Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2015, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2015, Blaðsíða 26
22 Menning Vikublað 15. desember 2015 Afneitun og annarleg tilfinning Auður Jónsdóttir rannsakar minnið og afneitunina í nýjustu skáldsögu sinni, Stóri skjálfti S tóri skjálfti, sjöunda stóra skáldsaga Auðar Jónsdóttur, hefur hlotið gríðarlega góðar viðtökur. Bókin er ofarlega á metsölulistum, hefur hlotið lof gagnrýnenda og er tilnefnd til Ís- lensku bókmenntaverðlaunanna. Bókin hefst á því að aðalpersónan Saga vaknar eftir stórt flog á Miklu- brautinni, þriggja ára sonur hennar er týndur og minnið í molum. Fljótt kemur í ljós að hún á í sérstökum erfiðleikum með að rifja upp slæm- ar minningar. Þar sem hún þarf að púsla saman minningabrotum til að skilja hvað hefur komið fyrir hana og hver hún er neyðist hún til að takast á við minningar sem hún hefur forðast og bælt í gegnum tíðina. DV hitti Auði á rithöfundakvöldi í Gunnarshúsi í nóvember og ræddi við hana um Stóra skjálfta, afneitun- ina, stjórnleysi og rithöfundarstarfið. Annarleg tilfinning Stóri skjálfti fjallar um flogaveiki og þá ruglingslegu upplifun að vakna upp úr flogi. Auður sjálf er floga- veik og segist meðvitað hafa reynt að miðla þessari upplifun til lesandans í gegnum stílinn. „Að vakna upp úr „grand mal“ flogi er svolítið eins og að endurfæð- ast. Maður veit ekki einu sinni hvað það er að „heita.“ Ég reyni að ná fram þessari tilfinningu, þar sem sumt er svo kunnuglegt en annað sem ætti að vera kunnuglegt er manni óra- fjarri. Maður er að reyna að stað- setja sig. Þetta er kannski svolítið eins og að vera í skrýtinni hassvímu eða eitthvað. Maður veit eitthvað en veit ekki hvernig maður getur orðað það. Í fyrsta kaflanum er Saga að reyna að muna hvernig hún segir „tveggja hæða strætó“ en segir „strætó ofan á strætó.“ Ég veit ekki hvernig það er að vera með Alzheimer en ímynda mér að það gæti verið svipað, þú þekkir Ingu frænku þína sem var að leika við þig 1939 en ekki barnabarnið þitt. Allt verður svo absúrd. Það er svolítið eins og að vera fljótandi í veruleikanum. Markmiðið var að ná fram þessari annarlegu tilfinningu,“ segir Auður. Göngum langt í afneitun „Það sem Saga á erfiðast með að muna eru slæmu minningarnar og fljótt vaknar spurningin hversu stór hluti ástands hennar sé líffræðilegur og hvað sé sálfræðilegt. Þegar öllu er á botninn hvolft erum við nefnilega öll með svo heppilega gloppótt minni. Þegar maður eldist áttar maður sig á því að maður man hluti sem maður hélt að maður myndi ekki. Þetta kemur svolítið inn á afneitunina, sem mér finnst mjög merkilegt fyrirbæri,“ segir Auður. „Fólkið í kjallaranum, Tryggðar- pantur og Vetrarsól snúast allar þrjá um mismunandi tegundir af afneitun. Minnið er uppfullt af stórum og litlum afneitunum og hentisemi um hvernig við viljum sjá hlutina. Ég fékk mjög reyndan sál- fræðing til að lesa bókina yfir og ég var alveg viss um að hún myndi segja: „Nei, þú getur ekki farið svona langt með þetta.“ En hún sagði bara „já, já, svona er þetta hjá fólki með áfallastreituröskun.