Morgunblaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016 H ot Yoga er frábær líkamsrækt fyrir karlmenn segir Helena Dögg Þórhallsdóttir, einkaþjálf- ari og jógakennari hjá Reebok Fitness, en hún kennir bæði í Holtagörðum og á Tjarnarvöllum. „Jóga er líka svo miklu meira en bara líkamsrækt því það felur í sér andlegan ávinning ekki síður en líkamlegan. Maður tengir saman líkam- ann, hugann, tilfinningarnar og maður nær betri fókus á núið, og núvitundin verður meiri. Hot yoga er því eitthvað sem ég myndi lýsa sem „hugleiðslu á hreyfingu“ því það kemst í rauninni ekkert annað að hjá mér þegar ég er á dýnunni. Sama hvað ég er að kljást við hverju sinni þá er ég bara akk- úrat þarna. Það er það besta við jóga al- mennt – það kemur þér í augnablikið og þú lærir að vera í núinu, og njóta þess. Í fram- haldinu er ég miklu betur búin til að takast á við hvaða verkefni sem kunna að bíða mín.“ Hitinn og rakinn skipta máli Helena Dögg ákvað sjálf að prófa hot yoga fyrir forvitni sakir á sínum tíma en ákvað að tveimur árum liðnum að hana lang- aði að fara hreinlega í jógakennaranám. Taka þetta alla leið, eins og sagt er. „Það var besta ákvörðun sem ég hef tekið. Mér hefur aldrei liðið jafnvel og eftir námið. Ég er frekar skeptísk á allan þann ávinning sem manni er lofað með alls konar líkams- ræktarkerfum en þarna fékk ég allt sem ég vonaðist eftir og rúmlega það. Öndunin, sem við vinnum mikið með í hot yoga, hefur gríð- arlega mikið að segja. Þegar við náum stjórn á andardrættinum getum við hægt á hug- anum og veitt okkur um leið djúpa slökun.“ Hot yoga er tiltölulega nýtt af- brigði að hinu ævaforna jógakerfi og kem- ur fram á sjónarsviðið um síð- ustu aldamót og einn helsti munurinn þar er að jógað er iðkað við hátt hitastig, eða um 37-40°C, þar sem rakinn er að sama skapi mikill. Flestir hafa einhverja hugmynd um það hverju jógaiðkun skilar þeim sem á hana leggur stund. En hverju bætir hitinn og rakinn við? „Rakinn gera það að verkum að maður svitnar mjög mikið í salnum meðan á tímanum stendur. Hitinn gerir það aftur á móti að verkum að við náum betri árangri í tímunum því vöðvarnir hitna fyrr og hitna betur. Þeir verða mýkri og þar af leiðandi komumst við ennþá fyrr í jógastöðurnar.“ Karlmenn jafnvel í meirihluta Nú gætu einhverjir haldið sem svo að þetta æfingakerfi hljómi ekki ýkja spennandi og reyni tæplega á, samanborið við hlaupabrettið og lóðin. Þetta er alrangt – um það getur undirritaður vottað af eigin reynslu. fyrir einhverjum vikum sam- þykkti greinarhöfundur sem sagt að fara með eiginkonunni í tíma en óttaðist hálft í hvoru að vera eini karlmaðurinn. Þær áhyggjur reyndust alls óþarfar því talsvert var af karlmönnum í tímanum. Og aldrei hefur svitinn bogað af mér sem þá. Helena brosir við og tekur undir þetta. „Ég kenni tvisvar í viku í Holtagörðum og þar eru herrarnir hreinlega í meirihluta. Og það á öllum aldri, allt frá ungum og upp í eldri menn sem mæta í hvert einasta skipti. Strákarnir eru sem sagt farnir að hópast í tímana enda hentar hot yoga öllum, sama á hvaða aldri þeir eru og hversu mikla eða litla hreyfingu þeir hafa stundað áður. Það skiptir engu því hver og einn getur fundið sinn stað við hæfi í jógastöðunum.“ Karlarnir eru líka að átta sig á því að þetta er alvöru líkamsrækt, um leið og hugurinn er ræktaður. „Það er líka mjög mikill misskilningur, oftast hjá karl- mönnum, að það þurfi ekki styrk í jóga. Þvert á móti eykst styrkurinn gífurlega í jóga sem og úthaldið sem þarf til að halda stöðunum í ákveðinn tíma. Regluleg iðkun styrkir líkamann og eykur út- haldið verulega. Líkamsstaðan batnar og fólk verður meðvitaðra um hana. Maður fer að þekkja líkamann og skilja hann betur.“ Andlega hliðin fer heldur ekki varhluta af ávinningnum sem hlýst af ástunduninni, eins og Helena útskýrir. „Rannsóknir hafa sýnt að jóga og hugleiðsluiðkun geta dregið úr kvíða, depurð og verkjum, og bætt svefninn töluvert. Það hlýst ekkert nema gott af jóga- iðkun“ Minni hætta á meiðslum Helena Dögg bætir því við að engin hætta sé á höggálagi eins og getur gerst við hlaup né heldur annars konar álagsmeiðsl eins og sumir hafa upp- lifað ef þeir fara fram úr sjálfum sér við lyft- ingar á lóðum. „Þú ert bara með líkamann einan að vopni, og notar hann.“ Þegar iðkendur mæta í fyrsta sinn má vera að sum heitin á jógastöðum séu þeim framandi og þeir viti ef til vill ekki al- veg hvað á að gera næst. Helena segir þetta minnsta áhyggjuefnið. „Það eru ótalmargar síður á netinu sem sýna og útskýra allar mögulegar jógastöður svo auðvelt er að glöggva sig á hlutunum fyrirfram, ef vill. Það er líka minnsta málið að mæta bara beint í tíma því fólk kemst undantekning- arlaust upp á lagið með þetta, fljótt og vel. En með því að gúggla „yoga postures“ þá má sjá þetta allt saman. Svo má líka rúlla dýnunni út heima hjá sér og taka nokkrar stöður á milli hóptímanna hjá okkur.“ jonagnar@mbl.is LÍKAMSRÆKT OG HEILSA Með líkamann einan að vopni Það er herramanna háttur að halda sér í formi og flestir höfum við eytt allnokkrum tíma við hlaup eða lyftingar. En hvað ef ein- hver benti þér á líkamsrækt þar sem þú hreyfir þig ekki af fermetranum sem þú ert staddur á og lyftir engu nema sjálfum þér? Svoleiðis er nefnilega til, og það sem meira er, þú munt óumflýjanlega svitna meira en nokkru sinni. Velkominn í hot yoga. Morgunblaðið/RAX Augnablikið Hot yoga er því eitthvað sem ég myndi lýsa sem „hugleiðslu á hreyfingu“ því það kemst í rauninni ekkert annað að hjá mér þegar ég er á dýnunni. Sama hvað ég er að kljást við hverju sinni þá er ég bara akkúrat þarna. Það er það besta við jóga almennt – það kemur þér í augnablikið og þú lærir að vera í núinu, og njóta þess,“ segir Helena Dögg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.