Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2015, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2015, Blaðsíða 8
Vikublað 5.–6. ágúst 20158 Fréttir Verið alltaf velkomin í Kolaportið! Opið laugardaga og sunnudaga kl. 11-17. Næg bílastæði við Kolaportið Það liggja allar leiðir til okkar – veldu þína! Kolaportið er umkringt af bílastæðahúsum. Vesturgata · Mjóstræti Fjöldi stæða 106 Ráðhúsið · Tjarnargata 11 Fjöldi stæða 130 Traðarkot · Hverfisgata 20 Fjöldi stæða 270 Kolaportið · Kalkofnsvegur 1 Fjöldi stæða 270 K V IK A Festust í miðri á Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði var kölluð út á þriðjudag vegna bíls sem var fastur úti í miðri Austdalsá en í bílnum voru tveir farþegar auk bílstjóra. Mikið vatn var í ánni og var því sveitin kölluð út með hæsta forgangi. Björgunar- menn brugðust skjótt við, fóru á staðinn, og náðu þeir öllum úr bílnum. Þremenningarn- ir voru fluttir með sjúkrabíl á sjúkrahús til skoðunar. Kalt en þurrt í júlí Júlímánuður var kaldur víð- ast hvar á landinu, sérstaklega á norðaustan og austanverðu landinu. Þetta kemur fram í bráðabirgðayfirliti Veðurstofu Ís- lands yfir tíðarfar í júlímánuði. Þar segir að hiti hafi verið nærri meðallagi Suðvestanlands og óvenjuþurrt hafi verið um landið norðvestanvert. Meðalhiti í Reykjavík var 11,4 stig og er það 0,8 stigum fyrir ofan meðallag áranna 1961 til 1990 en 0,9 stigum undir meðallagi síð- ustu tíu ára. Á Akureyri var meðal- hitinn 8,4 stig, 2,1 stigi undir með- allagi áranna 1961 til 1990 en 3,1 stigi undir meðallagi síðustu tíu ára. Þetta er kaldasti júlímánuður á Akureyri síðan 1993. Þá vakti athygli hversu þurrt var á norðvestanverðu landinu. Úrkoma í Stykkishólmi mæld- ist ekki nema 5,1 mm. Er það að- eins 12 prósent af meðallagi og hið minnsta í júlí síðan 1939, litlu meiri úrkoma mældist þó í júlí 1974. Í Reykjavík mældist úrkom- an 34,2 mm og er það um tveir þriðju hlutar meðalúrkomu. Á Akureyri var úrkoman í meðal- lagi, mældist 32,4 mm. Sólskins- stundir voru fleiri en í meðalári í Reykjavík. „Nota lyf og svelta sig“ a llt bendir til þess að átrösk- un hjá íþróttafólki sé stærra vandamál en hjá al- menningi,“ segir Hafrún Kristjáns dóttir, sálfræðing- ur og sviðsstjóri íþróttafræðisviðs við Háskólann í Reykjavík. Undanfarin misseri hefur Hafrún, ásamt nemendum sínum, rannsak- að átröskun meðal íþróttafólks á Ís- landi en efnið hefur lítið verið rann- sakað hér á landi. Bjagaðar matarvenjur „Íþróttamenn eru margir með bjag- aðar matarvenjur, en þá er ég að meina að þeir svelti sig, borði lítið, æli, noti lyf sem hjálpa þeim að brenna og annað. Þeir eru hins vegar ekki endilega með greiningu um að þeir séu með átröskun en þetta eru tilfelli þar sem fólk er rétt undir greiningarviðmiði.“ „Það hafa verið gerðar rannsóknir á Íslandi, sú fyrri var gerð á 200 fim- leikastelpum og í ljós kom að rúmlega 17 prósent þeirra voru með átröskun. Rúmlega helmingur þeirra taldi sig vera of feita en 90 prósent þeirra voru undir meðalþyngd. Þetta er ákveðinn skynjunarvandi,“ segir Hafrún. Hún segir að orsök vandans sé að einhverju leyti íþróttirnar sjálfar. „Íþróttin er að einhverju leyti orsök átröskunar. Fimleikar eru til dæm- is þannig að þú þarft að vera léttur til að geta gert æfingar, ert í þröng- um fötum og svo framvegis. Kröfur íþróttarinnar sjálfrar hafa því klár- lega eitthvað að segja.