Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2015, Qupperneq 12
Helgarblað 10.–13. júlí 201512 Fréttir Erlent
JEPPADEKK
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
Þeir sem eiga enga að
L
ík karlmanns á áttræðis-
aldri fannst í íbúð hans í Jap-
an mánuði eftir að hann lést.
Ættingjar hans höfðu ekki vitj-
að hans svo mánuðum skipti
og eina ástæðan fyrir því að hann
fannst var sú að nágranni hans kvart-
aði undan lyktarmengun. Þegar far-
ið var að huga að manninum fannst
hann látinn.
Fjölgun eldri borgara er mikil í
Japan og helst það í hendur viið að
margir einangrast og deyja án þess
að aðstandendur þeirra, eða aðrir,
taki eftir fráfalli þeirra. Velferðarkerf-
ið, sem er af skornum skammti, nær
að auki ekki utan um eftirfylgni eða
eftirlit með fólkinu. Þegar búa um
fimm milljónir eldri borgara einir og
er búist við því að fjöldi þeirra sem
deyja, einir og yfirgefnir, margfaldist.
Fyrir vikið hafa verið stofnuð
hreingerningateymi sem fara heim
til fólksins, hreinsa út úr íbúðum
sem eru í misgóðu ástandi. Ljós-
myndarar Reuters slógust í för með
einu slíku teymi og mynduðu að-
gerðir þeirra og heimili fólksins. Þeir
fara yfir íbúðina af virðingu, biðja
fyrir þeim látna og reyna að tryggja
að jarðneskar leifar hans og eigur séu
í öruggum höndum. n
Hreinsitæknar fara yfir „íbúðir dauðans og einmanaleika“
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Heimsókn
Ræstingamaðurinn
Hirotsugu Masuda
fer með bæn áður
en hann gengur
inn á heimili 85 ára
manns sem lést í
mars síðastliðn-
um. Hann hafði
verið látinn í mánuð
þegar hugað var að
honum. Heimilið
var fullt af rusli og
mætti starfsfólki
hreinsiteymisins
stæk lykt þegar
þangað var komið.
Íbúðirnar eru
kallaðar „íbúðir
dauðans og
einmanaleika,“ og
fer mikil vinna í að
hreinsa þær.
Blóm skilin eftir Hirotsugu
Masuda og vinnufélagar hafa tæmt íbúðina
að mestu leyti. Hér fer Masuda aftur með
bæn, kveikir á reykelsi og kemur fyrir blóm-
um. Það er lokaathöfnin við íbúðina sem
verður síðan sett aftur í útleigu eða seld.
Annríki
Það er mikið
starf sem bíður
hreinsiteymisins.
Sprengja
Lyktarsprengju
með skordýraeitri
er komið fyrir í
íbúðinni til að
drepa flugur og
aðra óværu.
Skelfileg
aðkoma
Íbúðin var í mikilli
niðurníðslu.
Vernda manninn Leigusalinn og eigandi íbúðarinnar fer yfir persónuleg gögn
mannsins til að tryggja að óprúttnir aðilar komist ekki yfir þau og bankareikninga, eigur hans
eða reyni að þykjast vera hann. Þá er reynt að finna upplýsingar um nána ættingja til að
upplýsa þá um fráfall mannsins.
Flugnanet
Flugurnar hafa
komið sér vel fyrir á
glugga íbúðarinnar.
Allt virðist hafa
brugðist í nánasta
umhverfi mannsins
sem lést. Fjölskylda
hans heimsótti
hann ekki, nágrann-
ar huguðu ekki að
honum né aðrir vinir
eða ættingjar.