Morgunblaðið - 02.01.2017, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2017
Vesturhrauni 3, 210 Garðabæ | Sími 480 0000 | sala@aflvelar.is | aflvelar.is
OPIÐ mánudaga til föstudags 8:00-17:00
PUV3300M
Fjölplógur 3,3 mtr
Verð 937.000,- + vsk
PUV4000HD
Fjölplógur 4,0 mtr
Verð 1.427.000,- + vsk
PUV2800M
Fjölplógur 2,8 mtr
Verð 857.000,- + vsk
Snjótönn
skekkjanleg 3,0 mtr
Verð 290.000,- + vsk
Snjóskófla
með vængjum stærð
2,30 - 3,75 mtr
Verð 553.000,- + vsk
Sanddreifari 2,5 m3
Glussadrifinn salt/sand
dreifari
Sanddreifari 0,5 m3
Verð 225.000,- + vsk
PUV3300
Fjölplógur 3,3 mtr
Verð 742.000,- + vsk
Viðhaldsfríar
hurðir
Hentar mjög vel íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Heilar álmur og byggingar standa
yfirgefnar. Á svæðinu má finna
rakaskemmdir, myglu og óværu.
Þessar aðstæður eru vonandi ekki
á mörgum vinnustöðum, en í tilfelli
þess stærsta hér landi, er raunin
einmitt þessi. Ingólfur Þórisson,
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs
Landspítalans, tekur á móti blaða-
manni og ljósmyndara árla morguns
milli jóla og nýárs. Fara þarf víða yf-
ir, enda þekja byggingarnar samtals
um 150 þúsund fermetra.
„Hér á Hringbrautarlóðinni eru
það um níutíu þúsund fermetrar,
þrjátíu þúsund í Fossvogi, og svo
eru fjölmargar byggingar á víð og
dreif því til viðbótar,“ segir Ingólfur,
sem tekur á móti okkur ásamt Agli
T. Jóhannssyni, umsjónarmanni
Landspítala við Hringbraut.
Og strax við aðalinngang spít-
alans má finna tilefni heimsókn-
arinnar. Egill opnar þá dyr skrif-
stofu, til hægri inn af Kringlunni
svokölluðu.
„Það sést ósköp lítið, en hér hefur
raki komist inn í veggi. Þið finnið
lyktina,“ segir Egill.
Skrifstofan hefur nú verið rýmd,
en sömu sögu er að segja af Eir-
bergi, sem reist var á sjötta ára-
tugnum og hefur hýst hjúkr-
unarfræðideild HÍ. Húsið var rýmt á
síðasta ári og starfsemin flutt í Ár-
múla.
Spítalinn sveltur um viðhaldsfé
Árið 2013 tók verkfræðistofan
EFLA út viðhaldsþörf á ytri skel
bygginga Landspítalans. Að hennar
ráðleggingum var þá sett af stað
fimm ára áætlun. Vegna takmark-
aðra fjárveitinga hefur þó ekki gef-
ist færi til að sinna viðhaldinu eins
og vonir stóðu til.
„Við höfum fengið 300 milljónir
króna á ári, síðustu ár, í viðhald ytra
byrðis húsanna,“ segir Ingólfur en
bendir á að meira þurfi til.
Mikil uppsöfnuð viðhaldsþörf er
til staðar, mest í Fossvogi, á Hring-
braut og í Landakoti, og segir Ing-
ólfur að spítalinn hafi í raun verið
sveltur um viðhaldsfé.
Nýtt hús nánast ónothæft
Á nýliðnu ári var fjármagnið nýtt í
stórt verkefni við Landakotsspítala.
Húsnæði eldhúss og geðdeildar á
Hringbraut voru þá einnig lagfærð
að utanverðu.
„Við höfum sömuleiðis þurft að
ráðast í stórar aðgerðir í nýju húsi,
barna- og unglingageðdeildar, sem
er svolítið sérstakt,“ segir hann og
bætir við að húsið hafi einfaldlega
verið illa byggt.
Spítalinn leitast nú eftir því að fá
viðurkennda bótaskyldu verktaka
vegna þessa, en byggingin, sem er
átta ára gömul, er nánast ónothæf.
Ingólfur bendir á að þó fjármagn
geti verið til staðar, sé ekki endilega
rými til viðhalds. „Að mestu leyti er
húsnæðið okkar í notkun allan sólar-
hringinn, allan ársins hring. Þetta er
ekki eins og skrifstofuhúsnæði, þar
sem unnið er frá níu til fimm.“
Fengu milljarð í fjárlögum
Mat sjúkrahússins er að heildar-
fjárþörf fyrir viðhald sé nú um fimm
milljarðar króna, fyrir viðgerðir ut-
an- sem innanhúss. Í fjárlögum var
sérstaklega veittur einn milljarður
króna í viðhald á byggingum spít-
alans.
