Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2015, Blaðsíða 24
Vikublað 5.–6. ágúst 201524 Fólk
Hlaupaskór ársins
hjá Runners World
Saucony Triumph 12
Verð kr. 24.990,-
Þegar Sturla stal partíinu
n Innipúkinn haldinn í Reykjavík um verslunarmannahelgina n Stuð fram á nætur
T
ónlistarhátíðin Innipúk-
inn var haldin í Reykja-
vík um verslunarmanna-
helgina. Tónleikadagskrá
var á Gauknum og Húrra á
föstudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld. Sannarlega þétt og metn-
aðarfull í alla staði. Hápunktarnir
voru of margir til þess að hægt sé að
telja þá alla upp í örfáum dálksentí-
metrum. Það verður þó að minn-
ast á nokkur bönd sem stóðu upp úr
– rappararnir skagfirsku í Úlfur úlf-
ur eru að gera allt brjálað þessa dag-
ana, þeir stigu á svið á föstudeginum
með Agent Fresco sem lék undir af
einskærri snilld. Tónleikar með Gísla
Pálma eru alltaf mögnuð upplifun,
krafturinn var smitandi, bassinn
dýpri en djúpur og auðvitað reif
hann sig úr að ofan – það er regla.
Maus spiluðu frábært prógramm og
það gerði ekkert til þó að hér um bil
helmingur tónleikagesta hafi líklega
ekki verið fæddir þegar þeir voru upp
á sitt besta. Mammút fylltu Gaukinn
af fegurð á sunnudagskvöldinu. Tón-
listin þeirra er myrk og melódíurnar
fallegar. Þau eru svo svöl og þokkafull
á sviði að það getur vel verið að þarna
hafi verið sett einhvers konar met. Á
laugardagskvöldið urðu svo til miklir
töfrar á útisvæðinu þegar Sturla Atlas
og rappfélagar hans hreinlega stálu
partíinu. Þeir spiluðu tónlist, röppuðu
og sköpuðu stemningu sem hlýtur að
vera algjört einsdæmi á samkomu ut-
andyra á þessu kalda landi. Dansað
var uppi á borðum og um allt gras-
ið sem þakti götuna til klukkan fjögur
um nóttina. Innipúkinn einkenndist
af gleði, gæðatónlist og ofbeldisleysi.
Meira svona! n
Fjör úti á götu Tónlist,
gras og ljósaseríur en samt
aldrei of troðið!
Sturla Atlas rappar
undir beru lofti
Gatan var þakin grasi
og dansinn dunaði.
Ljóðskáld í bás Á
meðan dagsljóssins
naut ennþá við var
boðið upp á ljóðalestur
á útisvæðinu.
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Rappað Logi Pedr
o
rappar með Sturl
u
Atlas rétt áður en
hann tók sviðsdý
fu.
Maus Mausmenn voru glaðir og kátir og
nutu þess greinilega í botn að spila saman.
Alltaf í bjórnum!
Bergur Gunnarsson
bruggmeistari og
Velina Apostolova
blakdrottning.
Söngdívur taka sjálfu
Salka Sól og Glowie í Húsdýragarðinum
H
úsdýragarðurinn fagnaði
nýverið 25 ára afmæli sínu
og af því tilefni var boðið
til mikillar tónlistarveislu
í garðinum um verslunar-
mannahelgina. Á dagskrá voru
Amabadama, Jack Magnet, Dísa og
Glowie, sem einmitt á vinsælasta lag-
ið á landinu um þessar mundir, No
more. n ragga@dv.is
Smellt af Tvær yndislegar
söngkonur í sumarblíðunni.
Feðgin Salka Sól á
ekki langt að sækja
sjarmann. Þarna
er hún með pabba
sínum, Hjálmari
Hjálmarssyni leikara.
Góð mæting Ungir sem aldnir mættu til að njóta
tónlistar í Húsdýra- og fjölskyldugarðinum.
Fjölskyldustemning Þarna sést hin kornunga
söngkona Glowie með foreldrum sínum, en hún
hefur heldur betur slegið í gegn að undanförnu.
Birta og
Bjarni Hall
Þessi fallegu
feðgin voru
hress í Hús-
dýragarðinum.