Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2015, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2015, Blaðsíða 10
10 Fréttir Vikublað 15. desember 2015 Svindl meðal beStu Spilara heimS n Ásakanir um svindl skekja bridge-samfélagið n „Við héldum einfaldlega að þeir væru miklu betri en við,“ segir besti bridge-spilari landsins H vert hneykslismálið á fætur öðru hefur riðið yfir al- þjóðlega bridge-samfélag- ið undanfarin misseri. Tvö pör sem samanstanda af færustu spilurum heims eru grunuð um svindl, þriðja parið frá Þýska- landi steig fram og viðurkenndi sök sína nýverið. Í aðdraganda heimsmeistaramótsins, Bermúda- skálarinnar, sem fram fór í Indlandi nýlega, var síðan frægt pólskt par sett í bann af óútskýrðum orsökum. Um var að ræða pólsku spilarana Cezary Balicki og Adam Zmudzinski sem hafa lengi verið í allra fremstu röð bridge-spilara. Þeir voru meðal annars í pólska liðinu sem spilaði við Ísland til úrslita um heimsmeistara- titilinn árið 1991 þar sem íslenska liðið vann frækinn og eftirminni- legan sigur. Um er að ræða spilara sem hafa helgað sig íþróttinni og hafa hana að atvinnu sinni. Norsk hetja steig fram Málið komst á flug í byrjun ágúst þegar Norðmaðurinn Boye Broge- land, sem er í hópi bestu spilara heims, steig fram og birti yfirlýs- ingu þess efnis að hann og þrír með- spilarar hans hefðu ákveðið að skila sigur launum sínum í þremur sterku- stu mótum heims útaf svindli liðsfé- laga sinna. Um er að ræða Spingold- mótið í Las Vegas í Bandaríkjunum í júlí 2014, Reisingermótið í borginni Providence í Rhode Island-ríki í nóv- ember 2014 og loks Jac-by Swiss- mótið í New Orleans í mars á þessu ári. Á þessum mótum spila þrjú pör saman í liði og vildi Brogeland meina að hinir ísraelsku Lotan Fisher og Ron Schwartz hefðu haft rangt við án vitneskju liðsfélaga sinna. Hvert svindlið á fætur öðru Á bak við yfirlýsingu Brogeland og félaga lá mikil rannsóknarvinna fjöl- margra sjálfboðaliða á myndbönd- um frá Evrópumótinu 2014 þar sem meint svindlkerfi Ísraelanna uppgöt- vaðist. Í kjölfarið komu fram upplýs- ingar um ýmislegt sem benti til þess að tveir af sterkustu bridge-spilur- um heims, Ítalarnir Fulvio Fantoni og Claudio Nunes, sem nýlega hófu að spila fyrir Mónakó, hefðu einnig gerst sekir um kerfisbundið svindl. Fantoni og Nunes eru í tveimur efstu sætum stigalista alþjóðlega bridge- sambandsins og því er um að ræða mikið áfall fyrir íþróttina. Til að bæta gráu ofan á svart þá steig þýskt par sjálfviljugt fram, þeir Alex Smirnov og Josef Piekarek, og lýstu því yfir að það hefði gerst sekt um ósiðferðilega háttsemi í keppni. Uppnám á HM Afleiðingarnar voru þær að sterk landslið þessara þjóða, Ísrael, Mónakó og Þýskaland, ákváðu að draga þátttöku sína til baka á heimsmeistaramótinu í Indlandi í ár og í stað þeirra fengu aðrar þjóðir sætin. Rétt fyrir mótið var síðan til- kynnt um að annað heimsfrægt par, hinir pólsku Cezary Balicki og Adam Zmudzinski, hefðu verið sett- ir í tímabundið bann útaf grun um svindl. Pólverjarnir hafa verið á toppi bridge-íþróttarinnar í nokkra áratugi en meðal annars skipuðu þeir lands- lið Póllands sem spilaði til úrslita gegn Íslandi á heimsmeistaramótinu í Yokohama árið 1991. Þar unnu Ís- lendingar frækinn sigur og komu heim með Bermúdaskálina sjálfa, eins og frægt varð. Jón Baldursson í nefnd sérfræðinga Í liði Íslands var Jón Baldursson, sterkasti bridge-spilari Íslands fyrr og síðar, sem enn etur kappi á efstu stig- um hugaríþróttarinnar. Jón er sleginn yfir tíðindunum enda þekkir hann vel til þessara spilara sem eru sak- aðir um svindl og hefur spilað gegn öllum pörunum nema Ísraelunum. Einnig hefur hann verið í sveit með Norðmanninum Boye Brogeland sem vakti athygli á málinu. Jón nýtur mik- illar virðingar í bridge-heiminum en nýlega var hann skipaður í ellefu manna nefnd sérfræðinga á vegum evrópska bridge-sambandsins sem á að leggja mat á gögn varðandi mögu- leg svindlmál. Mega aldrei spila saman aftur „Eitt þýskt par hefur játað en hin þrjú liggja undir grun. Að því er ég best veit þá er frestur spilaranna til þess að svara ásökununum liðinn og ég hef ekki vitneskju um að nein svör hafi borist,“ segir Jón. Að hans sögn er lík- legt að pörin megi aldrei spila saman á nýjan leik ef þau verða fundin sek og einnig mun hver og einn spilari að öllum líkindum fái keppnisbann í einhvern tíma. Stutt er síðan hafist var handa við að taka myndband af helstu viðureignum í stærstu mótum heims en slík gögn voru lykilatriði í því að upp um meint svindl komst. „Það er næsta víst að í framtíðinni verða myndavélar á öllum stærstu mótunum sem mun vonandi koma í veg fyrir slíkt svindl,“ segir Jón. Íslenska landsliðið hlunnfarið Eins og áður hefur Jón oft spilað gegn flestum pörunum sem liggja undir grun, bæði fyrir Íslands hönd Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Jón Baldursson Hann segir að bestu bridge-spilarar heims þekkist afar vel enda taka stór mót iðulega um tvær vikur. Sam- veran og samskiptin eru því mikil og því sé um að ræða fullkomið trúnaðarbrot þegar í ljós kemur að svo margir af bestu spilurum heims hafi mögulega haft rangt við. Alex Smirnov og Josef Piekarek Stigu sjálfviljugir fram og viðurkenndu að þeir hefðu haft rangt við. Með hvaða hætti hefur ekki komið fram. Cezary Balicki og Adam Zmudzinski Hafa í áratugi verið í hópi sterkustu bridge- spilara heims og voru meðal annars í landsliði Póllands sem mætti Íslendingum á heimsmeistaramótinu í Yokahama 1991. Rafport ehf • Nýbýlavegur 14 • 200 Kópavogur • S: 554-4443 • rafport.is Fermax mynd- dyrasíma kerfi er bæði fáguð og flott vara á góðu verði sem hentar fyrir hvert heimili. Hægt að fá með eða án myndavélar og nokkur útlit til að velja um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.