„Við stjórnendur Landspítala er-
um afar þakklát fjárlaganefnd og Al-
þingi fyrir þetta framlag, en vænt-
um þess að þessu átaki verði fylgt
eftir á komandi árum,“ segir Ing-
ólfur, enda hafi mikil þörf safnast
upp á síðustu árum.
Næst leiðir Egill okkur á aðra
deild, og inn í sjúkrastofu, þar sem
allt er á tjá og tundri. Er okkur tjáð
að vatnslögn hafi opnast í veggnum
aðeins tveimur dögum áður. Athygli
vekur að ysta lag veggjarins, múr-
inn, hefur á sínum tíma verið lagður
utan á spýtur, sem hvíla svo upp við
timburgrind.
„Ég held að svona myndu menn
ekki gera í dag,“ segir Egill og bætir
líka við að lagnirnar séu, eins og
byggingarnar sjálfar, farnar að gefa
sig.
Rakaskemmdir, mygla og óværa
Mjög alvarlegt ástand í sjúkrahúsbyggingum Landspítalans við Hringbraut og í Fossvogi
Heilar álmur standa yfirgefnar Þörf á langtum meiri fjárveitingum til viðhalds bygginganna
Morgunblaðið/Eggert
Tjón Vatnslögn opnaðist í vegg sjúkrastofunnar á milli jóla og nýárs.
Stoðir íslensks samfélags, stríð og
hryðjuverk erlendis og fjölmenning
voru meðal þess sem Guðni Th. Jó-
hannesson, forseti Íslands, tæpti á í
nýársávarpi sínu í gær.
Guðni sagði meðal annars að
styrkur þjóðfélags yrði ekki metinn
eftir hagvexti, þjóðarframleiðslu,
vígbúnaði eða mannfjölda.
„Raunverulegur styrkur þess
felst í því hversu vel er hlúð að
sjúkum og öðrum sem þurfa á að-
stoð að halda, fólki sem býr við fötl-
un eða þroskaskerðingu,“ sagði
hann.
Ísland mætti vel við una í saman-
burði við mörg önnur ríki en ætíð
mætti gera betur.
Ísland geti lagt hönd á plóg
„Okkar auður byggist ekki aðeins
á friðsæld, sem verður reyndar
ekki metin til fjár. Nei, hann veltur
ekki síst á því að geta stundað
frjáls viðskipti við önnur ríki, að
mega ferðast og menntast víða, búa
erlendis og koma heim, bjóða öðr-
um að koma hingað og auðga okkar
samfélag,“ sagði Guðni. Sagði hann
einnig að samfélag Íslendinga hefði
lengi verið einsleitt.
„Á þetta minntist ég í innsetning-
arræðu minni í ágúst síðastliðnum,
að ekki væri svo langt síðan nær
allir Íslendingar voru í þjóðkirkj-
unni og öðrum kristnum trúfélög-
um, hvítir á hörund, áttu íslensku
að móðurmáli og báru auðsýnilega
íslenskt nafn. Þetta er liðin tíð sem
kemur ekki á ný,“ sagði hann.
Framfarir nútímans byggðust á
fjölbreytni; flæði hugmynda og
fólks um víða veröld.
Guðni sagði að sem herlaus þjóð
gætu Íslendingar lagt sitt af mörk-
um í baráttu við stríð og verk öfga-
og haturshreyfinga með því að taka
vel á móti flóttamönnum og nefndi í
því samhengi fjörutíu flóttamenn
sem koma hingað til lands frá Sýr-
landi á þessu ári.
Styrkur þjóðfélags ekki
metinn eftir hagvexti
Skjáskot/RÚV
Ávarp Fyrsta nýársávarp Guðna.
Þegar aðeins þrjár mínútur voru
liðnar af 2017 fæddist fyrsta barn
ársins á Íslandi. „Hann er rosalega
fínn,“ segir Katrín Guðjónsdóttir
um nýfæddan son sinn þeirra Egidi-
jus Jankausas. Drenginn ól hún á
sjúkrahúsinu á Selfossi, en foreldr-
arnir búa þar í bæ. Fyrir eiga þau
10 ára stúlku og 7 ára dreng.
Nýársdrengurinn, sem heilsast
vel rétt eins og móðurinni, vó við
fæðingu 13 merkur og er 51,5 cm á
lengd. sbs@mbl.is
Nýársbarn á Selfossi
Foreldrar Katrín og Egidijus með soninn.