Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2015, Blaðsíða 24
20 Menning Vikublað 15. desember 2015
Smáralind • Kringlunni • Reykjanesbæ • sími 511 2022 • www.dyrabaer.is
hundafóður
80% kjöt
20% jurtir,
grænmeti og ávextir
0% kornmeti
Arkitektarnir sem hristu
upp í listheiminum
n Ung-arkitektahópurinn Assemble hlaut Turner-verðlaunin, virtustu nútímalistaverðlaun Bretlands
Í
síðustu viku hlaut arkitekta
hópurinn Assemble frá London
hin virtu bresku samtímalistar
verðlaun Turnerverðlaunin.
Assemble er skipaður átján arki
tektum á aldrinum 26 til 29 ára, en
hópurinn hóf að vinna saman árið
2010. Verðlaunin, sem eru nefnd
eftir breska málaranum J.M.W.
Turner, hafa verið veitt undanfarin
30 ár breskum sjónlistamanni yngri
en fimmtugum. Þetta er í fyrsta
skipti sem sigurvegarinn er ekki
strangt til tekið „listamaður,“ og
meðlimir hópsins eru jafnframt þeir
yngstu sem hafa hlotið heiðurinn.
Verðlaunaféð er 25 þúsund pund,
eða tæpar fimm miljónir íslenskra
króna.
Grasrótarverkefni
Assemble hlaut verðlaunin fyr
ir grasrótarverkefni í hverfinu
Granby Four Streets í Liverpool.
Verkefnið fólst í að nýta arkitektúr
og hönnun til enduruppbyggingar
í hverfinu, sem er hluti af Toxteth
svæðinu sem hafði verið vanrækt
og yfirgefið í áraraðir, eða allt frá al
ræmdum óeirðum í hverfinu árið
1981. Bæjar yfirvöld hafa meðvitað
og vegna slæmra ákvarðana látið
hverfi grotna niður og nú búa aðeins
70 einstaklingar á þessu 200 íbúða
svæði. Íbúar í nágrenninu hafa hins
vegar barist gegn því að hverfið
verði jafnað við jörðu og hafa haldið
því hreinlegu og líflegu.
Assemblehópurinn hjálpaði
íbúum við að finna leiðir til að
endurgera hverfið, nýta yfirgefin
hús og tómar götur frekar en að rífa
niður og byrja með hvítt blað. Mark
miðið var að beita hönnun og arki
tektúr til að blása lífi í svæðið og gera
íbúum í Toxteth kleift að nýta rýmið
betur, bæði sem almenningsrými og
til atvinnutækifæra. „Við viljum nýta
sérkenni þessara yfirgefnu bygginga
þeim til framdráttar. Ef það vantar
gólf, af hverju ekki bara að hafa tvö
falda lofthæð? Við erum ekki bund
in af hinni hefðbundnu kröfu um að
hámarka fjárhagslegan gróða af fer
metranum, að hugsa fyrst um hagn
aðinn og síðan um fólk,“ segir Lewis
Jones, einn meðlimur hópsins.
Nú stefnir Assemble á að halda
áfram með verkefnið, búa til vinnu
stofu fyrir íbúa og vetrarskrúðgarð
inni í nakinni skel yfirgefins
húss. Dómararnir sögðu að hér
væri „grasrótarnálgun á endur
skipulagningu, borgarskipulag og
þróun í andstöðu við uppvæðingu
(e. gentrification) drifna áfram af
gróðasjónarmiðum,“ og þó arki
tektarnir kölluðu sig ekki listamenn
væru þeir undir áhrifum frá list og
hönnun jafnt sem arkitektúr.
