnar“ – klassískra verka sem tekin eru til meðferðar aftur og aftur í krafti erindis síns, vinsælda eða list- rænnar dýptar. Helstu ástæðurnar fyrir því að setja Brot úr hjónabandi á svið hér og nú eru að þau gefa tveimur af hæfileikaríkum leikurum okkar tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Það gera þau og fyrir vikið á áhugafólk um framúrskarandi leik fyllsta erindi í Borgarleikhúsið næstu vikurnar. Ljósmynd/Grímur Bjarnason Örugg „Þau Björn Thors og Unnur Ösp Stefánsdóttir eru eins og fiskar í vatni í þessum texta,“ segir í leikdómi um uppfærslu Borgarleikhússins á Brotum úr hjónabandi eftir Ingmar Bergman í leikstjórn Ólafs Egils Egilssonar. Borgarleikhúsið Brot úr hjónabandi bbbnn Eftir Ingmar Bergman. Íslensk þýðing: Þórdís Gísladóttir. Leikstjórn og leik- gerð: Ólafur Egill Egilsson. Leikmynd og búningar: Ilmur Stefánsdóttir. Lýsing: Kjartan Þórisson. Tónlist: Barði Jóhannsson. Hljóð: Baldvin Þór Magnússon. Myndband: Elmar Þór- arinsson. Leikgervi: Margrét Benedikts- dóttir. Leikarar: Björn Thors og Unnur Ösp Stefánsdóttir. Frumsýning á Litla sviði Borgarleikhússins föstudaginn 4. nóvember 2016. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Haltu mér slepptu mér Tilkynnt hefur verið um tilnefn- ingar til 29. Evr- ópsku kvik- myndaverðlaun- anna og hlýtur engin íslensk kvikmynd tilnefn- ingu að þessu sinni. Kvikmynd þýska leikstjórans Maren Ade, Toni Erdmann, hlýtur flestar tilnefningar eða fimm, meðal annnars sem kvikmynd ársins. Kvikmyndin hreppti á dögunum Gyllta írisinn á kvikmyndahátíðinni í Brussel og var afar vel tekið á Cannes- hátíðinni. Hún verður framlag Þýskalands til Óskarsverðlaunanna. Aðrar myndir sem tilnefndar eru sem kvikmynd ársins eru I, Daniel Blake eftir Ken Loach, sem hreppti Gullpálmann í Cannes, Elle eftir Paul Verhoeven, Julieta eftir Pedro Almodóvar og Room eftir Lenny Abrahamson. Toni Erdmann tilnefnd til flestra verðlauna Tilnefnd Sandra Hüller í hlutverki sínu í Toni Erdmann. LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar HACKSAW RIDGE 5.20, 8, 10.45 (P) DR. STRANGE 3D 8, 10.30 TRÖLL 2D ÍSL.TAL 6 BRIDGET JONES’S BABY 5.30, 8, 10.25 POWERSÝNING KL. 22.45 Miðasala og nánari upplýsingar ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.