Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2015, Qupperneq 18
Vikublað 5.–6. ágúst 201518 Menning
Á
meðan sumir feðgar fara í
golf og veiði saman hittast
Pan og Óskar Thorarensen
og semja tilraunakennda
raftónlist í sameiningu
undir nafninu Stereo Hypnosis og
halda tónlistarhátíðina Extreme
Chill – Undir jökli. DV ræddi við
Pan um öfga-chill og fjölskyldufíl-
inginn í raftónlistarsenunni.
Ná vel saman
„Pabbi er einn af brautryðjendun-
um í íslenskri raftónlist. Hann var
í gjörningalistahópnum Inferno
5 sem gerði garðinn frægan hér
heima og erlendis á níunda ára-
tugnum. Ég kem eiginlega úr hip-
hop heiminum. Ég hef gefið út
fimm instrumental hip-hop plötur
undir nafninu Beatmakin Troopa,“
segir Pan.
Hann segir að þeir feðgar hafi
byrjað að vinna saman að tónlist
undir nafninu Stereo Hypnosis árið
2007. „Þá vorum við að taka ljós-
myndir og taka upp náttúruhljóð
í Flatey á Breiðafirði. Þetta byrj-
aði bara í svona „field recording“
– náttúruupptökum – og það var
aldrei pælingin að búa til hljóm-
sveit. Svo byrjuðum við að hittast
og spila ofan í þetta og þetta slysað-
ist áfram. Svo gáfum við út plötuna
Parallel Islands en grunnurinn að
henni er tekinn upp þarna í Flat-
ey. Það var gaman að gera þessa
plötu og gekk vel að vinna saman,
svo þegar okkur fór að bjóðast að
fara erlendis og spila héldum við
áfram.“
En hvernig er að vinna með
pabba sínum að tónlist? „Við
hnakkrífumst. Það getur verið erfitt
en líka æðislegt. Auðvitað vill hann
ráða, verandi eldri og með meiri
reynslu ... að hann heldur,“ segir
Pan og hlær.
Í aðdraganda nýjustu plötu Ster-
eo Hypnosis bættist við nýr með-
limur í bandið, Þorkell Atlason,
tónskáld og gítarleikari, en hann
kemur fram með þeim feðgum á
Extreme Chill um helgina. „Á tón-
leikum er hann á gítar, pabbi á
hljóðgervlum, ég á tölvu, sampler-
um, effektum og í hljóðpæling-
um. Svo erum við með forritaðar
trommur. Við köllum þetta lífræna
raftónlist. Við erum alltaf að reyna
að skera tölvurnar út og notum
þær mjög lítið. Þetta er mest keyrt
áfram af gömlum synthesizerum.
Við erum að reyna að fara svolítið
aftur í gamla skólann: Tangerine
Dream og svona.“
„Legend“ og brautryðjendur
Þeir feðgar vinna ekki aðeins
að tónlist saman, heldur hafa
einnig staðið fyrir tónlistarhátíð-
inni Extreme Chill – Undir jökli
ásamt kærustum sínum, Guð-
rúnu Lárusdóttur og Aðalheiði
Hreinsdóttur, undanfarin sex ár.
Hugmyndin að því að halda tónlist-
arhátíð undir Snæfellsjökli kvikn-
aði eftir vel heppnaða útgáfutón-
leika á Hellissandi fyrir plötuna
Hypnogogia árið 2009.
„Þetta byrjaði sem raftónlist-
arhátíð. En í dag myndi ég segja
að þætti væri bara eclectic-bland,
svona allt af öllu. En í grunninn
er þetta raftónlistarhátíð í bland
við vídeó og gjörninga. Í ár er dag-
skráin fjölbreyttari en hefur ver-
ið undanfarin ár. Þarna er allt frá
djass og klassík og alveg út í teknó
og dans og auðvitað ambient og
chill. Fyrsta árið var bara eitt erlent
„aðalatriði“ en núna eru þau orðin
þrjú eða fjögur,“ segir Pan.
„Þarna er til dæmis Sebastian
Studnitzky, einn flottasti djassar-
inn í Þýskalandi þessa dagana.
