Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.12. 2016 Heima í hlýjunni sitjum viðmeð fartölvuna í kjöltunnieða kveikjum á sjónvarpinu yfir kvöldmatnum sem mallar í pott- unum. Við fylgjumst með fréttum og færslum á samfélagsmiðlum um stríð og hörmungar fólks í ókunnugri borg langt í burtu. Þar má sjá fólk sem biðlar til heimsins, biður um hjálp. Yfirflæði mynda í dag er slíkt að flestar missa þær vægi og merkingu og þar með tilgang sinn, sem ætti að vera að opna augu fólks og hjálpa til við að binda enda á stríð. En myndir og raddir renna saman í einn hræri- graut og við erum fljót að skrolla niður í eitthvað sem er ekki eins óþægilegt að horfa á. Eða slökkva á fréttunum. Áhrifamáttur ljósmynda Svo virðist sem stakar ljósmyndir sitji frekar í hugum fólks og veki það til umhugsunar, heldur en myndbönd eða beinar útsendingar. Mannkyns- sagan hefur sýnt okkur að ljósmyndir geta búið yfir miklum mætti og geta haft gífurleg áhrif á skoðanir almenn- ings og stjórnvalda. Eitt dæmi úr sögunni er ljósmyndir frá Víetnam- stríðinu en þær höfðu mikil áhrif á gang stríðsins. Víetnamstríðið var fyrsta stríð sögunnar sem var ljós- myndað í miklum mæli. Á undan því stríði sýndu ljósmyndir úr stríðum gjarnan hetjuskap hermanna en myndir úr Víetnamstríðinu sýndu allt annað og voru notaðar til að gagn- rýna stríðið. Ljósmyndarar stríðsins fengu frjálsar hendur til að mynda hvað sem var og upphaflega héldu ráðamenn að myndirnar myndu styðja þeirra málstað, en síðar kom á daginn að þær vöktu önnur viðbrögð. Vegna þess fylgdust yfirvöld vel með því hvað var myndað í Persaflóastríð- inu, en George H.W. Bush Banda- ríkjaforseti vildi forðast það sem hann kallaði „another Vietnam“. Þannig var ljósmyndurum haldið frá því stríði eins og unnt var. Í Íraksstríðinu voru reglur aðeins rýmkaðar en þó þannig að ljósmynd- arar voru undir ströngu eftirliti ráða- manna og allt var vandlega ritskoðað áður en það var sent í birtingu. Þegar allt kom til alls voru áhrifamestu myndir Íraksstríðsins teknar af her- mönnunum sjálfum, nánar til tekið í Abu Ghraib-fangelsinu eins og marg- ir muna. Sameiginleg minning Nú þegar tæknin er orðin þannig að hver sem er getur tekið mynd eða jafnvel sent út beint frá vettvangi á samfélagsmiðlum, er spurning hversu mikil áhrif myndir geta haft. Hverfa þær allar í hafsjó tugþúsunda mynda? Einstaka ljósmyndir virðast hafa orðið að einhvers konar sameiginlegri minningu fólks í heiminum. Flest þekkjum við myndir úr fortíðinni eins og mynd Kevins Carters frá 1993 af sveltandi barni og hrægammi í Súd- an. Eins muna allir eftir mynd sem Nick Ut tók árið 1972 í Suður- Víetnam af hinni níu ára Phan Thi Kim Phuc, þar sem hún hleypur nak- in og öskrandi eftir götunni, brennd af napalmi. Þessar myndir og margar fleiri áttu sannarlega þátt í að binda enda á stríð og þjáningar. Lítill látinn drengur En hvað með Sýrland? Íbúar Aleppo hafa búið við sprengjuregn og hörm- ungar í mörg ár. Fáir fréttamenn eru þar og eru margar myndirnar þaðan frá almenningi. Þær eru engu að síð- ur merkileg heimild um ástandið. Stríðsljósmyndarinn Patrick Chauvel sagði nýlega að hann færi í stríð að ljósmynda vegna þess að það væri mikilvægt. Bæði til þess að opna augu umheimsins og þar með stjórn- málamanna og einnig til að skrásetja söguna. Tvær ljósmyndir sem tengjast stríðinu í Sýrlandi hafa greypst í huga fólks líkt og þær myndir sem nefndar eru hér að ofan. Annars vegar er það myndin af Aylan Kurdi, látnum tveggja ára dreng sem liggur á grúfu á ströndum Tyrklands, og hins vegar myndin af Omran Daqneesh, fimm ára dreng sem dreginn var úr rústum Aleppo. Hann sést sitja þakinn ösku og blóði í sjúkrabíl, ráðvilltur á svip. Reyndar er sú mynd stilla úr myndbandi en stendur engu að síður sem einstök mynd. Spurningin er, munu þessar ímyndir lifa í huga almennings heims- ins eða hverfa þær í óminnisholuna eins og flestar aðrar myndir? Munu þær gera eitthvert gagn? Tíminn einn mun leiða það í ljós. Sannleikurinn er sá að það vill enginn sjá þessar mynd- ir. Það er nefnilega of erfitt að horfa á þær. Myndirnar sem enginn vill sjá Stríðsljósmyndarar leggja líf sitt í hættu til að ná myndum af hörmungum stríða og mannlegri eymd sem þeim fylgir. Almennir íbúar stríðs- hrjáðra landa senda sjálfir út myndir á samfélags- miðlum. En gera þær gagn? Myndin af Aylan Kurdi, sýrlenskum dreng sem drukknaði við strendur Tyrk- lands, vakti gríðarleg viðbrögð frá heiminum og er ímyndin líklega greypt í huga fólks um aldur og ævi. AFP Litli, ráðvillti og umkomulausi drengurinn, Omran Daqneesh, snerti strengi í hjörtum fólks víða um heim. Mynd sem þessi getur vonandi haft áhrif til góðs. AFP ’ Tilgangur með stríðsmyndum er að trufla stjórnmálamenn þegar þeir taka rangar ákvarðanir. Okkar hlutverk er að fylgj- ast með ástandinu og segja söguna. Við erum ekki bara að vinna til þess að ná fréttinni, heldur líka til þess að skrásetja söguna. Patrick Chauvel stríðsljósmyndari. ERLENT ÁSDÍS ÁSGEIRSDÓTTIR asdis@mbl.is BANDARÍKIN Þúsundir manna hyggjast fara í mál við bandaríska vörurisann Johnson & Johnson vegna lyfs sem hafði þá aukaverkun að þeim uxu brjóst. Talað er um karlabrjóstamyndun þegar brjóstvefur drengja og karla vex líkt og hjá konu. GRIKKLAND Sænskir fornleifafræðingar hafa fundið kkta borgáður óþe í Grikklandi og fornleifafræðingar frá Háskólanum í Gautaborg telja fundinn geta breytt sýn á svæði sem til þessa hefur verið talið hafa lítið menningarsögulegt gildi. SÝRLAND Sýrlenski stjórnarherinn hefur lagt undir sig bróðurpart Aleppo en ráðamenn helstu þjóða heims hafa fordæmt framgöngu Sýrlandshers í Aleppo gagnvart óbreyttum, óvopnuðum borgurum. John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að sú framganga væri ekkert minna en þjóðarmorð. BRETLAND ftirlitsaðilar hafa skikkað stærstaE sjúkrahús Evrópu, Royal London Hospital, til að taka öryggismál sín í gegn en raunveruleg hætta er á að nýbakaðar mæður taki rangt barn heim.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.