Morgunblaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016
Hinn magnaði Antaeus
frá Chanel er 35 ára um
þessar mundir og er
ríkulegur og umvefj-
andi, karlmannlegur og
ógleymanlegur. Ilm-
urinn, heitir eftir syni
sjávarguðsins Pósei-
don og jarðargyðjunni
Gaiu, er kryddaður
með dökkum leð-
urtónum og patchouli.
Sígildur 80’s ilmur sem hefur engu gleymt.
Antaeus
Code ilmurinn frá
Giorgio Armani er
löngu orðinn sígildur
og hér kemur há-
punkturinn hingað til;
tælandi ilmur sem
færir með sér hlið að
heimi glæsileika og
velgengni að hætti
Armani. Þessi dáleið-
andi herrailmur er
blanda viðar- og ambertóna með hæfilega sætri
tonkabaun sem setur punktinn yfir i-ið.
Armani Code Profumo
BOSS Bottled var
samstundis sígildur
er hann kom fyrst
fram árið 1998 og
hefur elst eins og eð-
alvín allar götur síð-
an. Intense Eau de
Parfum útgáfan er
eins og efsta stig af
þessum tímalausa
ilmi, sem er í senn
glæsilegur og flók-
inn. Viðartegundir, kryddtónar og ilmkjarnaolíur í
bland við græn epli og vanillu. Ilmur fyrir nútíma-
manninn sem sækist eftir lífsfyllingu og tekur
fagnandi þeirri reynslu sem lífið hefur upp á að
bjóða með staðfestu og dýpt.
BOSS Bottle Intense EDP
Biotherm vörurnar eru í fremstu röð og
henta nútímamanninum sem lifir virkum
lífsstíl. 48 klst deodorant, úði eða roll-on
og mýkjandi rakfroða er eitthvað sem ætti
að vera í hverri snyrtitösku.
Biotherm Homme
raksápa og svitavörn
Létt og frískandi rakakrem sem hentar sérstaklega
fyrir viðkvæma húð. Aðeins 10 innihaldsefni í ein-
faldri en áhrifaríkri blöndu sem tryggir 12 tíma sam-
felldan raka í andlitinu. Kremið hentar líka mjög vel
eftir rakstur.
Solution 10 de Chanel
Þegar þessi
magnaði ilmur
frá Chanel kom
fyrst fram árið
1990 fór tísku-
heimurinn á hlið-
ina enda hlýleg
en fram-
úrstefnuleg sam-
setning sandalv-
iðar, vanillu og tóbakslaufa eitthvað sem ekki
hafði áður komið fram. Fantaflott sjónvarps-
auglýsing (sem var mikið sýnd í bíóhúsum
borgarinnar) jók á áhrifin og egóistinn er alltaf
jafn heillandi.
Égoïste
Þessi skarpari og
ferskari útgáfa af
hinum klassíska
Égoïste kom fram
árið 1993 og nú
aftur, og felur í
sér jafnvægi, kraft
og karlmennsku.
Lavender og sedrusviður er meðal helstu ilm-
tóna.
Platinum Égoïste
Þessi rakaboma fyllir vanga og andlit karl-
mannsins krafti og ljóma þegar veður gerast
verri. Áferðin er létt, kremið smýgur fljótt inn
og skilur við húðina mjúka og fitufría. Þetta
þurfum við að bera á okkur kvölds og
morgna ef veturinn á ekki að taka of mikinn
toll af andlitinu.
Guerlain Super
Aqua Serum Light
„Lífið er of stutt fyrir vont
sánd“ sagði einhver; „Lífið er
of stutt til að ég nái að safna
mér fyrir almennilegum
lampamagnara,“ sagði þá
einhver annar. Ekki lengur.
Monoprice kynnti ekki alls
fyrir löngu til sögunnar „Mo-
noprice Stereo Hybrid Tube
Amp“ og Wall Street Journal kallar tækið hreinasta kraftaverk; ekki bara af
því að sándið er dúnmjúkt, hlýtt og fallegt heldur kostar græjan – haldið
ykkur – 149 bandaríkjadali! Bætið 50 dölum við og fyrir 199 fæst magnarinn
með pari af fínum hátölurum. Þetta hljómar vitaskuld gersamlega fráleitt en
dómarnir á netinu eru á einn veg og einhvers staðar þarna úti er fyrirtæki að
nafni Monoprice með það að markmiði að gera oss daglaunamönnum
kleift að hlusta á frábært sánd fyrir skikkanlegan pening. Rúsínan í magn-
araendanum? Tækið er Bluetooth-tækt í ofanálag.
