Morgunblaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 18
Búðarráp
í Mílanó
L
íklega er hvergi í heiminum þægilegra að kaupa hátísku-
fatnað en í Mílanó. Í dag má vissulega finna nokkurn vegin
sömu búðirnar í öllum stórborgum, en í Milanó eru búð-
irnar stærri, fleiri og þjappast á lítið og aðgengilegt svæði
sem heimamenn kalla Quadrilatero della Moda eða Tísku-
ferhyrninginn.
Er um að ræða lítinn reit í miðborginni, rétt norðan við dómkirkj-
una, Duomo di Milano. Markast svæðið af Via Allesandro Manzoni,
Via Senato, Corso Venezia og Corso Giacomo Matteotti. Heimsins
fínustu búðir dreifa sér innan þessa ferhyrnings en þær allra fínustu
eru við tvær götur: Via Monte Napoleone og Via della Spiga. Hér hafa
allir ítölsku hönnuðirnir sínar höfuðverslanir: Giorgio Armani leggur
undir sig heilt stórhýsi við Via Alessandro Manzoni, með hótel og veit-
ingastað á efstu hæðunum, á meðan Dolce & Gabbana þarf að breiða
úr sér á a.m.k. þrjá staði þar sem ein verslunin er fyrir herra, önnur
fyrir dömur og sú þriðja gagngert fyrir skó, töskur og aðra aukahluti.
Hverfið er fyrir löngu orðið alþjóðlegt og er Bandaríkjamaðurinn
Tom Ford til dæmis með verslun á mörgum hæðum, og Louis Vuit-
tion dugar ekki færri en tvær búðir.
Ódýrari búðirnar í suðurhlutanum
Raunar teygir verslunarsvæðið sig núna alla leið niður að Duomo,
en meðfram dómkirkjutorginu og áfram eftir Corso Vittorio Em-
anuele II standa búðirnar í röðum. Við sjálft dómkirkjutorgið er ein-
stök bygging, og ein elsta verslunarmiðstöð heims: Galleria Vittorio
Emanuele II. Þessa gler- og marmarahöll byggðu Ítalir árið 1865 á
meðan Íslendingar bjuggu enn í torfkofum. Þar hafa bæði fín og
minna fín merki komið sér fyrir, s.s Massimo Dutt, Versace og Prada,
og meira að segja að Mercedes Benz og Ferrari eru með fatalínur sín-
ar þar til sölu.
Þar við hliðina er La Rinascente, stórverslun með lúxusmerki af
ýmsum toga, og við Corso Vittorio Emanuele eru ódýru merkjabúð-
irnar eins og þær leggja sig: Mango, Zara, Bershka, Pull & Bear,
H&M, Foot Locker og þannig mætti lengi telja. Er rétt að benda líka
sérstaklega á Excelsior-stórverslunina, sem er nánast falin í hlið-
argötu; þar er safnað saman úrvali af framúrstefnulegum tískufatnaði
héðan og þaðan, og eigulegum smáhlutum sem erfitt er að standast.
Ef þetta dugar ekki til þá eru verslanirnar farnar að teygja sig
langt í suðvesturátt frá dómkirkjutorginu, eftir Via Torino, en úrvalið
þar er að mestu endurtekning á Corso Vittorio Emanuele.
Þeir sem eiga leið til Mílanó ættu svipast um eftir verslunum Boggi
sem finna má bæði í tískuhverfinu og á nokkrum öðrum stöðum í
borginni. Boggi gerir vandaðan herrafatnað á frekar góðu verði. Föt-
in eru hæfilega formleg án þess að vera gamaldags, og veita yfirbragð
ítalsks glæsileika. Þeir sem eru djarfari í fatavalinu ættu að kíkja á
verslun Moschino á Corso Venezia. Þar er lítil herradeild með Mosch-
ino Love sem er ódýrari lína þessa ítalska tískuhúss.
Loks ætti að nefna gleraugnabúðina Salmoiraghi & Vigano sem
stendur við Piazza San Babila. Er leitun að gleraugnaverslun með
meira úrval af vönduðum gleraugum og sólgleraugum en búðin
spannar tvær hæðir.
Upplagt er að ljúka löngum verslunardegi með smávegis menn-
ingu, til að vega upp á móti neysluhyggjunni. Má þá t.d. leita uppi
kvikmyndahúsið The Space Cinema, rétt hjá Duomo, en þar eru
sýndar myndir á ensku einu sinni í viku. Óperuhúsið heimsfræga
Teatro alla Scala er líka steinsnar frá. Kaupa má miða í óperuhúsinu
sjálfu eða í miðasölu sem er undir dómkirkjutorginu, og algengt að
miðaverðið spanni allt frá 15 upp í 250 evrur.
ai@mbl.is
FERÐAST UM HEIMINN
Hjartað Dómkirkutorg Mílanóborgar sem markar suðurmörk tískusvæðisins.
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016
Hvernig varð Mílanó að
höfuðborg tískunnar?
Þó að Mílanó eigi sér langa sögu sem lista- og menning-
arborg er það tiltölulega nýskeð að borgin varð að þunga-
miðju ítalskrar tísku. Um miðja síðustu öld fór Flórens að
verða þekkt fyrir fallegan klæðnað og flinka klæðskera, en
þungamiðjan færðist þaðan yfir til Rómaborgar þegar
tískugeirinn elti kvikmyndageirann. Þegar bandarísku
kvikmyndastjörnurnar fóru að sjást á hvíta tjaldinu í glæsi-
legum ítölskum fatnaði í rómantískum Rómarsenum varð
ekki aftur snúið og ítölsk tíska varð eftirsótt um allan heim.
Loks breyttist tískuheimurinn seint á sjöunda áratugnum
og snemma á þeim áttunda þegar byrjað var að fjölda-
framleiða tískufatnað. Með textílgeirann í norðurhluta
landsins var nánast óhjákvæmilegt að tískusenan myndi
byrja blómstra í Mílanó.
Aðgengi Via della Spiga er notaleg göngugata.
Ljósmynd / Youssef Diop
Hvelfing Galleria Vittorio Emanuele er forn og einstaklega fögur verslunarbygging.
Kjarninn Kortið sýnir tískuhverfi Mílanó. Rauði hlutinn er
hinn eiginlegi hátísku-ferhyrningur en í bláa hlutanum
eru ódýrari verslanir, í bland við dýrar s.s. Zara og H&M.