Morgunblaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016 Þ að kemur á daginn að sérsaumuð föt henta öllum sérstaklega vel því sé að gáð eru allir sérstakir. Þó að stærð 50 sé sú stærð sem kemst næst því að passa greinarhöfundi þá þarf að taka með í reikninginn að hann er skakkur (bók- staflega, þökk sé mislöngum fótleggjum) og auk þess búinn ýmsum fleiri frávikum frá frumgerð- inni að stærð 50. Ég kýs að kalla þetta sérkenni því það hljómar betur en gallar, ekki satt? Það er einmitt þarna sem sérsaumurinn kemur inn til að búa til föt sem gera lítið úr vanköntunum, gerir um leið meira úr kostunum við líkamsbygg- ingu viðkomandi. en hverjir eru það allajafna sem koma í Herragarðinn til að fá föt á sig – mæld, sniðin og sérsaumuð? Ég sest yfir espressóbolla STÍLL & HERRATÍSKA Föt sem passa fullkomlega Það er eitt að kaupa sér jakkaföt af slánni og eitthvað allt annað að láta sérsauma á sig föt eftir máli. Blaðamaður brá sér í Herragarðinn í Kringlunni til að sjá og reyna hvernig sérsaumur fer fram með öllu til- heyrandi, og fól sig þar með í faglegar hendur Vilhjálms versl- unarstjóra og félaga. Morgunblaðið/Golli Toppmannskapur Þessir kappar í Herragarðinum sem sér til þess að allt passi fullkomlega. Frá vinstri eru Vilhjámur Svan Vilhjálmsson, Alvaro M. Calvi og Aðalsteinn Jón Bergdal. Vilhjálmur og félagar meta hvata efni henti helst. Í sérsaumi eru smáatriðin oft aðalatriðin. Merkið tryggir gæðin – og föt sem passa fullkomlega. Efni, fóður, tölur og fleira liggur fyrir. Handverkið blífur en birgðastaða efnisins er könnuð í snjall- tæki í rauntíma. Tækni og fagmennska fara þarna saman. Efnið, fóðrið, tölur og tvinni – allt verður að velja af kostgæfni og með aðstoð fagmanna. Úr óteljandi efnum er að velja fyrir fötin. Uppábrotið ákveðið. Það er vel við hæfi að fá heitan espressó meðan mælt er. Ermarnar eiga að vera nógu langar en þó ekki svo að skyrtan sjáist ekki. 

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.