„Er þetta list?“
Turnerverðlaunin hafa oft verið
framsækin í vali á verðlaunahöfum
og gengið langt í að velja lista
menn sem ögra hugmyndum fólks
um hvað list sé. Nú hafa einhverjir
hafa talað um dauða Turnerverð
launanna og þrátt fyrir að almennir
borgarar hafi oft velt fyrir sér mörk
um listarinnar þegar verðlaunin eru
tilnefnd eru það helst hlunnfarnir
listamennirnir sem spyrja sig núna
„getur þetta talist list?“
Meðlimir Assemble tala í raun
ekki um verk sín sem listaverk: „Það
skiptir okkur ekki máli hvernig við
erum skilgreind: þetta er bara fræði
leg umræða. Við höfum meiri áhuga
á að gera góð verkefni, og stund
um snýst það eingöngu um góðar
pípulagnir,“ segir Maria Lisogarska
ya, 28 ára meðlimur í hópnum í
samtali við The Guardian. Einhverj
ir sérfræðingar hafa talið að með
því að verðlauna verkefni sem er
sprottið úr grasrótinni og með fé
lagslegar áherslur sé dómnefndin –
og sérstaklega nýr formaður henn
ar, Alex Farquharson, safnstjóri Tate
Britain – að taka afstöðu gegn alvaldi
markaðarins í listheiminum. n
„Við viljum nýta
sérkenni þessara
yfirgefnu bygginga þeim
til framdráttar.
Lewis Jones
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Assemble Átján arkitektar á þrítugsaldri hristu óvart upp í listheiminum þegar þeir hlutu
virtustu nútímalistaverðlaun Bretlands.
Granby Four Streets Lystigarður í yfirgefnu húsi í hverfinu Granby Four Streets í Liverpool.
Heimur á barmi
heimsstyrjaldar
F
lugvél hernaðarstórveldis
er skotin niður eftir að hafa
rofið lofthelgi óvinveitts rík
is. Heimurinn rambar á barmi
styrjaldar og aðskilnaðarmúr er
byggður til að hafa hemil á flótta
mönnum. En markmiðið hér er reynd
ar að halda þeim inni, enda erum við
ekki stödd í hringiðu heimsmálanna í
dag heldur á hápunkti kalda stríðsins.
Margir kannast líklega við U2
atvikið, þar sem bandarísk njósnaflug
vél var skotin niður yfir Sovétríkjun
um, enda oft verið um fjallað og ein
hver hljómsveit nefndi sig í höfuðið á.
Minna þekkt er mál Rudy Abel, rúss
neska njósnarans sem var skipt á fyrir
flugmanni U2 Gary Powers. Það er
því vel til fundið að taka fyrir þessi
tvö mál sem tengjast mjög, og einnig
tekst að koma að byggingu Berlínar
múrsins og jafnvel gefa smá innsýn
í hlutskipti AusturÞjóðverja sem
óviljugra bandamanna Rússa.
Tom Hanks er eins og fæddur í
hlutverk tryggingalögfræðingsins sem
ver njósnarann, en Mark Rylance stel
ur senunni sem Abel. Framvindan er
frekar blátt áfram, Spielberg kann sitt
fag og heldur athygli án þess að vera
of mikið að sýnast. Við vitum jú hvern
ig fer og því kannski ofsögum sagt að
spennan sé í hámarki, en það kemur
ekki að sök þegar svo vel tekst að fanga
tíðarandann.
Það er myndinni og til hróss að þó
sjónarhóllinn sé bandarískur er sýnin
margvíðari, það er líka taugaveiklun í
Bandaríkjunum og maður fær að hafa
samúð með bæði AusturÞjóðverjum
og njósnaranum Abel, sem í höndum
minni leikstjóra hefði getað orðið
dæmigerður vondur karl. Myndin er
eins góð og búast má við af Spielberg
á þessu stigi málsins, en hvorki betri
né verri. n
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmyndir
Bridge of Spies
IMDb 8,0 RottenTomatoes 91% Metacritic 81
Leikstjóri: Steven Spielberg
Aðalhlutverk: Tom Hanks, Mark Rylance
og Amy Ryan
Handrit: Matt Charman, Joel og Ethan Coen
141 mínútur