Morgunblaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 30
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Seint í sumar var tilkynnt að Hólm- fríður Matthíasdóttir myndi setjast í útgefandastólinn hjá Forlaginu, og taka við starfinu af Jóhanni Páli Valdimarssyni. Í janúarbyrjun stíg- ur Jóhann til hliðar og tekur að sér ráðgjafarstörf fyrir bókaútgáfuna, og er forvitnilegt að heyra hvaða stefnu Hólmfríður hyggst taka. Fyrst af öllu verður hún þó að taka stefnuna út á flugvöll og aftur til Ís- lands, en Hólmfríður hefur verið búsett í Barselóna síðan snemma á níunda áratugnum. Þar notar hún gælunafnið Úa, enda auðveldara nafn fyrir Spánverjana að bera fram og skrifa. Með annan fótinn á Íslandi frá 2006 „Ég fór til Spánar strax eftir stúdentspróf. Mig langaði að dvelja hér einn vetur og nota tímann til að ákveða hvað ég ætti að læra í há- skóla. Nokkrir valkostir komu til greina og ég vildi mennta mig í ein- hverju sem tengdist tungumálum og bókmenntum. En síðan leið mér svo vel í Barselóna að ég varð hér eftir.“ Hólmfríður hefur þó haft annan fótinn á Íslandi undanfarin ár. Árið 2006 réði hún sig til Eddu og ári síðar tók hún svo við af Páli Vals- syni sem útgáfustjóri Máls og menningar. Forlagið varð síðan til árið 2008 við samruna Máls og menningar og JPV, og kom það í hlut Hólmfríðar að stýra rétt- indastofu fyrirtækisins og markaðs- setja íslenska rithöfunda erlendis. Hefur Hólmfríður sinnt því starfi að stórum hluta frá Spáni en segir að nú geti hún ekki lengur komist hjá því að verja mestum hluta ársins á Íslandi. Bókhneigð fjölskylda „Þó að maðurinn minn styðji mig í einu og öllu er hann ekki tilbúinn að vera á Íslandi allra hörðustu vetrarmánuðina. Við verðum því með heimili á báðum stöðum og hugsa ég að um átta mánuði ársins verði ég á Íslandi en fjóra á Spáni,“ segir Hólmfríður, en eiginmaðurinn stuðningsríki heitir Jaime Rovira og kynntust þau árið 1986. Saman eiga þau fjögur uppkomin börn, þar af tvo syni sem Jaime átti af fyrra sambandi. Jaime er blaðamaður að mennt en fæst í dag við bókaskrif. Raunar er bókabakterían sterk í fjölskyldunni og tvö barnanna starfa í útgáfugeiranum. Lengst af vann Hólmfríður hjá forlaginu RBA Libros og hélt þar einkum utan um útgáfu erlendra skáldsaga sem þýddar voru á spænsku og katal- ónsku. Hólmfríður er alls ekki óhress með að nýja starfið kalli á að verja meiri tíma á Íslandi. „Meðan ég vann hjá spænska forlaginu fékk ég alla jafna ekki meira en þriggja eða fjögurra vikna sumarfrí og fannst það gefa mér allt of stuttan tíma til að heimsækja Ísland. Á vissum árs- tímum fékk ég ákafa heimþrá til Ís- lands og hefur þótt það gott síðustu 10 árin að hafa unnið fyrir íslensk bókaforlög og getað verið meira á Íslandi.“ Harðari slagur um titlana Kannski kemur það lesendum á óvart að heyra að þótt Spánn sé um 150 sinnum fjölmennara land en Ís- land er bókamarkaðurinn í lönd- unum tveimur líkur á margan hátt. Hólmfríður segir einn helsta mun- inn að mun meiri samkeppni sé í spænsku bókaútgáfunni enda fleiri forlög sem berjist um áhugaverð- ustu höfundana. „Þetta umhverfi kallaði á að vera fljótur að taka ákvarðanir enda oft fleiri en einn og fleiri en tveir sem vildu gefa út sömu bókina. Ég man t.d. eftir því að skömmu áður en ég fór að vinna hjá Eddu árið 2006 eygði ég mögu- leika á að tryggja RBA Libros rétt- inn á að gefa út verk Halldórs Lax- ness á spænsku. Við vorum nokkur forlögin sem kepptum um Sjálfstætt fólk og var það mjög mikil spæling að við urðum ekki hlutskörpust.“ Að sögn Hólmfríðar er rithöf- unda- og útgefendasamfélagið á Spáni ekki svo mikið stærra en það íslenska. „Og bækur flestra höfunda eru ekki prentaðar í mikið stærra Bókaormurinn frá Barselóna Hreinskilni Hólmfríður er svo sannarlega á réttri hillu í lífinu og þykir yndislegt að lesa bækur allan daginn. Útgefandastarfið er þó ekki eintóm sæla. „Eins og þetta starf getur verið gefandi og skemmtilegt er hræðilega leiðinlegt að þurfa að afþakka handrit sem höfundur hefur lagt sig allan fram við að skrifa.“ » Það er í íslensk-unni og í íslensku bókmenntunum sem við geymum okkar sérkenni og menn- ingu. Ef við töpum þessu þá verðum við einkennalaus þjóð Hólmfríður Matthíasdóttir festi rætur á Spáni en er núna flutt (að mestu) til Íslands til að stýra Forlaginu  Reynist margt svipað við íslenska og spænska bókamarkaðinn og eru íslensku höfundarnir á heimsmælikvarða 30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2017 Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN Enn snjallara heyrnartæki Beltone Legend Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu. Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum. ™ Ókeypis heyrnarmælingsíðan 2004 » Nýju ári var fagnaðá hefðbundinn hátt víða um heim. Fólk þyrptist út á götur og torg og taldi niður síð- ustu sekúndur líðandi árs, gjarnan við undir- spil flugelda. Aðrir fengu sér sundsprett en hvort sem fólk var inni eða úti í kulda eða hita átti það gleðina um ánægjulegt nýtt ár sameiginlega. Nýju ári fagnað á hefðbundinn hátt Slóvenía Glæsileg flugeldasýning var í Ljúbljana. Brasilía Fáklæddir nutu tímamótanna í Rio de Janeiro.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.