Morgunblaðið - 18.11.2016, Page 20

Morgunblaðið - 18.11.2016, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016 Þ að er ekki ofsagt að ProGastro við Ögurhvarf í Kópavogi sé svolítið himnaríki fyrir alla áhugamenn um eldamennsku og eldhúsáhöld því þar má fá allt sem nöfnum tjáir að nefna í eldhúsið og fyrir grillið. Og langt mál er að telja upp allt það sem fæst í þessari myndarlegu verslun – til þess að fá heildarsýningu verða lesendur einfaldlega að bregða sér í verslunina og skoða sig almennilega um – en M Herrar gómaði verslunarstjórann Hafþór Óskarsson og fékk hann til að útlista það sem herramenn ættu hiklaust að eiga í fórum sínum áður en lagt er í matargerðina. Hann minnir á að hann og samstarfsfólk hans hlakki til að taka á móti áhugasömum sælkerum í búðina til að skoða það sem í boði er. „Við fáum margt fagfólk úr matreiðslu- og veitingahúsageiranum til okkar en það er jafnvel enn skemmtilegra að fá áhugafólkið til að sýna því það sem við höfum upp á að bjóða á tveimur hæðum hér í Ögurhvarfinu. Við erum með réttu áhöldin fyrir alla, hvort heldur það er kokkalandsliðið eða áhugafólk með ástríðu fyrir góðum áhöldum, fallegri hönnun og góðum mat.“ Haffi, þú hefur orðið: MATUR OG MATARGERÐ Morgunblaðið/Ófeigur Eldhúsáhöld „Við erum með réttu áhöldin fyrir alla, hvort heldur það er kokkalandsliðið eða áhuga- fólk með ástríðu fyrir góðum áhöldum, fallegri hönnun og góðum mat,“ segir Haffi í ProGastro. Eldhúsafrekin byrja hér Það er karlmennskumerki að kunna sitthvað fyrir sér í eldhúsinu enda verða sannir herramenn að vera sjálfbærir þegar kemur að því að matreiða. Til þess þarf hins vegar rétt úrval áhalda og til að glöggva okkur á því sem herramenn þurfa að hafa við höndina þeg- ar kemur að eldhúsafrekum heilsuðum við upp á Hafþór Óskarsson – Haffa í ProGastro. Við fáum margt fagfólk úr mat- reiðslu- og veit- ingahúsageir- anum til okkar en það er jafnvel enn skemmti- legra að fá áhugafólkið… „Pönnurnar og pottarnir frá AMT eru þýsk hágæðavara og það er ekki út í bláinn að pönnurnar eru kallaðar þær bestu í heimi, enda elda bestu matreiðslumeistarar heims ekki á neinu nema AMT. Botninn á pönnunum er 9-10 millimetra þykkur og ég veit ekki um neinar aðrar sem hafa jafn þykkan botn enda halda þær hita framúrskarandi vel. Ysta lagið er efni sem heitir lotan, það er sterkara en teflon og inniheldur ekki þetta PFOA [perf- lúoroktansýru] sem sífellt fleiri vilja forðast að nota við mat- argerð. Pönnurnar mega fara inn í ofn ef því er að skipta því handfangið þolir allt að 240 °C. Það má setja þær í upp- þvottavél en það geri ég nú samt aldrei. Það er nóg að þvo pönnuna með vatni og í þriðja hvert sinn set ég smá dropa af sápu. Kokkalandsliðið okkar notar bara AMT og á síðustu Ól- ympíuleikum voru 48 af 52 þjóðum með AMT til að elda á fyrir sitt íþróttafólk.“ Pönnur og pottar frá AMT Gastroguss „Það er svolítil fjárfesting að kaupa sér japanskan hágæðahníf en þegar maður hef- ur einu sinni handleikið og notað svona verkfæri verður ekki aftur snúið. Þessa hnífa þekkja allir atvinnukokkar því þetta er það flottasta sem fæst og meðal fag- manna eru þessir hnífar nánast trúarbrögð. Þessir hnífar eru slík eldhússtáss að fólk vill ekki fela þá ofan í skúffu. Þá kemur Stonehenge-standurinn sér vel, en hann er úr hágæðaviði með segulstáli að innan sem heldur hnífunum á sínum stað. Það fer líka best með flugbeitta eggina á hnífunum, fyrir utan hvað þetta er ótrúlega fal- legt á borði. Standurinn er til í kirsuberjaviði, eik og hnotu. Þessa hnífa kemur þú með til okkar að brýna einu sinni á ári en lætur vera að stússast í því sjálfur.“ Hnífar frá KAI og Masahiro „Að fást við mat kallar á svuntu en það er ekki þar með sagt að það þurfi að gefa einhvern afslátt af lúkkinu. Boldric- svunturnar koma í öllum regnbogans litum. Ef maður blaðar í gegnum tímarit um mat og vín sést að það eru flestir komnir í Boldric núorðið enda eru svunturnar ferlega gæjalegar og flottar. Strákarnir hafa alveg verið að falla fyrir þeim upp á síðkastið, bæði fyrir eld- húsið og grillið. Boldric-svuntur kosta en þetta eru handsaumuð gæði, fáan- legar í taui, gallaefni og leðri fyrir þá sem gera kröfur. Svunturnar hafa sleg- ið í gegn hjá okkur og fljúga út, eins og þær hafa gert alveg síðan við tókum inn fyrstu prufusendinguna sem hvarf nánast samdægurs.“ Svuntur frá Boldric Það er í senn merki um góðan smekk og góða dómgreind að eiga almennileg glös fyrir bjórinn og í þeim efnum standa fáir jafnfætis þýska framleiðandanum Spiegelau, sem býr til há- gæðaglös fyrir allra handa drykki. „Glas og glas er ekki það sama og bjórglas og bjórglas er langt frá því að vera það sama. Ein vinsælasta gjöfin hjá okkur er Tasting Kit-settið frá Spiegelau, sem inniheldur fjögur mis- munandi bjórglös fyrir mismunandi bjórstíla, og þá er skothelt að kaupa með fáeina mismunandi bjóra sem passa við glösin. Algerlega frábær gjöf sem hittir alltaf í mark. Lögun hvers glass hæfir þá karakter bjórsins hverju sinni sérstaklega og dregur fram bragðið og ilminn. Í settinu er IPA-glas, weissbier-glas, porter/stout-glas og lagerbjór-glas.“ Spiegelau-bjórglös

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.