Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2015, Qupperneq 15
Vikublað 5.–6. ágúst 2015 Umræða 15
Myndin Breytingar í borginni Enda þótt miklar og umdeildar breytingar standi fyrir dyrum á borgarlandslaginu við Miðbakkann í Reykjavík þá eru sumir hlutir á sínum
stað, eins og til að mynda biðröðin við Bæjarins bestu í Tryggvagötu. mynd sigtryggur ari
Mest lesið
1 Tvítugur íslenskur milljónamæringur
„Byrjaði allt á ryðgaðri
skúringamoppu“ Á
tveimur árum hefur
tvítugur íslenskur
athafnamaður byggt
upp ræstingafyrirtæki
í Noregi sem er með 25
starfsmenn á launaskrá og veltir um
140 milljónum króna á ári. „Byrjaði allt á
ryðgaðri skúringamoppu,“ segir Patrekur
Sólrúnarson, sem á sér þann draum að
opna útibú fyrirtækisins hérlendis.
Lesið: 47.096
2 „Ég stal 26 milljónum“
Þórunn Elva Sveinsdóttir
er konan sem stundaði
stórfelldan fjárdrátt á
Sauðárkróki. Hún sagði söguna
alla í helgarviðtali DV.
Lesið: 43.484
3 Gott en óþægilegt
að svona mál komi
upp í fjölmiðlum
Svanur Sigurbjörnsson, læknir á
Bráðamóttökunni, segir að atvik á borð
við það sem Hrafnkell Gauti Hákonarson
lenti í á bráðamóttöku Landspítalans í
Fossvogi sé bara birtingarmynd miklu
stærri vanda. Fjársvelt og undirmannað
heilbrigðiskerfi undir sífelldum þrýstingi
bjóði upp á mistök.
Lesið: 31.053
Aukin miðstýring og ráðherraræði
Á
Alþingi var undir þinglok-
in tekist á um frumvarp
um breytingar á lögum um
Stjórnarráð Íslands. Frum-
varpið var í nokkrum lið-
um og sætti harkalegri gagnrýni af
hálfu stjórnarandstöðu. Gagnrýnin
beindist einkum að aukinni miðstýr-
ingu og ráðherraræði sem m.a. birt-
ist í valdheimildum til ákvarðana um
skipulagsbreytingar í ráðuneytum og
undirstofnunum þess.
Á ráðherra alltaf að ráða?
Samkvæmt frumvarpinu sem nú er
orðið að lögum er gert ráð fyrir að
ráðherra verði heimilt að setja á fót
„sérstakar starfseiningar og ráðu-
neytisstofnanir“, starfræktar sem hluti
af ráðuneyti. Þetta á ráðherra að geta
gert án samþykktar Alþingis.
Þetta lagaákvæði er afar loðið og
teygjanlegt. Í umræðunni tók ég sem
dæmi að í tíð minni sem innanríkis-
ráðherra hefði ég sett fram tillögu um
að komið yrði á fót því sem ég kall-
aði happdrættisstofu til að hafa eftirlit
með vaxandi happdrættis- og spilavít-
isiðnaði í landinu sem nú veltir tugum
milljarða. Með happdrættisstofu vildi
ég efla eftirlit með þessari starfsemi
og gera það markvissara og sýnilegra.
Þessu mótmæltu þingmenn úr flest-
um flokkum og lögðu illu heilli stein í
götu þessa framfaramáls.
Nú má spyrja hvort eðillegt hefði
verið að ég hefði sem innanríkisráð-
herra haft valdheimild til að koma
happdrættistofu á laggirnar óháð vilja
þingsins. Ekki hefði verið um að ræða
íþyngjandi breytingu fyrir ríkissjóð
sem heitið getur þannig að breytingin
hefði fyrst og fremst snúið að skipulagi.
stuðningur alþingis alltaf
nauðsynlegur
Mitt svar er engu að síður á þá leið
að mér hefði borið skylda til þess
að fá samþykki Alþingis fyrir slíkri
breytingu einfaldlega vegna þess að
framkvæmdavaldið á að starfa í um-
boði og með aðhaldi Alþingis. Kemur
dagur eftir þennan dag og er ég ekki af
baki dottinn hvað þetta tiltekna mál-
efni varðar svo því sé til haga haldið.
En það breytir því ekki að þar sem
mér tókst ekki að sannfæra Alþingi
um ágæti tillagna minna áttu þær
ekki að ná fram að ganga – að sinni.