Vinsamlegast myndið röð á síðunni monoprice.com
Lampamagnarinn frá Monoprice
Innilegur og fágaður ilmur með sént-
ilmannslegum jurta- og viðartónum.
Innblásturinn að ilminum er rykfrakk-
inn víðfrægi, einkennisilmur tísku-
hússins sem sjálfur Thomas Bur-
berry hannaði fyrir 100 árum. Mr
Burberry er uppreisnargjarn, fullur af
andstæðum og hefur eigin stíl.
Mr Burberry
Þeir kallað það „glasið
sem mun breyta því
hvernig við upplifum
vískí“. Stór orð, en þegar
að er gáð gæti hér verið
bylting á ferðinni; glas
sem sameinar félagslega
þáttinn sem tumbler-
glasið býður upp á (hægt
að dreypa á án þess að missa augnkontakt og
detta úr samræðum) og svo líka bragðupplifun
smökkunarglassins. Botninn er skorinn þannig
að hægt er að halda um glasið án þess að káma
sjálfan belginn út með fingraförum og sérstök
hönnun innan í botni Norlan-glassins gerir það að
verkum að ilmur og bragð finnst af viskíinu sem
önnur glös ná ekki að magna upp. Mögulegur
leikbreytir þarna á ferð. Okkar sett er í póstinum.
Norlan-viskíglasið
Í hópi allra sígildustu herra-
ilma er þessi fágaði sítr-
usilmur frá Chanel með hlýj-
um viðarnótum sem fyrst
kom fram á sjónarsviðið árið
1955 og hefur í engu glatað
aðdráttarafli sínu. Margir af
helstu fyrirmennum heims
hafa notað Pour Monsieur og
séntilmannslegri gerast
herrailmir ekki.
Pour Monsieur
Þessi kryddaði við-
arilmur er í senn
kraftmikill og karl-
mannlegur. Kyn-
þokkafullur ilmur í
fallegu glasi sem
kallast á við gríska
myndheiminn sem
Gianni heitinn Ver-
sace gerði að sín-
um.
Dylan Blue frá Versace
Á óskalistanum er þetta helst:
Girndargripir mánaðarins
Fyrir dagana sem við feng-
um ekki alveg nægan svefn
er Eye De-Puffer frá Biot-
herm töfralyf, með sam-
stundis kælandi áhrif sem
draga úr þrota og pokum,
gefur raka og hressir. Raka-
kremið gefur 48 klst. raka,
frískar og nærir samstundis
og hentar líka fullkomlega
eftir rakstur. 4 stykki eru
seld á hverri mínútu!
Biotherm Aquapower
Tvær af allra
bestu útfærsl-
unum af þessum
klassíska ilmi frá
Yves Saint-
Laurent. Ultime er
í senn ferskur,
dulur og seið-
andi, blágrár að
lit – Parfum Intense er fullur losta og tilfinningahita
og með djúpan amber-lit eins og dýrasta koníak.
L’Homme Ultime
og L’Homme Parfum
Intense frá YSL
Hvernig á því stend-
ur að herramenn
þessa lands hafa
ekki vanið sig á að
eiga herrabakka (e.
valet tray) skal ósagt
látið, en hitt blasir
við að tími er kom-
inn til. Að eiga af-
markaðan stað – hreyfanlegan að auki – þar sem hægt er að
leggja frá sér símann, veskið, pennann, lyklana, lukkupeninginn,
gleraugun og hvað annað sem vera skal er einfaldlega nauðsyn-
legt fyrir okkur sem notum ekki veski. Fyrir utan það að betri
helmingurinn er ekki að ergja sig á því að dótið okkar er ann-
aðhvort týnt eða dúkkar upp á ólíklegustu stöðum. Bakkarnir frá
Vorhus Living, hannaðir af Sveinbjörgu Hallgrímsdóttur, eru af hár-
réttri stærð, skarta lágstemmdri hönnun og eru prýði þegar þeir
eru tómir.
Herrabakki frá Vorhus Living