Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Blaðsíða 2
Hvað er að frétta?
Allt það létta, takk fyrir að spyrja. Mér finnst ótrúlega gaman að
vera tónlistarmaður í desember, alls konar mismunandi verk-
efni sem maður tekur að sér. En á móti kemur þá sakna ég þess
að eiga gæðastund með fjölskyldunni svo það verður kærkomið
að gera eitthvað skemmtilegt með henni núna rétt fyrir jólin
og um hátíðirnar.
Tónleikar í Austurbæ rétt fyrir jólin – hefð sem
er komin til að vera?
Það lítur allt út fyrir það. Þetta byrjaði í raun allt saman í
Bæjarbíó í Hafnarfirði í desember árið 2011. Við Frikki spil-
uðum þar saman tvö ár í röð. Svo sveik Frikki mig eitt árið og
fór til Flórída og ég var plataður til að vera með tónleika í Aust-
urbæ ásamt hljómsveit. Ég var tregur til því ég hélt að enginn
myndi mæta en annað kom á daginn og ég hélt tvenna tónleika
þar árið 2013. Síðan þá hefur þetta verið árlega í Austurbænum og
í fyrra bættust við tónleikar okkar bræðra. Í ár kem ég þrisvar
fram með hljómsveitinni minni og fjórum sinnum með Frikka svo
maður getur ekki verið annað en þakklátur fyrir það hversu marg-
ir koma og skemmta sér.
Hver er eftirlætisjólahefðin þín almennt?
Síðustu þrjú ár hef ég farið ásamt Hafdísi Björk, unnustunni minni,
á Bubba í Hörpu á Þorlák. Okkur finnst ótrúlega notalegt að rölta
með börnunum niðri í bæ, setja þau svo í ömmudekur og eiga síðan
stund tvö saman svo skömmu fyrir jólin. Þannig að eftir að ég eign-
aðist mína eigin fjölskyldu er þetta eftirlætisjólahefðin mín.
Þú ert að vinna að nýrri plötu?
Ég í raun og veru setti þetta með nýju plötuna í auglýsingatextann
fyrir tónleikana til að setja pressu á sjálfan mig. Það eru tvö ár síð-
an ég gaf út plötu svo í mínum huga er kominn tími á að senda frá
sér nýja enda hafa nokkur lög fæðst síðan. Í millitíðinni fékk ég líka
blásturhljóðfæraleikara í bandið og hefur það haft áhrif á lagasmíð-
arnar. En annars er platan á algjöru grunnstigi og margt sem á eftir
að útfæra, betrumbæta eða jafnvel henda. En það er fínasta ára-
mótaheit að ætla sér að gefa út plötu á nýju ári. Eins verður að koma
í ljós á hvaða formi hún verður á þessari öld stafrænu tækninnar.
Hvernig líst þér svo á árið 2017?
Ég er alltaf fullur bjartsýni á áramótum. Það er nú þegar
staðfest að árið verður eftirminnilegt vegna þess að við Hafdís
Björk ætlum að ganga í það heilaga og fagna með vinum og vanda-
mönnum. Þótt það rigni eldi og brennisteini þann dag þá mun ég
samt svífa á bleiku skýi. Eins þá held ég að ég verði enn staðráðnari
í því að gera bara hluti sem veita mér hamingju og ætla því að vera
duglegur að vera með þeim sem standa mér næst, duglegur að búa
til tónlist og duglegur að spila fótbolta. Það er gott að setja sér
markmið en mestu skiptir auðvitað að njóta hvers dags.
Morgunblaðið/Eggert
JÓN JÓNSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í það heilaga
2017
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.12. 2016
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét
Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Nicole Leigh Mosty hefur tekið sæti á Alþingi og í jómfrúrræðu sinnigerði hún mikilvægi innflytjenda fyrir þjóðfélagið að umtalsefni.Hún benti á að alltof algengt er hér á landi að fólk sem er af erlendu
bergi brotið fái ekki störf sem hæfi menntun þess og reynslu.
Þetta er góð áminning hjá Nicole. Það er nauðsynlegt að nýta krafta allra í
þjóðfélaginu til fulls, sérstaklega í svona litlu landi. Við þurfum einfaldlega á
öllum að halda, ekki bara sumum.
