Morgunblaðið - 02.01.2017, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2017
Íris Mist Magnúsdóttir fimleikadrottning á 30 ára afmæli í dag. Húnvarð tvisvar sinnum Evrópumeistari í hópfimleikum með félögumsínum úr Gerplu, hefur verið kosin fimleikakona ársins oftar en
einu sinni og var í þriðja sæti í vali á íþróttamanni ársins árið 2010.
Sérgrein Írisar Mistar var trampólínið og er hún núna að þjálfa
stökkgreinarnar hjá meistaraflokki og 2. flokki í Gerplu. Alls eru 35
manns í meistaraflokki og 15 í 2. flokki. Íris Mist er einnig fræðslu-
stjóri hjá Fimleikasambandi Íslands og klárar sálfræðinám við Háskól-
ann í Reykjavík í vor.
Vinsældir fimleika jukust mikið í kjölfar sigra Gerplu á EM í hópfim-
leikunum og eru fimleikar núna ein vinsælasta íþróttin í dag. „Það er
líka búið að byggja svo mörg fimleikahús á landinu og við það jukust
vinsældirnar enn meira, ég held að það séu um 300 manns á biðlista í
flestum félögum til að fá að æfa. Verkefni mitt hjá Fimleikasamband-
inu er því að mennta unga þjálfara og auka fræðslu til að hægt sé að
sinna þessum fjölda.
Nú er ég ekkert að æfa stöðugt, fer bara í tabata hjá Birki Vagni í
World Class sem er víst eitt það vinsælasta í dag og eru biðraðir til að
komast þar að. Svo hef ég áhuga á öllum íþróttum og byrja m.a. á golf-
námskeiði núna í janúar.“
Íris Mist ætlar að sjálfsögðu að halda upp á daginn með afmælis-
veislu, en ætlar að gefa vinum og vandamönnum tíma til að jafna sig
eftir áramótin. Afmælið verður því ekki alveg strax.
Foreldrar Írisar Mistar eru Anna Rakel Sigurðardóttir sem vinnur
hjá Nýherja og Magnús Örn Tómasson sem vinnur hjá Marás vélar
ehf..
Morgunblaðið/Kristinn
Gólfæfingar Íris Mist er hætt að æfa en hefur snúið sér að þjálfun.
Fimleikar orðnir ein
vinsælasta íþróttin
Íris Mist Magnúsdóttir er þrítug í dag
J
ón Gnarr fæddist í Reykja-
vík 2.1. 1967 og ólst þar
upp í Fossvoginum. Hann
stundaði nám við Héraðs-
skólann á Núpi við Dýra-
fjörð, lauk þaðan grunnskólaprófi,
sótti síðan hina ýmsu framhalds-
skóla, s.s. Flensborgarskóla í Hafn-
arfirði, Fjölbrautaskólann í Ármúla,
Fjölbrautaskólann í Breiðholti og
MH, var mikill pönkari á unglingsár-
unum og gekk undir heitinu Jónsi
Pönk.
Jón sinnti ýmsum sumarstörfum á
unglingsárum, starfaði á Kópavogs-
hæli 1985-88, var næturvaktmaður á
Kleppi en flutti til Svíþjóðar 1990.
Þar starfaði hann m.a. hjá bílafram-
leiðandanum Volvo við að ganga frá
hurðum fyrir Volvo 240.
Jón var leigubifreiðastjóri hjá
Bæjarleiðum á bíl númer 198 frá
1992, kynntist þar hinum ýmsum
hliðum borgarlífsins, fjöldanum öll-
um af skrautlegum persónum og öll-
um hverfum og götum höfuðborg-
arinnar.
Grínferill Jóns hófst árið 1994 á
því að félagi hans, Sigurjón Kjart-
ansson, fékk hann til að skrifa og
leika í grínsketsum í þættinum
Heimsenda á Rás 2. Samstarf þeirra
vakti fljótlega athygli og fyrr en
varði voru þeir komnir í flokk
fremstu grínista þjóðarinnar. Árið
1995 varð tvíeykið alræmt í sjón-
varpi og útvarpi, náði að hneyksla
fjölda fólks og útvarpsráð hélt sér-
stakan fund um grín þeirra félaga.
Undir merkjum Tvíhöfða sáu þeir
um daglega morgunþætti á hinum
ýmsu útvarpsstöðvum á árunum
1997-2002, en Tvíhöfði hefur alls gef-
ið út fimm geislaplötur sem verða
verðmætari með hverju árinu.
Jón Gnarr, leikari og fyrrv. borgarstjóri – 50 ára
„Afinn“ frumsýnd Frá vinstri: Jóhanna Jóhannsdóttir (Jóga) Jón Gnarr yngri, Jón Gnarr og Kamilla María Gnarr.
Frumlegur og óborg-
anlegur borgarstjóri
Hljómsveitin Mogo Jacket Frá vinstri: Þorsteinn Guðmundsson, Sigurjón
Kjartansson, afmælisbarnið og Benedikt Erlingsson, frændi Jóns Gnarr.
Akureyri Emma Kar-
en Kolbeins er fædd
14. febrúar 2016 kl.
10.17 á Sjúkrahúsinu á
Akureyri. Hún vó
3.268 g og var 52 cm
löng. Foreldrar hennar
eru Eydís Stefanía
Kristjánsdóttir og
Pétur Ingi Kolbeins.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isHólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
SKÚTAN
AF ÖLLUM STÆRÐUM, HVORT SEM ER Í VEISLUSAL
OKKAR, Í AÐRA SALI EÐA Í HEIMAHÚSI
Veitingar af öllum
stærðum, hvort sem er í
veislusal okkar, í aðra sali
eða í heimahúsi.
Nánar á veislulist.is
Erfidrykkja
Veislusalur okkar er bjartur og fallegur salur
á jarðhæð, gott aðgengi.
Öll þjónusta, kaffi og gos eru innifalin
í verði þegar erfidrykkja er í sal.