Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2015, Qupperneq 16
Vikublað 15. desember 20152 Jólatré - Kynningarblað
Samverustund í Laugalandsskógi
er ómissandi hluti af jólahaldinu
Nýting á Kjarnaskógi nauðsynleg til að halda úti skíðabrautum og hafa starfsfólk í vinnu
Einstök upplifun
síðustu helgina fyrir jól
Jólamarkaðurinn og jólaskógurinn
U
m næstu helgi munu margar
fjölskyldur á Akureyri og úr
nágrannasveitarfélögum
gera sér ferð í Laugalands
skóg á Þelamörk, höggva sér
þar jólatré og njóta einstakrar sam
verustundar fyrir jólin í stórkostlega
fallegu umhverfi. Boðið verður upp
á ketilkaffi, kakó og piparkökur, og
varðeldur mun loga. Þessi hefð er
ómissandi hluti af jólahaldinu hjá
mörgum fjölskyldum á svæðinu.
Opið verður í Laugalandsskógi
milli klukkan 11 og 15 næstkom
andi laugardag og sunnudag. Það
er Skógræktarfélag Eyfirðinga sem
stendur að jólatrés
sölunni í Lauga
landsskógi en félagið
heldur einnig við úti
vistarsvæði í Kjarna
skógi og annast nýt
ingu á skóginum.
„Í nóvember för
um við að höggva tré
og seljum mikið af
þeim til fyrirtækja.
Við smíðum stór
an kassa úr timbri
úr Kjarnaskógi
undir trén og þetta
setur mikinn svip
á bæjar myndina
hérna á Akureyri,“
segir Ingólfur Jó
hannsson, framkvæmdastjóri Skóg
ræktarfélags Eyfirðinga.
Nýting á Kjarnaskógi og sala á af
urðum þaðan er mjög mikilvæg, sem
og jólatréssala í Laugalandsskógi:
„Þetta gerir okkur kleift að halda
úti skíðabrautum í Kjarnaskógi
og hafa gott starfsfólk í vinnu. Án
þessarar tekjuleiðar væri
þetta ekki hægt. Nýtingin á
skóginum skiptir höfuðmáli,“
segir Ingólfur.
Jólatrén sem höggvin eru í
Laugalandsskógi kosta 7.000
krónur, óháð stærð. Fyrir hvert tré
sem höggvið er eru 30 tré gróður
sett. n
S
ú fallega og skemmti
lega hefð hefur færst í vöxt
undanfarin ár að fólk höggvi
sín eigin jólatré hjá Skóg
ræktarfélagi Reykjavíkur.
Jólaskógurinn er að þessu sinni á
Hólmsheiði. Þangað streymir fólk
nú fyrir jólin og heggur sér jólatré,
oft hjón með börn en stundum líka
heilu stórfjölskyldurnar.
Skógarhöggið nær hámarki um
næstu helgi, síðustu helgina fyrir jól,
en jólaskógurinn á Hólmsheiði verð
ur þá opinn laugardag og sunnudag
frá kl. 11 til 16. Fólk fær lánaða sög
og eftir að fjölskyldan hefur fund
ið tré og sameinast í að
fella það og draga það
aftur niður í dalinn er
því pakkað inn í net.
Heitt kakó er í boði
og svo kíkir jóla-
sveinninn í heimsókn.
Jólatréin sem höggv
in eru í skóginum eru á
breiðu verðbili eftir stærð
og tegund, frá 5.000 kr.
upp í 13.000. Nákvæma
verðskrá er að vinna vefs
slóðinni heidmork.is/
jolaskogur/
Einstök tré
Í skóginum er að finna alls konar tré.
Hefðbundin grenitré, furu – og líka
Einstök tré. Góðhjörtuðum gest
um býðst þar að fella jólatrén sem
enginn vildi. Einstöku jólatrén eru,
rétt eins og mannfólkið, alls konar í
laginu: Sum eru lítil og breið, önn
ur sveigjast til hliðar eða eru jafnvel
vaxin eins og litlir runnar.
Þau eru falleg eins og hin trén
en líta allt öðruvísi út. Einstöku
trén hafa sterkan karakter – kannski
eins og fjölskyldan sem hefur þau
heima í stofu á aðfangadagskvöld.
Fyrir hvert einasta tré sem er fellt
í jólaskóginum eru gróðursett að
minnsta kosti 30 tré. Fátt stuðlar
því betur að aukinni skógrækt en
að fella sitt eigið jólatré í jólaskóg
inum.
Jólamarkaðurinn við Elliðavatn
Jólamarkaður Skógræktarfélagsins
við Elliðavatn hefur átt sívaxandi
vinsældum að fagna en hann er nú
haldinn fimmta árið í röð. Á mark
aðnum er hægt að kaupa jólatré og
ýmsan annan jólavarning, auk þess
að njóta veitinga og jólastemningar í
stórkostlegu umhverfi.
Uppákomur listamanna setja
einnig sterkan svip á jólamarkaðinn.
Markaðurinn verður opinn frá kl. 11
til 16 næsta laugardag og sunnudag.
Á sunnudeginum les Lóa Hjálmtýs
dóttir rithöfundur upp á kaffistof
unni kl. 13 og barnastund verður í
rjóðrinu kl. 14.
Á sunnudaginn syngur
Mótettukórinn á hlaðinu kl. 12,
Kristín Svava rithöfundur les upp
kl. 13 og Ævar vísindamaður verð
ur með barnastund kl. 14. Tónlistar
maðurinn Snorri Helgason leikur
síðan og syngur fyrir gesti kl. 15. n