Morgunblaðið - 18.11.2016, Side 10

Morgunblaðið - 18.11.2016, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016 í herrafataspjall með Vilhjálmi Svan Vilhjálmssyni, verslunarstjóra Herragarðsins í Kringlunni. Eitthvað einstakt fyrir herrana „Erindi þeirra sem koma til okkar í sérsaum eru alla jafna tvíþætt,“ útskýrir Vilhjálmur. „Oft eru menn komnir til að fá bestu mögulegu fötin fyrir brúðkaup og önnur stór tilefni, en almenn eru menn hins vegar komnir til að fá einfaldlega föt sem passa þeim framúrskarandi vel. Menn vilja í auknum mæli föt sem eru búin til sérstaklega fyrir þá.“ Í þessu kristallast að sögn Vilhjálms sá munur sem er á þeim sem komu í sérsaum á árunum fyrir hrun, 2005-2007, og þeim sem koma í dag. Herrarnir eru með sterkari einstaklingsvitund og sjálfstæðari í hugsun. „Fyrir 10 árum vildu allir vera dálítið eins, að manni fannst, en núna er það þannig að menn vilja eiga eitthvað sérstakt. Þeir eru að leita að einhverju fyrir sig sem næsti maður á ekki. Nútíminn ýtir undir þetta, einkum hvað yngri karlmenn varðar. Þeir eru á netinu allan daginn, sítengdir því sem er að gerast um allan heim og vita því upp á hár hvað er í gangi og taka einstaklingsmiðaðar ákvarðanir út frá því. Þeir eru vel upplýstir um það hvernig föt eiga að vera. Þeir koma því til okkar með mjög fastmótaðar hug- myndir um hvað þeir vilja og hvers konar fötum þeir eru að leita að. Það var heldur á annan veg hér áður fyrr.“ Vilhjálmur rifjar upp sögu úr vinnunni, máli sínu til stuðnings, frá þeim tíma þegar hann var að feta sín fyrstu fótspor í herrafatabrans- anum rétt fyrir síðustu aldamót: „Maður einn kom í búðina þar sem ég vann í og sagði einfaldlega, mig vantar jakkaföt. Ég var sem sagt með öll völdin, valdi fyrir hann jakkaföt og sagði svo bara „gerðu svo vel“. Málið dautt. Þetta hefur breyst. Sérsaumurinn er þess vegna öðru fremur svar við markaðnum, svar við því sem menn vilja í dag. Smekkur herranna er orðinn einstaklingsmið- aðri í dag.“ Föt sem passa fullkomlega Vilhjálmur bendir á að einnig séu margir sem hreinlega þurfi sérsaumuð föt, til að mynda þeir sem nota ekki sömu stærðina fyrir jakka og buxur eða hafa annars konar frávik til að bera frá fatastærð- unum beint af slánni. Þau jakkaföt geta – þegar best lætur – komist býsna nálægt því að passa þér en það passar ekkert akkúrat nema það sé sérsaumað, eðli máls samkvæmt. „Þegar einstaklingur mátar tilbúin jakkaföt get ég alltaf fundið eitthvað sem gera má enn betur og það er hægt að laga þau að viðkomandi. Það verður hins vegar aldrei það sama og sérsaumur, skiljanlega, því það setur manni ákveðnar skorður sem þarf að vinna innan. Sérsaumurinn gefur manni aftur á móti frjálsar hendur til að móta fötin að öllu leyti eftir líkama viðskiptavinarins og passa því full- komlega þegar þau eru tilbúin. Ekki á svo gleyma að í kjölfarið kemur svo tilfinningin að eiga eitthvað sem þú kannt óskaplega vel við og þykir vænt um. Þessi föt verða það sem maður kallar gjarnan „your second skin“, bætir Vilhjálmur við. „Enda ótal mælingar að baki.“ Þess má geta í framhaldinu að mælingar klæðsker- ans Alvaro Calvi, sem hefur yfirumsjón með mæling- unum fyrir sérsauminn hjá Herragarðinum, ásamt efnisvali í fötin, taka alla jafna um það bil klukku- stund. „Það fer reyndar eftir því hvað menn eru með mikinn valkvíða,“ segir Vilhjálmur og brosir út í ann- að, „en við hjálpum vitaskuld til. Við spyrjum ákveð- inna grundvallarspurninga, fáum tilfinningu fyrir því sem menn eru að hugsa og leiðum þá svo á réttan stað.“ Aðspurður hvort einhver viðskiptavinur hafi verið svo krefjandi í laginu að það hafi hreinlega ekki verið hægt að sauma á hann segir Vilhjálmur það af og frá. „Við höfum aldrei þurft að segja nei við nokkurn mann. Hingað til höfum við getað þjónustað alla sem til okkar hafa komið.