“ Niðurstöður komu á óvart Hafrún stóð ásamt nemanda sín- um að seinni rannsókninni sem gerð var hér á landi í tengslum við átröskun árið 2013. Þá var ákveðið að skoða fimleika-, ballett- og hand- boltastelpur og hvort þær ættu við átröskunarvanda á stríða. Lagður var staðlaður listi fyrir þátttakendur sem einnig er notað- ur á Landspítalanum við greiningu átröskunarsjúklinga. „Handboltinn var tekinn með sem samanburðarhópur því ég hélt að ekki væri mikið um átröskun í þeim hópi. Síðan lögðum við staðl- aða listann fyrir þátttakendur rann- sóknarinnar sem voru hátt í 100 talsins. Óhætt er að segja að niður- stöðurnar hafi komið okkur í opna skjöldu,“ segir Hafrún. Átröskunarsjúklingar í meðferð á Landspítalanum skora að jafnaði 3,13 stig en íslenskar háskólakonur sem ekki glíma við átröskun skora 1,64 stig. „Íslenskar íþróttakonur skoruðu hins vegar 2,56 stig og eru því nær mörkum átröskunarsjúk- linga en venjulegra háskólastúlkna.“ „Ég ákvað því að skoða hand- boltastelpurnar, sérstaklega eftir að niðurstöðurnar lágu fyrir, og sjá hvort ástæðan fyrir svo háu skori væri ekki vegna fimleika- og ball- ettstelpna. Svo var ekki heldur voru 77 prósent handboltakvenna sem skoruðu hærra en meðalskor ís- lenskra háskólakvenna.“ Afreksíþróttafólk misbjóði líkama sínum Hafrún segir að það geti verið hættu- legt fyrir líkamlegan þroska stúlkna að borða ekki nægilega vel þegar þær æfi mikið. „Erlendar rannsókn- ir hafa líka sýnt að allt að 66 prósent íþróttakvenna séu í tíðastoppi en það eru einungis 2–5 prósent venju- legra kvenna. Tíðastopp getur með- al annars orsakast af því að konur eru vannærðar.“ Aðspurð segir Hafrún að það geti skotið skökku við að afreksíþrótta- fólk sem jafnan er táknmynd hreyst- is geti glímt við átröskunarvanda. „Ég er mikill aðdáandi íþrótta og talsmaður þess að fólk stundi íþrótt- ir. Hins vegar er ég ekki viss um að afreksíþróttir séu alltaf hollar. Fólk misbýður oft líkama sínum og mik- il áhersla er lögð á þyngd, útlit og annað.“ Hafrún segir að til standi að halda áfram rannsóknum á átrösk- un íþróttafólks og í september næst- komandi mun fara af stað ný rann- sókn sem hún mun standa að ásamt sálfræðingum og geðlækni í átrösk- unarteymi Landspítalans, auk nem- enda í Háskóla Reykjavíkur. n n Hafrún Kristjánsdóttir rannsakar átraskanir meðal íþróttakvenna n segir afreksíþróttir ekki alltaf hollar Átröskun eftir fitumælingu „Ég byrjaði frekar ung að spá í matar- æðið og sjálfsmyndin frekar brotin þannig að þegar ég var komin upp í meistaraflokk og við fórum í fitumæl- ingu, og ég kom verr út en hinar, byrjaði átröskunin fyrir alvöru,“ segir kona á þrítugsaldri sem spilaði handbolta frá 12 til 23 ára aldurs. „Ég var með lotugræðgi, tók átköst og reyndi að lágmarka skaðann með uppköstum og óhóflegum æfingum. Fókusinn fór af því að bæta mig sem leikmann yfir í að lækka fituprósentuna. Það kaldhæðnislega var að geta mín í handbolta minnkaði þar sem ég var oft á tíðum orku- og einbeitingarlaus. Eftir á að hyggja finnst mér fitumæling ótrúlega kjánaleg mæling fyrir íþróttafólk. Hvers vegna var ekki mælt hve gott þol ég hafði eða hversu sterk ég var? Hverju á fitu- mæling að skila manni þegar það skiptir í raun engu máli hvort maður sé með 15 eða 25 prósent líkamsfitu svo lengi sem maður er heilbrigður, borðar nóg og æfir rétt til að ná árangri í íþróttinni?“ Birna Guðmundsdóttir birna@dv.is Hafrún Kristjánsdóttir Rannsakar átröskun meðal íþróttamanna ásamt nem- endum sínum. myNd siGtryGGur Ari „ Íþróttamenn eru margir með bjagaðar matarvenjur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.