Morgunblaðið - 18.11.2016, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 18.11.2016, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016 H ápunktur dagsins var þegar ég þurfti að leggja Aventadornum í nokkrar mínútur fyrir framan grunnskóla rétt hjá íbúðinni sem við hjónin höfðum leigt í Mílanó. Það var kominn tími til að aka aftur suður til Sant‘Agata til að skila bílnum en fyrst þurfti að skjót- ast og kíkja á hundinn sem hafði verið einn heima frá því snemma um morguninn. Vildi þannig til að skóladeginum var að ljúka og lá straumurinn af krökkum fram hjá bílnum og upp í rútu sem beið þar hjá. „Bella macch- ina! Bellissima!“ hrópuðu börnin og gátu ekki hamið hrifningu sína. Skemmtilegastur af öllu var furðusvipurinn sem kom á litlu andlitin þegar þau sáu bílstjóra- dyrnar opnast, upp á við, eins og vængur á flugu. Þessi óvænta uppákoma við skólann hefur örugglega smitað margan strák- inn og stelpuna af bílabakteríu sem mun fylgja þeim ævina á enda. Galdrakarlarnir í Sant’Agata Viðbrögð barnanna voru tær birtingarmynd þeirra töfra sem búa í bílunum frá Lamborghini. Þessi ítölsku tryllitæki eru svo mikið meira en kröftug vél og fal- legar útlínur; þau eru gleðigjafar bæði fyrir þann sem situr undir stýri og fyrir aðra vegfarendur. Þetta eru bílar sem fólk veifar, brosir til og sendir kossa. Í sumar fjallaði ég um litla Lambóinn, Huracán, og lýsti hon- um sem „lífsgleði á hjólum“, og það sama má segja um Aventador. Bara það að pésa frá litlu dagblaði alla leið uppi á Íslandi skuli vera hleypt í svona bíl seg- ir mikið um þann anda sem ríkir hjá Lamborghini, og endurspeglast í bílunum þeirra: „Ekkert vesen! Hérna eru lyklarnir. Skemmtu þér vel,“ segja þeir og eru ekk- ert að láta það trufla sig að ólíklegt sé að þeir selji einn einasta bíl til Íslands í bráð. Til samanburðar fékk ég að reynsluaka GTC4Lusso hjá Ferrari í haust, eftir mikið pex og prútt, og hófst sú heimsókn á 45 mínútna fyrirlestri. Lamborghini nennir ekki að standa í Power- Point: út á vegina með þig, ungi maður! Sjöhundruðogfimmtíu Í þetta skiptið fékk ég að láni Aventador Super- Veloce, einn af aðeins 600 sem framleiddir verða. Kom- inn nýr til Íslands myndi þessi ofursportbíll kosta um 85 milljónir króna eftir að búið er að greiða alla skatta og gjöld. Það er ekki hægt að fara mikið ofar í fæðu- keðju fjöldaframleiddra sportbíla, nema kannski í Bugatti. Í grófum dráttum má skipta fram- leiðslu Lamborghini í tvennt: annars veg- ar eru 12 strokka skrímslin, sem eru dýr- ari og seljast í færri eintökum; og hins vegar 10 strokka tryllitækin sem eru að- gengilegri, henta ögn betur til daglegrar notkunar og seljast í fleiri eintökum. Aventador tók við af Murcielago í skrímsladeildinni árið 2011 en Huracán kom í stað Gallardo árið 2014 sem sölu- væni bíllinn. Síðan koma bætur, breytingar og sér- útgáfur. Fyrsti Aventadorinn var 690 hefstöfl, og ári síðar var hulunni svipt af Roadster-útgáfu með fjarlægjanlegu þaki. Næst kom 710 hestafla afmæl- isútgáfa árið 2013 og loks ofur-sportleg- ur 750 hestafla Aventador SuperVeloce árið 2015 sem varð síðan fáanlegur í Roadster-útfærslu á þessu ári. Límdur við götuna Aventador SuperVeloce mæti lýsa sem Lamborghini fyrir lengra komna. Þó að vel megi aka bílnum á venjulegum hrað- brautum jafnt sem í miðborgarumferð þá er hér á ferð vöðvabúnt sem er umfram allt skapað fyrir kappakstursbrautina. Allt er gert til að létta bílinn, og með því að nota kol- trefjar á fleiri stöðum varð SuperVeloce 50 kg léttari en upprunalegi Aventadorinn. Að utan er augljósasta sérkennið risastór vindskeiðin sem þrýstir dekkjunum niður í malbikið af 180% meiri krafti en áður. Sætin eru líka orðin harðari og sportlegri og leggjast eins og skel utan um ökumann og farþega. Þá hefur fjöðrunin Uggar Bakhlutinn er vígalegur og fallegur rétt eins og framhlutinn. Ljósmynd / Youssef Diop Þokki Skarpar útlínurnar vöktu verðskuldaða athygli þegar Aventador kom fyrst fram á sjónarsviðið. Verður að segjast eins og er að hönnunin hefur elst vel. SuperVeloce fer alla leið með vindskeiðinni. Lamborghini Aventador LP 750-4 SV Reynsluakstur 6,5 LV12 bensínvél 750 hö/ 690 Nm 7 gíra ISR 0-100 km/klst: 2,8 sek Hámarkshr.: yfir 350 km/klst Fjórhjóladrifinn m. Haldex Pirelli P Zero Corsa 20-21” Eigin þyngd kg: 1.525 Farangursrými: óuppgefið Mengunargildi: 370 g/kg Verð eins og prófaður: um 85.200.000 kr. 16 L í blönduðum akstri Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Á toppi fæðukeðjunnar Pláss Framskottið er nokkuð drjúgt. Meðalstóri bakpokinn rúmast auðveldlega. 

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.