Hann er bæði trompet- og píanó-
leikari og var nýlega að vinna Echo
jazz-verðlaunin sem brassleikari
ársins í Þýskalandi. Hann spilaði
með Mezzoforte í tíu ár og var með-
limur Jazzanova í mörg ár Sebast-
ian rekur einnig labelið Contem-
plate og er útgefandi Samma Big
Band og ADHD. Biosphere er líka
risanafn – örugglega eitt stærsta
ambient-nafn í heiminum. Það er
Norðmaður sem hefur verið að frá
1990 og er algjör brautryðjandi í
tilraunakenndri raftónlist. Svo eru
þarna Mixmaster Morris (Ninja
Tune), sem er einn af þeim sem var
lengi með puttana í einni af flott-
ustu hátíðunum í Bretlandi, The
Big Chill, og hefur unnið með Ap-
hex Twin og mörgum öðrum – al-
gjört „legend“. Svo er náttúrlega
Hilmar Örn Hilmarsson og svo væri
lengi hægt að telja áfram.“
Fjölskyldufílingur
Frá upphafi hafa aðeins verið 400
miðar í boði á hátíðina. Pan segir
að til hafi staðið að stækka hátíðina
fyrir nokkrum árum en sem bet-
ur fer hafi verið ákveðið að halda
í nándina og „kósí“ stemninguna
sem ríkir á hátíðinni. Tónleikarn-
ir eru eins og áður haldnir í félags-
heimilinu Röst á Hellissandi en
einnig verður Frystiklefinn á Rifi
nýttur í fyrsta skipti undir tónleika
á laugardeginum.
„Það er svona fjölskyldufílingur
þarna. Fólk kynnist svo vel. Mað-
ur myndar miklu betri, góð og
traust, sambönd á svona minni há-
tíðum. Þetta er líka svolítil nörda-
samkoma, mikið talað um tónlist,
hljóðpælingar, græju- og stúdíótal:
hvernig á að gera hitt og þetta. Þetta
er svo mikið nördasamfélag hjá raf-
tónlistarmönnum,“ segir Pan.
„Stemningin er bara ótrúlega
falleg. Þetta er eins og að fara inn
í annan heim. Þegar maður keyr-
ir þarna upp eftir tekur maður eft-
ir náttúrunni og það er eins og allt
sé að tala við þig. Náttúran er svo
sterk og á í svo sérstöku sambandi
við tónlistina. Það er eitthvað öðru-
vísi við að hlusta á tónlist í þessu
umhverfi.“
Hljóðið upp á tíu
„Við viljum bara vera með gott and-
rúmsloft þótt það sé líka alltaf partí
í lokin. Við reynum að búa til góða
uppbyggingu á kvöldinu. Byrjum
í rólegri kantinum en svo þróast
þetta út í meiri takt. Svo endar þetta
í einhverri geðveiki. Það eru margir
sem halda að þetta séu bara ein-
hverjir DJ-ar, en þetta er langmest
lifandi raftónlist – það er bara einn
DJ í ár en fyrst og fremst tónlistar-
menn sem spila live,“ segir Pan.
Hann segir að það sé lífs-
nauðsynlegt í tilraunakenndri raf-
tónlist að vera með gott hljóð en
það verður Óli Ofur sem mun hafa
umsjón með því. „Hljóð og mynd
verða alveg upp á tíu. Við leggj-
um allt upp úr því að vera með gott
hljóð. Það er það sem peningarn-
ir fara í – að þetta sé það besta
sem sé að gerast í hljóði í heimin-
um í dag. Þetta er mjög mikilvægt í
þessari tegund tónlistar því það eru
svo viðkvæmar tíðnir, háar og lágar
og út um allt, svo þarf að passa
að hljóðið skjótist ekki út um alla
veggi.“ n
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Pan Thorarensen semur raftónlist og skipuleggur tónlistarhátíðina Extreme Chill á Hellissandi með pabba sínum„Við
köllum
þetta lífræna
raftónlist
Þau verða á
Extreme Chill
Ambátt, Biosphere, Brillantinus,
DJ Flugvél og Geimskip, DJ Myth,
EinarIndra, Futuregrapher, Hilmar Örn
Hilmarsson & Steindór Andersen, Jafet
Melge, Jóhann Eiríksson, Jónas Sen,
LaFontaine, Mike Hunt, Mixmaster Morr-
is, Muted, Orang Volante, Quadruplos,
Ruxpin, Skurken, Snooze Infinity,
Snorri Ásmundsson, Stereop Hypnosis,
Studnitzky, Tanya and Marlon og Tonik
Ensemble.
Fjölskyldufílingur
Pan og Óskar Thoraren-
sen standa að tónlist-
arhátíðinni Extreme
Chill – Undir jökli ásamt
kærustum sínum.
myNd siGTryGGur ari
Fjölskyldu-
Fílingur og
öFga-chill
Hverfisgata 105 • Sími 551 6688 Stórar stelpur
útsala
útsala