“ Hugurinn er svo absúrd og við erum bara öll með okkar litla leikhús hvert í sínu horni,“ segir hún. Ótti og hverfulleiki Í bókinni stendur aðalpersónan frammi fyrir stöðugri ógn, floginu sem hún líkir bæði við árásarmann og jarðskjálfta. „Þessi bók er pæling um minnið en líka vangavelta um hverfulleika í lífinu, sem stendur kannski fólki með flogaveiki mjög nærri. En þetta er líka eitthvað sem maður upplifir sterkt þegar maður verður foreldri. Ég hafði ekki hugsað um flogaveikina í mörg ár og haldið henni niðri með lyfjum þangað til ég eignaðist son minn. Þá fylltist ég þessum ótta. Þetta er samt ekki bara bundið við floga- veiki, ég held að allir foreldrar upp- lifi þetta: „hvað ef ég fæ heilablóðfall einn heima með barnið? Hvað gerist ef ég keyri á með barnið í bílnum?““ segir Auður. Hún segir móðurhlutverkið hafa haft meiri áhrif á starf hennar sem rithöfundur. „Eftir að maður eignast barn líða fleiri ár milli bóka, maður vinnur færri stundir á dag og missir úr fleiri daga. Ég reyni alltaf að vinna heima, en þetta starf er svo karlmiðað – jafnvel orðið sjálft „rithöfundur“ stílar svo mikið inn á karl. Mér finnst reyndar stundum eins og það sé karl- hliðin í mér sem sé rithöfundurinn. Þess vegna var mjög gott að verða móðir og eignast svona kvenhlið líka.“ Þetta er svolítið skemmtileg and- stæða við það sem Ragnar Kjartans- son hefur talað um, að það þegar hann skapi list sé hann kona. „Já, við gætum bara farið á ball saman, rithöfundurinn og listagyðjan,“ segir Auður. Fékk hugljómun á verksmiðjutónleikum Hvernig vinnur þú? Það hvernig frá- sögninni vindur fram í þessari bók er svolítið óvenjulegt og virkar úthugs- að. Ertu búin að teikna upp atburða- rásina áður en þú byrjar að hamra á lyklaborðið? „Nei, ég leyfði þessari sögu að verða til í svolitlu flæði, að skrifa kafl- ana tvist og bast og finna svo strúkt- úrinn sem tengdi þá saman. Vegna þess hversu afslöppuð ég var þá leyfði ég til dæmis hlutum sem mig dreymdi að koma inn í söguna. Hún var unnin í svolitlu anarkíi. Meðan ég var að skrifa mætti ég svo á tón- leika með Víkingi Heiðari í gamalli verksmiðju í Berlín. Þetta var hjá ein- hverjum karli sem safnar flyglum og minnti mig á Roman Polanski. Það var alveg geggjað andrúmsloft og var mjög sérstakur tónleikastaður. Í miðju brjáluðu tónverki sá ég svo endinn fyrir mér. Það var kannski engin lógík í honum en ég hugsaði bara: svona er hann. Þannig að ef ég hefði ekki farið á þessa tónleika hefði endirinn kannski orðið allt öðruvísi,“ segir Auður. Skemmti sér ekki við skrifin Síðasta bókin þín, Ósjálfrátt, var byggð á þinni eigin ævi, en þessi er algjörlega skálduð saga. Er einhver munur fyrir þig tilfinningalega að skrifa skáldskap og sögu byggða á eig- in ævi? „Það var skemmtilegra að skrifa Ósjálfrátt. Það var svo mikið af skemmtilegum gamansögum sem ég rifjaði upp svo ég skemmti mér mikið. En það var ekkert sérstaklega gaman að skrifa þessa. Ég var ofsa- lega fegin þegar ég var búin,“ segir Auður og hlær. „En það var reyndar mjög mikill skáldskapur í Ósjálfrátt og í skáld- sögum leynist oft meiri sannleikur en sjálfsævisögulegu bókunum – þar getur maður leyft sér að segja hluti sem maður gerir ekki undir nafni. Þannig að skilin þarna á milli eru oft óljós,“ segir hún. n Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is „Mér finnst stundum eins og það sé karlhliðin í mér sem sé rithöfundurinn. Þess vegna var mjög gott að verða móðir og eignast svona kvenhlið líka. Karlhliðin skrifar bækurnar „Mér finnst stundum eins og það sé karlhliðin í mér sem sé rithöf- undurinn,“ segir Auður Jónsdóttir. Mynd SiGtryGGur Ari Í S L E N S K H Ö N N U N O G S M Í Ð I LAUGAVEGI 61 KRINGLUNNI SMÁRALIND

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.