Fyrrgreint frumvarp um Stjórnarráð
Íslands veikir hins vegar þessi tengsl.
Vilja sjá sjálfir um siðferðið
Ein breyting með Stjórnarráðsfrum-
varpinu snertir aðhald um siðferði-
leg málefni. Í lögunum var áður að
finna ákvæði frá síðasta kjörtímabili
um aðkomu utanaðkomandi aðila til
að veita ráðgjöf og aðhald í stjórnkerf-
inu um sitthvað sem snýr að siðferði-
legum álitamálum. Þetta átti að vera
lifandi gerjunarstarf sem héldi okk-
ur öllum á tánum. Lagabreytingin nú
felur það í sér að svokölluð samhæf-
ingarnefnd um siðferðileg viðmið fyr-
ir stjórnsýsluna er lögð niður og for-
sætisráðuneytinu þess í stað fært vald
varðandi „túlkun siðareglna þegar
eftir því er leitað …“
setið við spegilinn
Þarna er gengið í þveröfuga átt við
það sem allar hrunskýrslurnar lögðu
til, því með lagabreytingunni nú er
beinlínis gert ráð fyrir að miðstýra
þessari vinnu í forsætisráðuneytinu
– það er að segja ef á annað borð er
eftir henni leitað! Með öðrum orðum,
sá sem á að sæta aðhaldinu verður
hinn sami og veitir það. Aðhald fólg-
ið í því að horfa á sjálfan sig í spegli er
ekki beinlínis sannfærandi! Þetta lét
stjórnarmeirihlutinn á Alþingi engu
að síður hafa sig í að samþykkja.
Hert á forstjóravaldi
Þá eru í þessum nýju lögum aukn-
ar valdheimildir til að flytja starfs-
menn á milli ráðuneyta og stofnana.
Fram höfðu komið ítarlegar greinar-
gerðir frá samtökum launafólks
gegn þessum breytingum og vildu
þau hafa þar inni mun traustari var-
nagla gegn hvers kyns valdbeitingu
gegn starfsfólki sem ætlast væri til að
hefði vistaskipti. Mín skoðun er sú
að vistaskipti þurfi engan veginn að
vera slæm og ákveðinn hreyfanleiki
jafnvel æskilegur. En alger forsenda
þessa er aðkoma stéttarfélaga til að
tryggja réttindi starfsfólksins. Er það
áhyggjuefni í mínum huga hve dregið
hefur úr styrk stéttarfélaganna innan
veggja Stjórnarráðs og undirstofnana
þess. Í staðinn hefur komið hin marg-
rómaða „mannauðsstjórnun“ sem er
eins konar feluheiti á forstjóravaldi.
starfsfólk Fiskistofu mótmælir
Ástæða þess að þetta frumvarp var
mjög í brennidepli í vetur og í vor var
sú að með frumvarpinu vildi ríkis-
stjórnin afla viðkomandi ráðherrum
lagaheimildar til að flytja stofnanir að
vild landshluta á milli. Sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra vildi flytja
Fiskistofu frá Hafnarfirði til Akureyrar,
en hafði fengið ákúrur Umboðsmanns
Alþingis sem gert hafði hann aftur-
reka. Stjórnarandstaðan hafði gagn-
rýnt ráðslag ráðherrans og lagst gegn
breytingu til rýmkunar valdheimilda
ráðherra. Eftir miklar umræður í þing-
sal varð niðurstaðan sú að málið var
tekið aftur til nefndar og gekkst vara-
formaður hennar, Brynjar Níelsson,
fyrir breytingu á frumvarpinu sem tví-
mælalaust var til góðs. Breytingin ger-
ir ráð fyrir því að ráðherra eigi ekki að
geta flutt stofnun að eigin geðþótta því
áður verði hann að hafa lagt fyrir Al-
þingi skýrslu þar sem færð eru rök fyr-
ir áformum um flutning. Með þessu er
ætlast til að fyrir liggi efnisleg úttekt og
að fram fari málefnaleg umræða um
hugsanlegan flutning stofnana áður
en til framkvæmdar komi.
andi laganna
Þetta er tvímælalaust til mikilla bóta.
Sá hængur er hins vegar á þessari
ráðagerð að lögin taka ekki gildi fyrr
en með haustinu. Það skýrir réttmæta
gagnrýni starfsmanna Fiskistofu. En
andi laganna svífur þegar yfir og hlýt-
ur sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra að horfa til þess. n
Ögmundur Jónasson
þingmaður Vinstri grænna
Kjallari