Í ræðunni minntist hún líka á þörfina hér á landi fyrir erlent vinnuafl. Það
er undarleg þversögn að hér á landi skuli vera jafn ströng löggjöf um útlend-
inga og raun ber vitni á sama tíma og vinnuafl er flutt inn í stórum stíl. Hvers
vegna er ekki gert meira af því að bjóða fólk velkomið sem hér vill eiga
heima? Það er ekki eins og hér skorti pláss eða aðstöðu. Hér er nóg af öllu –
nema kannski fólki. Samt sendum við fólk unnvörpum úr landi, sem ekkert
vill frekar en að fá tækifæri til að
fóta sig í þessu litla samfélagi.
Krafta fólks þarf að nýta og það
skiptir máli fyrir samfélagið að allir
fái sömu tækifæri til að blómstra.
Það er ólýsanlega sorglegt að
staðan skuli enn vera þannig að fólk
sem ber erlend nöfn standi verr að
vígi á vinnumarkaði. En um slíkt eru
því miður dæmi. Fólk sem hefur iðn-
menntun eða háskólamenntun að
baki fær enga vinnu þar menntunin
nýtist heldur koðnar niður í störfum
sem það finnur sig ekki í. Þessu þarf
að breyta og það eru góðar fréttir að
fólk sem flust hefur til Íslands frá
öðrum löndum eigi nú málsvara á Alþingi.
Hinn nýi þingmaður fær nú að takast á við þunglamalegt kerfi sem umlyk-
ur málefni útlendinga á Íslandi. Full ástæða er til að hvetja Nicole og aðra
þingmenn til dáða. Mörgu þarf að breyta. Hvort sem það eru lög, reglugerðir
eða verklag sem þarf að breyta þá er nauðsynlegt að skipta algjörlega um
kúrs og tryggja að fólk sem hingað er komið til að setjast að fái að gera það.
Og þegar það er í höfn þarf að tryggja að það sitji við sama borð og aðrir.
Við þurfum með einhverjum hætti að snúa frá þeirri braut sem við erum á
og hætta að vera sífellt að senda fólk úr landi sem hér vill vera. Ekki aðeins
er það ómannúðlegt og sviptir fólk tækifæri til að lifa eðlilegu lífi heldur
missum við af tækifærum til að þroskast sem samfélag. Við getum tekið við
fleira fólki og hreinlega þurfum fleira fólk, fleiri hugmyndir og jafnara sam-
félag sem tekur tillit til allra, óháð uppruna. Það er minn óskalisti til jóla-
sveinanna 63 við Austurvöll.
Nicole Leigh Mosty leikskólastjóri
hefur tekið sæti á þingi.
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Nýtum krafta allra,
ekki bara sumra
Pistill
Eyrún Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
’Hvers vegna er ekkigert meira af því aðbjóða fólk velkomið semhér vill eiga heima? Það er
ekki eins og hér skorti pláss
eða aðstöðu. Hér er nóg af
öllu – nema kannski fólki.
Aþena Valý Orradóttir
Svona tíu, tólf. Ég eyði svona
hundraðþúsundkalli myndi ég halda.
SPURNING
DAGSINS
Hvað
kaupir þú
margar
jólagjafir?
Alexander Örn Kristjánsson
Ég kaupi svona sjö til níu jólagjafir
og reyni að gefa öllum jafnt.
Morgunblaðið/Ásdís
Eva Guðlaugsdóttir
Ég kaupi tólf til fimmtán. Litli
strákurinn og maðurinn fá
flottustu gjafirnar.
Hákon Hákonarson
Ég kaupi sautján. Mamma og kær-
astan fá dýrustu gjafirnar og vin-
irnir eitthvað sniðugt úr Tiger.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
RAX
Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson heldur tónleika í Austurbæ
í kvöld, laugardagskvöld, en húsfyllir hefur verið á öllum
tónleikum hans í Austurbæ til þessa. Jón er að vinna efni á
nýja plötu og má gera ráð fyrir að eitthvað heyrist af því.