Alþýðublaðið - 24.12.1924, Page 3

Alþýðublaðið - 24.12.1924, Page 3
AL*¥&t7BÍ.A&I£> JÖL A SÆ Sjóli dags að Ægishöllu ekur yzt í vestri huldri logareið. Álfa Ijóssins óttinn burtu hrekur, eftir röðli skunda beina leið. Fyrr en varir flýja birtan tekur; falla gfir myrkrin djúp og breið Hríðarnornum vonir kvöldið vekur; vex þeim megin storms við rammaseið. Rökkurálfar renna svartagöndum, rýna og skima yfir fold og lá; ótt og títt þeir ota skuggabröndum, aldurtila hverjum geisla spá. Æðstu ráðum yfir hugarlöndum ár og síð þeir vilja fegnir ná, — Ijósþrá hverja binda myrkurböndum, byrgja' í tima sérhvern andans skjá. Skerja miíli flaust er úti’ á flóa. Fyrðar kvíða nótt og œstum ver. Háskar margir báða standa’ á bóga, bíða þess, er hinzta skíma fer. Himinglœva1) hyggur gnoð að króa, hrekja út í röst við Feigðarsker. Þaðan engir rekkar burtu róa; raula oft þar náljóð Kári og Hlér. © Seglið ekki lofðar2) vilja lœgja, láta œða fley um sílabóF). Boðaföll þó bráðum laka að œgja; blóðuyhadda’y um feigð og dauða gól. Ægir reiður aldreí kann að vœgja; úti’ á milli boða’ er hvergi skjól. Hver mun ógnum burtu megna að bœgja, bjarga fari, — upp er renna jól? Skýjatröll á dimmu lofti drottna draugsleg öll og svartaéljum spá, Ijósi meðan þróttur er að þrotna, þeysa vindajóunF) til og frá, hlakka iil að horfa á vaska flotna«/ ■"*" hrekjast út á myrkum, tryltum sjá, fleyið loks í brekum'1) háum brotna, brimsins handtök feigum mönnum á. Hrannir þegar háar yfir skefla, heyrast tekur brak í veikri gnoð. Fljótum mundum fyrðar reyna’ að hefla, fella síðan alveg rifna voð. Ljóst er nú um líf og davða að tefla, láta stjórann. — Hvar er lið og sloð? Hœttur trú á huliðsmögnin efla. — Hver fer nú til guðs með skilaboð? Vpp til hœða eldheit bœnin svífur; ógnir stormsins henni veita þrótt. Líkt og engill Ijóss hún myrkrin klýfur, leitar guðs og áheyrn hlýtur skjótt. Ægitöfra óltans brátl hún rýfur; ítum flestum verður þegar rótt. — Beimar finna: bœn úr dauða hrífur, beðin sem er helga jólanótt. Skyndilega skýja milli rofar, skín þar sljarna gegnum úrvánsgöng8). Gramur veðra, öllum myrkrum ofar, ofan kallar: *Verið hvergi ströng! Slíðrið hneitay! Lýður drottin lofar; lýsir friði heilög englaþröng. Fyllast mildi og kœrleik hallir, koiar, kveða við af helgum jólasöng*. Rökkurálfum, römmum skýjatröllum rennur móður, hýrnar yglibrún. Skyndir10) gœgist upp af austurfjöllum, Ýmisdreyran) markar geislarún. Storminn lœgir; fatast boðaföllum; fer nú hœgur byrr um reyðartún. Dáð og vonir drengjum magnast öllum,— draga stjóra, vinda segl að hún. Fram hjá hœttum fley að sandi skríður; feginsómar heyrast úti’ Við lá; þar sem vinaþröng í fjöru bíður, þorna tekur hjúfurdöggX2) af brá. — Helgi nœtur hugum yfir líður; huliðsljómi stafar jörðu á. Jólin hefir blessað drottinn bliður: bjargráð hans til yztu vasta ná, e skýjagöng. 9) sverð. 10) þ. e. tungl. 11) þ. e. sjóinn. 12) þ. e. tár. 1) báruheiti. 2) menn. 3) sjór. 4) báruheiti. ,5) þ. e. vindahestum. 6) sjómenn. 7) þ. e. boöum. 8) ^þ. e.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.