Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2015, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2015, Blaðsíða 13
Vikublað 5.–6. ágúst 2015 Fréttir Erlent 13 úrval nýrra og nýlegra sendibíla 2011 Renault Trafic L1H1 - Stuttur. Ekinn aðeins 47 þús. km. - Þjónustubók - Einn eigandi - Aksturs- tölva - Armpúði - Fjarlægðarskynjarar - Fjarstýrð- ar samlæsingar - Geislaspilari - Litað gler - Líknar- belgir - Loftkæling - Rafdrifnar rúður - Rafdrifnir speglar - Útvarp - Vökvastýri - Þjófavörn. okkar verð: 2.390.000,- án vsk. (2.963.600,- með vsk.) bíllinn er á staðnum á frábæru verði! renaUlT TraFiC sTUTTUr Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.isEF LI R a lm an na te ng s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í sk h ön nu n Staðurinn - Ræktin Hringdu í síma 581 3730 Nánari upplýsingar á jsb.is Sumarkort 9.900 kr! Æfðu með okkur í sumar, frábærir tímar í opna kerfinu Varúð: Ekki fyrir lofthrædda Ljósmyndarar Reuters voru með ágætis jarðtengingu þegar þeir tóku þessar myndir, þótt efast megi um að myndefnin hafi verið það. Hér má sjá nokkra ofur- huga, sem virðast ekkert lofthræddir, leika listir sínar. Á vængjum ástarinnar Þetta ástfangna par er ekki í sjálfheldu, heldur er um að ræða klifurmanninn Zheng Feng, sem vildi taka sérstakar myndir af sér og nýbakaðri eiginkonu sinni í Zhejiang í Kína. Myndin er svo sannarlega sérstök og jafnvel stórkostleg. Í lausu lofti Blaðamaður á inniskóm stendur á glasgólfi Aiguille du Midi-fjallstindinum í Frönsku ölpunum. Hann stendur á útsýnispalli sem á að færa fólki þá upplifun að það gangi í lausu lofti. Bara brattur Þetta er nú heldur bratt og hættulegt, en þessi maður lét sig nú samt hafa það í Pontresina í Sviss. Hann virðist hvergi banginn og komst leiðar sinnar stórslysalaust. Hreingerning að hausti Það leggur ýmislegt á sig, verkafólkið sem sér um þrifin á Big Ben, einu frægasta minnismerki Lundúnaborgar. Hér má sjá fjögur að störfum við að fægja og þrífa úrverkið. Þetta er ekki vinna fyrir hvern sem er, það er á hreinu. Á flótta undan bólusetningum í ár Nágranni lét lögreglu vita hvar mæðgur voru niðurkomnar L ögreglan í Flórída í Bandaríkj- unum hefur handtekið Megan Everett, 23 ára móður, sem grunuð er um að hafa rænt dóttur sinni til að koma í veg fyrir að barnið yrði bólusett. Þær mæðg- ur hafa verið á flótta í tæpt ár. Telpan, sem er þriggja ára gömul, var hraust þegar lögreglumenn fundu hana. Það var Robert Baumann, barns- faðir Everett, sem tilkynnti mæðgurn- ar týndar. Þá hafði Everett ekki skilað sér með barnið til hans í umgengni, en þau voru með forræðissamkomu- lag. Þau höfðu átt í forræðisdeilu og deilt um það hvort bólusetja ætti telpuna. Faðir barnsins var því fylgj- andi en ekki Everett. Þegar farið var að leita að þeim mæðgum komu í ljós skilaboð sem Everett hafði skilið eftir þar sem hún ávarpaði kærasta sinn, Carlos Lesters, og útskýrði málin. „Ef ég leyfi þeim að taka hana, bólusetja og heilaþvo væri ég ekki að gera það sem er rétt. Ég get ekki látið dómara segja mér hvernig ég á að ala hana upp. Við munum sakna þín en ég varð að fara,“ sagði hún í bréfinu. Það var svo nágranni þeirra mæðgna sem sá að lögreglan var að leita að þeim þegar lýst var eftir þeim í sjónvarpsþættinum The Hunt with John Walsh. Hún lét lögregluna vita sem fann mæðgurnar fljótlega. Barnið er nú með föður sínum, en Ev- erett er í gæsluvarðhaldi. Hún má bú- ast við ákærum á borð við mannrán og fyrir að ógna lífi og heilsu barns. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.