“ Að vega fötin og meta Talandi um valkvíða – ég spyr Vilhjálm næst hvaða atriði varðandi fötin tekur alla jafna lengstan tíma að ákveða, þegar kemur að sérsaumuðum jakkafötum. Hann hugsar sig um stutta stund. „Ég hugsa að það sé efnið.“ Það þarf svo sem ekki að koma á óvart enda eru möguleikarnir í þeim efnum – bókstaflega – svo gott sem endalausir. „Sumir viðskiptavinir okkar þurfa hreinlega að fá sýnishorn af efninu með sér heim til að ráðfæra sig við eiginkonuna og fá þar faglegt innlegg í ákvarðanatökuna,“ útskýrir Vilhjálmur og kímir við. „Það er bara í góðu lagi og fullkomlega eðlilegt. Það kaupa fæstir bíl án þess að reynsluaka honum, ekki satt? Svo erum við með stóran hóp viðskiptavina sem þekkja okkur ágætlega núorðið eftir viðskipti í gegn- um árin og treysta okkur til að stýra sér frá því að fara út í einhverja vitleysu. Við sem vinnum í Herra- garðinum búum að býsna mikilli reynslu og búum að töluverðri reynslu – við Alvaro erum til að mynda búnir vinna saman frá því rétt fyrir síðustu aldamót – og erum því vel í stakk búnir til að veita við- skiptavinum okkar góða þjónustu og hjálpum þeim að finna það sem þeir eru að leita að.“ Persónulegu smáatriðin Vilhjálmur tekur fram að það sem heilli svo marga við sérsauminn, fyrir utan hversu fullkomlega fötin passa eigandanum, sé hversu ótalmargir möguleikar séu í boði til að gera fötin einstök. „Þegar aðalefnið hefur verið valið er hægt að leika sér með val á fóðri, tvinna fyrir saumana, tölurnar, jafnvel er hægt að hafa olnbogabætur og þannig má lengi telja. Samspil þessara þátta gerir það að verk- um að fötin verða einstök og það er það skemmtilega við sérsauminn.“ Vilhjálmur bætir við að margir leiki sér líka með möguleikann að láta sauma eitthvað persónulegt inn- an á jakkann í fóðrið eða annars staðar þar sem það er ekki sýnilegt alla jafna. Það geti verið nafn eigandans, dagsetning einhvers stórs dags sem fötin voru saum- uð fyrir eða eitthvað allt annað. Blaðamaður tekur hann á orðinu og biður um sérósk sem fær Vilhjálm og félaga til að brosa. En á beiðnina er fallist og hver hún er kemur í ljós í næsta tölublaði af M Herrum þegar við skoðum afraksturinn af mælingum dagsins. „Mér þykja dagsetningarnar einna skemmtilegasta útfærslan hvað þetta varðar,“ bætir Vilhjálmur við, „og það var upprunalega hugmynd frá kúnna“. Að þora að taka slaginn … Sérsaumur er vitaskuld leiðin til að búa til föt sem passa, allt eftir séróskum viðskiptavinarins. Það breytir því samt ekki að Vilhjálmur, Alvaro og félagar búa samtals að áratuga langri reynslu og vita þar af leiðandi betur. Það er óumdeilt. En hvað gerist þá þegar viðskiptavinur kemur með fyrirfram fastmót- aðar hugmyndir en starfsmenn Herragarðsins sjá undireins að það er til betri leið. Hafa Vilhjálmur og félagar þá tekið slaginn og leitt kúnnann á rétta braut? „Mjög oft,“ svarar hann og kímir við. „Stundum þarf að segja mönnum að þeir séu að gera mistök en þá þarf auðvitað að koma því til skila á mjög auð- mjúkan og kurteislegan hátt. Svo eru möguleikarnir svo óendanlega margir þegar kemur að því að útfæra sérsauminn að okkur tekst alltaf að sýna viðskiptavin- inum fram á bestu lausnina sem hann verður sátt- astur með.“ jonagnar@mbl.is Inn með magann og svo er bara að drífa sig í ræktina áður en fötin verða til! Alvaro rykkir saman svo jakkinn passi fullkomlega. Allt þarf að mæla nákvæmlega, frá hálsmáli og niður í skálmarnar. Alvaro bregður málbandinu á loft af alkunnri fimi. Blaðamaður mældur í krók, kring og undir kverk. Villi og Alvaro færa mælingarnar til bókar. Fyrir 10 árum vildu allir vera dálítið eins, að manni fannst, en núna er það þannig að menn vilja eiga eitthvað sérstakt Fagmennirnir fara á bakvið blaðamann við mælingarnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.