Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2015, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2015, Síða 22
18 Lífsstíll Vikublað 15. desember 2015 Sími 568-5556 www.skeifan.is Eysteinn Sigurðsson Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000 eysteinn@skeifan.is / skeifan.is Magnús Hilmarsson Sölumaður / Sími: 896-6003 magnus@skeifan.is / skeifan.is Sigurður Hjaltested Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400 sigurdur@skeifan.is / skeifan.is Föst söluÞÓKNuN 1% með vsk.Vegna mikillar sölu vantar allar stærðir eigna á skrá Eysteinn Sigurðsson Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000 eystei n@skeifan.is / skeifan.is Magnús Hilmarsson Sölu aður / Sími: 896-6003 magnus@skeifan.is / skeifan.is Sigurður Hjaltested Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400 sigurdur@skeifan.is / skeifan.is Njóttu vetrarins í þessum borgum n 10 bestu borgirnar til að heimsækja yfir vetrarmánuðina n Færri ferðamenn n Ódýrari gisting Þ að er að sjálfsögðu ekki síðra að ferðast á vet- urna en sumrin og margar borgir eru einfaldlega fal- legri í vetrarskrúðanum en sumarlitunum. Að auki eru ferða- menn færri yfir vetrartímann og verð á hótelgistingu og í verslunum yfirleitt lægra en á háannatíma á sumrin. Sumir leita reyndar alltaf í sól og hita, en fyrir hina sem kunna að meta kaldara loftslag þá eru hér tíu borgir sem frábært er að heim- sækja á veturna. n  New York Borgin getur verið einstaklega falleg á veturna, sérstaklega í kringum jólin, þegar jólaljósin hafa verið sett upp. Ekki spillir fyrir ef snjóar. Það dempar öll hljóð og jólaljósin glitra eins og stjörnur. Mikið er lagt upp úr fallegum jólaskreytingum í stærstu búðargluggunum og að ganga Fifth Avenue er eins og að vera komin inn í jólaævintýraland.  Feneyjar Flestum dettur eflaust frekar í hug að heimsækja Feneyjar yfir sumartímann, en þær eru ekki síður fallegar á veturna. Það getur vissulega orðið svolítið svalt og rakt á þessum árstíma, en á móti kemur að ferðamenn eru færri og allt er ódýrara. Og Feneyjar eru alltaf jafn fallegar.  Berlín Höfuðborg Þýskalands breytist í allt aðra borg yfir vetrartímann og í kringum hátíðarnar er hún sérstaklega lífleg með alla sína úti- og jólamarkaði. Það getur reyndar orðið ansi kalt og því gott að hafa góða úlpu til að skella sér í.  Madríd Höfuðborg Spánar stendur hæst borga í Evrópu sem þýðir að veðrið er yfirleitt kalt og bjart yfir vetrartímann. Himinninn er oftast heiður og hægt er að sitja úti á kaffihúsum og njóta síðdegissólarinnar. Vert er að minnast á það að hótelgisting í Madríd er hagstæðust í janúar og þá eru útsölur líka í fullum gangi.  Nice Borgin er einstaklega notaleg á veturna, enda staðsett við Miðjarðarhafið. Það er vel hægt að sitja úti og borða á daginn þó það kólni nokkuð á kvöldin. En þá er tilvalið að kíkja inn á söfn, veitingastaði og bari og njóta lífsins innandyra.  Róm Það fer ekki mikið fyrir ferðamönnum í Róm yfir háveturinn þó vissulega sé alltaf einhver reytingur. Það er því frábært að fara á eigin vegum til Rómar í desember, janúar og febrúar og sjá borgina með augum innfæddra. Setjast á hverfiskaffihús þar sem ítalskir húsbændur sitja og spila þegar eiginkonur þeirra reka þá út af heimilinu yfir daginn.  Barcelona Það er eiginlega langbest að heimsækja Barcelona á veturna, nema þú sért þeim mun meiri sólar- og stranddýrkandi. Á sumrin er ekki þverfótað fyrir ferðamönnum í borginni og á vorin og haustin má vænta rigningar. Á veturna er hins vegar yfirleitt þurrt í veðri, heiður himinn og hitastigið fer sjaldan niður fyrir 5 gráður. Þá er mikið að gerast í menningarlífi borgarinnar yfir vetrar- mánuðina.  Vínarborg Þrátt fyrir að kalt sé í veðri í Vínarborg yfir vetrarmánuðina er borgin einstaklega falleg á þessum árstíma, sérstaklega þegar snjóar. Það má finna fjölmarga skemmtilega markaði í borginni og ef þér verður kalt er um að gera að hoppa inn á næsta kaffihús eða bar til ná í hlýju í kroppinn.  Amsterdam Í borginni er hægt að finna fjölmörg hugguleg kaffihús þar sem hægt er að skýla sér fyrir veðri og vindum, sitja við opinn arineld og drekka jólaglögg. Það getur nefnilega orðið ansi kalt í Amsterdam, sérstaklega þegar vindur blæs.  París Borgin er eiginlega borg ljósanna allt árið um kring, en í kringum jólin breytist hún borg ævintýraljósanna. Mikill metnaður er lagður í jólaskreytingar með tilheyrandi ljósum og birtu. Jólamarkaði má finna víða í borginni og jólatónlist ómar um strætin. Það er vel þess virði að heimsækja París rétt fyrir jólin til að upplifa einstaka stemningu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.