Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2015, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2015, Blaðsíða 16
Vikublað 15. desember 20152 Jólatré - Kynningarblað Samverustund í Laugalandsskógi er ómissandi hluti af jólahaldinu Nýting á Kjarnaskógi nauðsynleg til að halda úti skíðabrautum og hafa starfsfólk í vinnu Einstök upplifun síðustu helgina fyrir jól Jólamarkaðurinn og jólaskógurinn U m næstu helgi munu margar fjölskyldur á Akureyri og úr nágrannasveitarfélögum gera sér ferð í Laugalands­ skóg á Þelamörk, höggva sér þar jólatré og njóta einstakrar sam­ verustundar fyrir jólin í stórkostlega fallegu umhverfi. Boðið verður upp á ketilkaffi, kakó og piparkökur, og varðeldur mun loga. Þessi hefð er ómissandi hluti af jólahaldinu hjá mörgum fjölskyldum á svæðinu. Opið verður í Laugalandsskógi milli klukkan 11 og 15 næstkom­ andi laugardag og sunnudag. Það er Skógræktarfélag Eyfirðinga sem stendur að jólatrés­ sölunni í Lauga­ landsskógi en félagið heldur einnig við úti­ vistarsvæði í Kjarna­ skógi og annast nýt­ ingu á skóginum. „Í nóvember för­ um við að höggva tré og seljum mikið af þeim til fyrirtækja. Við smíðum stór­ an kassa úr timbri úr Kjarnaskógi undir trén og þetta setur mikinn svip á bæjar myndina hérna á Akureyri,“ segir Ingólfur Jó­ hannsson, framkvæmdastjóri Skóg­ ræktarfélags Eyfirðinga. Nýting á Kjarnaskógi og sala á af­ urðum þaðan er mjög mikilvæg, sem og jólatréssala í Laugalandsskógi: „Þetta gerir okkur kleift að halda úti skíðabrautum í Kjarnaskógi og hafa gott starfsfólk í vinnu. Án þessarar tekjuleiðar væri þetta ekki hægt. Nýtingin á skóginum skiptir höfuðmáli,“ segir Ingólfur. Jólatrén sem höggvin eru í Laugalandsskógi kosta 7.000 krónur, óháð stærð. Fyrir hvert tré sem höggvið er eru 30 tré gróður­ sett. n S ú fallega og skemmti­ lega hefð hefur færst í vöxt undanfarin ár að fólk höggvi sín eigin jólatré hjá Skóg­ ræktarfélagi Reykjavíkur. Jólaskógurinn er að þessu sinni á Hólmsheiði. Þangað streymir fólk nú fyrir jólin og heggur sér jólatré, oft hjón með börn en stundum líka heilu stórfjölskyldurnar. Skógarhöggið nær hámarki um næstu helgi, síðustu helgina fyrir jól, en jólaskógurinn á Hólmsheiði verð­ ur þá opinn laugardag og sunnudag frá kl. 11 til 16. Fólk fær lánaða sög og eftir að fjölskyldan hefur fund­ ið tré og sameinast í að fella það og draga það aftur niður í dalinn er því pakkað inn í net. Heitt kakó er í boði og svo kíkir jóla- sveinninn í heimsókn. Jólatréin sem höggv­ in eru í skóginum eru á breiðu verðbili eftir stærð og tegund, frá 5.000 kr. upp í 13.000. Nákvæma verðskrá er að vinna vefs­ slóðinni heidmork.is/ jolaskogur/ Einstök tré Í skóginum er að finna alls konar tré. Hefðbundin grenitré, furu – og líka Einstök tré. Góðhjörtuðum gest­ um býðst þar að fella jólatrén sem enginn vildi. Einstöku jólatrén eru, rétt eins og mannfólkið, alls konar í laginu: Sum eru lítil og breið, önn­ ur sveigjast til hliðar eða eru jafnvel vaxin eins og litlir runnar. Þau eru falleg eins og hin trén en líta allt öðruvísi út. Einstöku trén hafa sterkan karakter – kannski eins og fjölskyldan sem hefur þau heima í stofu á aðfangadagskvöld. Fyrir hvert einasta tré sem er fellt í jólaskóginum eru gróðursett að minnsta kosti 30 tré. Fátt stuðlar því betur að aukinni skógrækt en að fella sitt eigið jólatré í jólaskóg­ inum. Jólamarkaðurinn við Elliðavatn Jólamarkaður Skógræktarfélagsins við Elliðavatn hefur átt sívaxandi vinsældum að fagna en hann er nú haldinn fimmta árið í röð. Á mark­ aðnum er hægt að kaupa jólatré og ýmsan annan jólavarning, auk þess að njóta veitinga og jólastemningar í stórkostlegu umhverfi. Uppákomur listamanna setja einnig sterkan svip á jólamarkaðinn. Markaðurinn verður opinn frá kl. 11 til 16 næsta laugardag og sunnudag. Á sunnudeginum les Lóa Hjálmtýs­ dóttir rithöfundur upp á kaffistof­ unni kl. 13 og barnastund verður í rjóðrinu kl. 14. Á sunnudaginn syngur Mótettukórinn á hlaðinu kl. 12, Kristín Svava rithöfundur les upp kl. 13 og Ævar vísindamaður verð­ ur með barnastund kl. 14. Tónlistar­ maðurinn Snorri Helgason leikur síðan og syngur fyrir gesti kl. 15. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.